Lofar Sigmund Davíð og segir Vilhjálm í vandræðum með sjálfsmyndina

Þorsteini Sæmunds­syni, þingmanni Framsóknar­flokksins, blöskrar umræða síðustu daga um eiginir eiginkonu forsætis­ráðherra á Tortola og segir ógæfufólk ráðast á forsætis­ráðherra vegna þess að hann hafi kjark og dug sem því skorti. Um leið talar hann um „hjárænu­legan Sjálfstæðis­þingmann sem er í vandræðum með sjálfs­mynd sína“.

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknar­flokksins, fer mikinn í aðsendri grein sem birtist á Vísi í morgun. Í greininni sem ber titilinn „Af ógæfu­fólki í íslenskri pólitík“ kemur Þorsteinn flokks­bróður sínum, Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni forsætis­ráðherra, til varnar og segir að með umræðu undan­farinna daga um eignir eiginkonu forsætis­ráðherra á Bresku Jómfrúar­eyjunum væri skrifaður „nýr kafli í lágkúru­umræðu.“

Talar um „hjárænulegan Sjálfstæðisþingmann“ 

Í síðustu viku birti Anna Sigurlaug yfir­lýsingu á Facebook þar sem hún sagðist eiga erlent félag sem hún notaði til að halda utan um fjöl­skyldu­arfinn. Síðar kom í ljós að félagið var á Tortola og hefði gert kröfur upp á hálfan milljarð í slitabú föllnu bankanna.

Málið var rætt á Alþingi og nú segir Þorsteinn að sér blöskri, um leið og hann skýtur föstum skotum að þeim sem hafa látið til sín taka í umræðunni og gagnrýnt leyndina í kringum reikninginn. Talar hann meðal annars um „hjárænu­legan Sjálfstæðis­þingmann sem er í vandræðum með sjálfs­mynd sína“.

Hjárænu­legi Sjálfstæðis­þing­maðurinn er ekki nafn­greindur í greininni, en þarna skýtur Þorsteinn að Vilhjálmi Bjarna­syni, sem sagði í Viku­lokunum um helgina að hann hefði óbeit á Framsóknar­flokknum. Umræðan um eignir eiginkonu forsætis­ráðherra á Tortola hefðu komið illa við samstarfs­flokkinn í ríkis­stjórninni. Þetta væri óþægilegt mál og ekki til þess fallið að auka traust hans á Framsóknar­flokknum. Rétt hefði verið að Sigmundur Davíð hefði veitt upplýsingar um þetta félag eiginkonu sinnar.

„Svona til upplýsingar þá þekki ég nú engan fram­sóknarmann sem ber traust til Vilhjálms.“

Sagðist hafa óbeit á Framsóknarflokknum
Sagðist hafa óbeit á Framsóknar­flokknum Vilhjálmur Bjarnason gagnrýndi forsætis­ráðherra harkalega í Viku­lokunum á Rás 1 um helgina, þar sem hann sagði að Sigmundur Davíð hefði átt að upplýsa um eignir eigin­konunnar á Tortola og málið væri ekki til þess fallið að auka traust hans á Framsóknar­flokknum.

Aðstoðarmaðurinn fyrri til 

„Þetta er mjög óþægilegt fyrir samstarfs­flokk sem er Sjálfstæðis­flokkur að standa andspænis þessu […] Við lögðum í þann leiðangur að kaupa ákveðin gögn sem vörðuðu svona félög. Þá hlýtur þetta að vera rannsakað eins og önnur mál. Síðan hitt, það er talið að um árás á tiltekna konu sé að ræða. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef þá var forsætis­ráðherra aðili að félaginu þegar tjónið varð. Þannig að það eru einungis eftir­stöðvarnar sem eru skráðar á hana og hjónaband er nú sameiginlegt fjárfélag,“ sagði Vilhjálmur.

Orð Vilhjálms féllu ekki í góðan jarðveg á meðal fram­sóknarmanna og í kjölfarið hjólaði Matthías Imsland, aðstoðar­maður Sigmundar Davíðs í forsætis­ráðuneytinu í Vilhjálm:

„Finnst nú eiginlega pínu fyndið að í hvert skipti sem Villi gagnrýnir Framsókn þá er því slegið upp. Svona til upplýsingar þá þekki ég nú engan fram­sóknarmann sem ber traust til Vilhjálms.“

„Ófrægingar­mennirnir þola ekki að forsætis­ráðherra á alla kosti sem þá skortir.“ 

Segir Sigmund eflast í hverri raun

Þorsteinn lét sér ekki nægja að veitast að þeim sem hafa gagnrýnt forsætis­ráðherra, svo sem Vilhjálm og Björn Val Gíslason, þingmann Vinstri grænna, heldur lofaði hann einnig forsætis­ráðherra. 

„Ófrægingar­mennirnir þola ekki að forsætis­ráðherra á alla kosti sem þá skortir,“ skrifaði hann og sagði ástæðuna fyrir því að „ógæfufólk hamast á forsætis­ráðherra hvern dag“ væri að hann hefði framsýni, kjark og dug sem það skorti. En það skipti engu, árásirnar væru auðvitað án árangurs því „niður­rifið og hælbitin efla Sigmund Davíð í hverri raun“.

Hann sagði hins vegar tíðindi „að Sjálfstæðis­maður láti vinstrið siga sér eins og rakka vegna einhverrar minni­máttar­kenndar.“

Grein Þorsteins má lesa í heild sinni á vef Vísis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár