Gleymda stríðið í Jemen

Ekki er allt sem sýnist varðandi stríðið í Jemen. Guðrún Margrét Guðmunds­dóttir, mann­fræðingur sem eitt sinn bjó í Jemen, rýnir á bak við tjöldin og greinir helstu ástæður stríðs­átakanna.

Nú eru rúm tvö ár liðin síðan bandalag sjö þjóða, með Sádi-Arabíu í farar­broddi (hér eftir kallað Banda­lagið), hófu loft­árásir á Jemen, hina bláfátæku og vandræða­sömu nágranna Sádi-Arabíu í suðri. Fljótlega fylgdi innrás landhers í kjölfarið. Þegar árásirnar hófust var Jemen þegar í slæmum málum. Neyðar­ástand ríkti vegna lang­varandi fátæktar, svæðis­bundinna átaka, matar­óöryggis og spillingar stjórn­valda svo eitthvað sé nefnt og milljónir manna þurftu að reiða sig á neyðar­aðstoð til að komast af. Eins og gefur að skilja hafa svo linnulausar loft­árásir Banda­lagsins og átök stríðandi fylkinga bætt gráu ofan á svart, svo vægt sé til orða tekið, og landið nú ein rjúkandi rúst. Jemenar löngu orðnir bitrir og sárir og þess full­vissir að heiminum sé skítsama um þá. 

Hörmungar en áhugaleysi fjölmiðla

Hernaðar­aðgerðin hlaut nafnið Operation Decisive Storm enda gert ráð fyrir að hún stæði stutt yfir. Skot­markið auðvelt, landið veikt fyrir og hernaðar­legur styrkur Banda­lagsins marg­faldur saman­borið við andstæðinginn. Óhætt er að segja að hið gagnstæða hafi svo komið á daginn. Lítill hernaðar­legur árangur hefur náðst á tíma­bilinu, Banda­lagið er fast í óvinsælu stríði enda fall almennra borgara mikið og ásakanir um stríðs­glæpi og önnur brot á alþjóða mannúðar- og mann­réttinda­lögum háværar. Þrátt fyrir þetta hefur alþjóða­pressan, einkum hin vestræna, látið sig hörmungar í Jemen litlu varða og oftar en ekki vísað í hið þögla stríð, eða hið gleymda, þegar andvara­leysinu er lýst. 

Neyðarástand

Margir hafa undrast þetta andvara­leysi því Sameinuðu þjóðirnar tala um hörmungar (catastrophe) til að lýsa ástandinu í Jemen. Nær allir innviðir þjóð­félagsins hafa hrunið, engin marktæk stjórn­völd eru til staðar, flestar stofnanir lokaðar og fjármála­kerfið í rúst. Nú þegar má rekja dauða 12 þúsund kvenna, karla og barna til átakanna. Yfir 70 prósent lands­manna þurfa neyðar­aðstoð til að draga fram lífið og rúmur fjórðungur hefur ekki hugmynd um hvar þeir geti bjargað sér um næstu máltíð. Barn deyr úr vannæringu eða sjúkdómum á tíu mínútna fresti, sem vel hefði verið hægt að fyrir­byggja og alvarlegur kóleru­faraldur hefur blossað upp. Sameinuðu þjóðirnar vara við enn meiri hörmungum og hungurs­neyð ef ekki verði fljótt og örugglega gripið í taumana og stríðið stöðvað. 

Jemen komið til „bjargar” með Operation Decisive Storm

Þó að allir Jemenar hafi þurft að þjást af völdum stríðsins er yfirlýst skotmark ekki Jemen sem slíkt heldur Hútar, eins og Banda­lagið er óþreytt að undir­strika. Hútar eru hópur uppreisnar­seggja sem nokkrum mánuðum fyrir loft­árásir Banda­lagsins hafði lagt undir sig stórt landsvæði í norður­hluta landsins, þar með talið höfuð­borgina Sanaa. Flæmt forsetann Abd-Rabbu Hadi og ríkis­stjórn hans á brott, ríkis­stjórn sem var hliðholl Sádi-Arabíu. Hadi var vara­forseti þar til hann var látinn taka við forseta­embættinu fáeinum áður af Ali Abdulla Saleh, forseta Jemen til 33 ára, í kjölfar þess að Ali Abdulla var hrakinn í kröftugum mótmælum, kenndum við arabíska vorið.  

Innrás Banda­lagsins þótti brýn, einkum í ljósi þess að Hútarnir, fjölmennur minnihluta­hópur sjía-múslíma, svokallaðra Zayidis-múslíma, frá Norður-Jemen, voru sagðir njóta stuðnings Írans, erkióvinar Sádi-Arabíu. Þess ber að geta að um ólíka tegund síjismans er að ræða hjá Hútum og Írönum. Slíkt valdarán gat auðljóslega ekki liðist í bakgarði Sádi-Arabíu, einkum þegar Íran átti í hlut. Skila­boðin yrðu að vera skýr og ekkert skyldi til sparað. Einsetti Banda­lagið sér að koma „lögmætri“, stjórn aftur til valda og sýna Íran þannig mátt sig og megin. Þetta er að minnsta kosti hin opinbera útskýring sem oftast er borin á borð almennings.

Haukur í horni

Bandaríkjaher hefur verið Sádi-Arabíu og félögum stoð og stytta allt frá upphafi enda öllum hnútum kunnugur eftir margra ára stríð gegn hryðju­verkum þar í landi, sem mestmegnis hefur farið fram með leynd og dróna­hernaði gegn jemenska Al-Kaída og svo ISIS nú í seinni tíð. Hagsmunir Sádi-Arabíu og Banda­ríkjanna fara fullkomlega saman í þessu stríði gegn Hútum, sem áttu að njóta stuðnings Íran, og vægast sagt miklir hagsmunir eru í húfi.

Sádi-Arabíu, einum mikil­vægast banda­manni Banda­ríkjanna í stríðinu gegn hryðju­verkum, stendur ógn af Hútum og Írönum. Sádi-Arabía tryggir ódýra olíu á Bandaríkja­markað, stundar þar fjár­festingar af kappi og kaupir að auki aragrúa af vopnum fyrir svimandi upphæðir. Á móti aðstoðar Bandaríkjaher stjórn­völd Sádi-Arabíu með því að miðla upplýsingum sem aflað hefur verið með njósnum og með því að útvega vistir og eldsneyti og þjálfun í notkun á bandarískum hátækni­vopnum. 

Proxy stríð Sádi-Arabíu gegn Íran?

Eins og minnst hefur verið á er stríðinu oftast lýst, einkum í vestrænum fjöl­miðlum, sem trúflokka­erjum á milli súnní-meirihlutans og sjía-minni­hlutans í Jemens eða sem staðgengla­stríði á milli Sádi-Araba og Írana. Það stenst þó ekki nánari skoðun, að minnsta kosti ekki að öllu leyti. Þegar betur er að gáð hangir meira á spýtunni, eins og algengt er þegar stríðs­rekstur er annars vegar. 

Sumum þáttum er haldið leyndum og öðrum ýtt fram. Ljóst er að Sádar brenna ekki af lýðræðisást fyrir hönd nágranna sinna og eru tilbúnir að fórna miklu til að Abdrabbuh Mansur Hadi, forseti, komist aftur til valda. Aftur á móti er uppreisn gegn einum einræðis­herra og valda­elítu við Persa­flóann er ógn við þá alla. Tengslin við Íran eru því að mestu fyrir­sláttur enda voru samskipti og samvinna Húta og Írana ekki nein að ráði, að minnsta kosti ekki fyrr en átökin brutust út. Það er algjör nýlunda að Hútar í Jemen gangi um með spjöld með slag­orðunum: „Death to America“, „Death to Israel,“ sem eru kunnugleg stef frá Íran, þótt það tíðkist nú.

Sunní og sjítar hafa þar að auki lifað í sátt og samlyndi að mestu, hlið við hlið í hundruð ára og spennan á milli trúflokka því svo til ný af nálinni þar í landi. Núverandi togstreita frekar tilkomin vegna stríðsins sem skapar og elur á sundrungu. Hinn almenni Jemeni stendur eftir forviða og spyr sig hvað hafi eiginlega gerst. Öllu hafi verið snúið á hvolf.   

Undirliggjandi ástæður

Erfitt er að skilja raun­verulegar eða líklegri ástæður að baki stríðsins án þess að skoða það í samhengi við baráttu um yfirráð og völd á svæðinu (geo-politics), stöðugar innan­landserjur, auðlinda­pólitík (olíu, gas, gasleiðslur og aðrar flutnings­leiðir fyrir auðlindirnar) og ekki síst botnlausa hræðslu einræðis­herra Persaflóa og banda­manna þeirra vestanhafs gagnvart öllu lýðræðis­brölti og öllu því sem gæti hróflað við því ábatasama fyrir­komulagi sem fyrir er.

Flækju­stig átakanna er mikið, línur óskýrar og erfitt að gera grein fyrir því öllu svo vit sé í. Jemen er samsett úr flóknum pólitískum einingum og um er að ræða fjölda ættflokka sem bítast um völd, síbreytileg bandalög, etnískar línur og nú í seinni tíð hafa herskáir öfgahópar orðið fyrirferðar­miklir. Reyndar voru slíkir herskáir hópar nær óþekktir í Jemen fyrir tíma heilags stríðs í Afganistan en hefur fjölgað með ógnar­hraða með tilkomu leyni­stríðs gegn þeim. Þessir hópar sýna stjórn­völdum í Jemen hollustu eða vinna gegn þeim eins og þeim sýnist. 

Til að ná einhverri mynd á hvað er raun­verulega að gerast í Jemen þarf að skoða atburðina í samhengi hryðjuverka­stríðsins títt­nefnda, arabíska vorsins svokallaða, og nýs kafla hryðjuverka­stríðsins, eða framhaldslíf, sem virðist hafa byrjað þegar Trump steig sverð­dansinn í Sádi-Arabíu fyrir nokkrum vikum síðan, eins og frægt er orðið. 

Bandalag Ali Abdulla og Hútanna

Ali Abdulla Saleh, sem var forseti Jemens til 33 ára, var hrakinn frá völdum í arabíska vorinu árið 2011. Fram að því höfðu Ali Abdulla og Hútarnir eldað grátt silfur saman í marga áratugi. Hútarnir heimtuðu meiri aðild að völdum og Ali Abdulla gramdist heimtu­frekjan mjög. Svo mjög að talið er að hann hafi látið taka leiðtoga Hútanna af lífi á 9. áratugnum. Taka skal fram að Ali Abdulla er einnig zayidi þótt hann tilheyri ekki Húta-ættflokknum.

Jafnvel þótt hann hafi samþykkt að færa Hadi, fyrr­verandi vara­forseta, forseta­stólinn árið 2012, þoldi hann ekki lengi við í útlegðinni í Sádi-Arabíu enda vanur að ráða lögum og lofum í Jemen og stór hluti stjórnar­hersins honum enn hlið­hollur. Hann sneri því aftur og gerðist einn helsti banda­maður Hútanna, fyrrum óvina sinna. 

Vopn Obama 

Dróna­stríð Obama, eins og það er oft kallað, var lengi háð í suður­hluta Jemen gegn herskáum öfgahópum, eins og fyrr segir, og var búið að vera í gangi í mörg ár áður en Obama steig fram árið 2012 og viðurkenndi það, sagði það lið í gagnsæis­stefnu stjórnarinnar. Ali Abdulla hafði sýnt aðgerðunum mikinn stuðning enda ógnuðu þessi öfl völdum hans.

Til marks um samstarf hans við stjórn Obama tók hann, fyrir hönd hersins, á sig sökina á ýmsum aðgerðum sem fóru úrskeiðis. Einkum þegar hátt hlutfall almennra borgara voru drepnir í dróna­árásum eða skot­mörkin voru röng. Á hinn bóginn studdi hann sömu öfl þegar það hentaði honum betur.

Jemenar á þessu svæði eru sagðir þjakaðir á sálinni enda fastir í heljar­greipum ástandsins um árabil; togstreitu og átaka á milli stjórnar­hersins, herskárra öfgaafla og ættflokka­deilna með stöðugt suð drónanna fyrir eyrunum, með enga hugmynd um hvar næsta skotmark þeirra gæti leynst. Heilu samfélögin eru sögð þjást að áfalla­streitu­röskun og fjöldi manna, sem aldrei hefðu annars haft áhuga á því, hefur gengist á hönd herskárra hópa eftir að hafa misst ástvini og upplifað eyði­leggingu í dróna­árásum. Örugg leið til að framleiða sífellt fleiri öfgamenn. 

Lýðræðisbrölt og kjarnorkusamningur við Íran

Mikill titringur myndaðist þegar frelsis­andi arabíska vorsins sveif yfir vötnum við Persaflóa og Mið-Austur­landa almennt, árið 2011. Valda­stöðu og -jafnvægi svæðisins var ógnað og hafist var handa við að kveðja niður andófið með öllum tiltækum ráðum. Sádi-Arabía sendi sem dæmi her til að aðstoða gegn uppreisnar­öflum í Bahrain og horfði forviða í suðurátt á lýðræðis­tilburði nágrannana í Jemen eftir að Ali Abdulla hafði verið komið frá völdum. Ólíkir hópar, sem tekið höfðu þátt í byltingunni þar í landi, sátu saman og ræddu gerð nýrrar stjórnar­skrár og hvernig hægt væri að deila völdum þannig að fleiri kæmu að stjórn landsins, með Húta sem virka þátt­takendur. Bjartsýni og samstaða er sögð hafa einkennt Jemen á þeim tíma. Stuttu síðar hófust afskipti Sádi-Arabíu, Katar og fleiri af stöðunni í Sýrlandi af fullum krafti og Líbýa var eyðilögð svo eitthvað sé nefnt. Atburðir síðastliðinna ára á svæðinu eru meira og minna tengdir hræðslunni við umbóta­sinna og lýðræðisöfl. 

Erindreki segir upp

Þegar Hútarnir stormuðu yfir norður­hluta Jemen og tóku hann yfir var enn von til að hleypa þeim að kjöt­kötlunum, ef svo má segja, eða tækifæri að deila með þeim völdum en Sádi-Arabía virtist áhugalaus um slíkt.

Erindreki Sameinuðu þjóðanna, sem sá um friðar­umleitanir, benti á að samningar hefðu næstum því tekist og friði næstum náð. Þrátt fyrir það hófu Sádi-Arabía og félagar loft­árásir þegar aðeins átti eftir að semja um eitt lykil­atriði; hvaða hópur fengi forseta­embættið. Erindrekinn sagði af sér í mótmæla­skyni, hneykslaður og reiður.

Ákafa Sádi-Araba yfir því að ráðast inn í Jemen má einnig rekja til kjarnorku­samningsins sem Obama stjórnin gerði við Íran. Sádar fengu brjál­æðiskast og til að lægja öldur heimilaði Bandaríkja­stjórn þeim að ráðast á Jemen, hina fátæku nágranna sem höfðu rætt lýðræði af fullri alvöru. Það mátti ekki líðast. 

Trump dansar sverðdansinn við Sáda

Fyrsta heimsókn Trump utan Banda­ríkjanna var til Sádi-Arabíu í maí síðastliðnum sem þótti táknrænt um náið samband þjóðanna. Trump, steig sverð­dansinn með Salmann konungi, augljós­lega afar hrifinn af landi og þjóð sem hann hrósaði í hástert.

Þar fyrir utan lét hann kalla saman 50 leiðtoga múslíma (sunní) ríkja til að ræða framtíð hryðjuverka­stríðsins. Nú yrðu sunní-múslímar að bindast bandalagi á móti sjía-múslímum, einkum Íran. Íranir væru umfangs­mestir þegar kæmi að því að styðja og vopnvæða hryðju­verkamenn heims, þar á meðal HisbAllah. Íran styddi líka Assad forseta í Sýrlandi sem Banda­ríkin vilja koma frá völdum. Nú yrðu súnní-múslímar og þeirra ríki að standa saman til að ráða niður­lögum þeirrar ógnar.

Á leiðtogum margra múslíma­ríkja mátti greina skrýtinn svip yfir ræðu Trump,  þar sem þeir vita manna best hvaða ríki styður hryðjuverka­hópa mest allra og að sjálf hugmynda­fræðin sé runnin undan þeirra rifjum. Sádi-Arabía fer þar fremst í flokki, að sjálfsögðu.     

Framhaldslíf stríðsins gegn hryðjuverkum 

Nú er hægt að sjá fyrir sér Sádi-Araba og Trump sitja sveitta við að skrifa handrit fyrir næsta kafla hryðjuverka­stríðsins, framhalds­lífsins; marka skýrari línur, skilgreina óvininn með meira afgerandi hætti en áður og reyna samtímis að fiffa til óþægilega atburði og mistök fortíðarinnar um leið.

Nú eru súnní-Arabar góðir en sjítar vondir. Þannig verður reynt að bæta fyrir mistök Banda­ríkjanna þarna í Írak árið 2003 þegar öllum opinberum starfs­mönnum Bathistaflokks Saddam Hussain (sunní) var sagt upp og sjía-múslímar, bálreiðum og í hefndarhug eftir lang­varandi kúgun Baadthistinna, komið til valda í staðinn. Þessi mistök urðu til þess að Íran styrktist pólitískt, Sádi-Aröbum til mikillar mæðu. Sjá mátti aðra skýra tilraun tila ð endur­skrifa söguna. Katar var sett út af sakramentinu í kjölfar heim­sóknar Trump, þar sem þeir neituðu að slíta samskiptum við Íran, og í leiðinni látnir taka á sig alla sökina fyrir stuðning og styrki Sádi-Araba og nágranna­landanna við hryðjuverka­öflin í Sýrlandi og víðar, sem mætti helst líkja við það að Pepsi Cola sakaði Coca Cola um að nota of mikinn sykur í gosdrykki. Katar var sömuleiðis hent út úr Banda­laginu og herinn rekinn heim frá Jemen með skömm.  

Jemen er nauðsyn­legur liður í þessu framhalds­lífi hryðjuverka­stríðsins; vanþróað, fátækt, flókið og vinalaust. Tvær flugur í einu höggi; ögra Íran og brjóta lýðræðisöfl á bak aftur. Jemenum var sagt að taka stríðið gegn sér ekki persónu­lega því það sé þeirra hagur að losna við Hútana. Sádí-Arabía sé þar til að hjálpa en ekki annað. Líklega fer Jemen að verða óspennandi stríð fyrir Banda­lagið sem situr á stærsta vopnabúri heims því takmörkuð áskorun felst í því að sparka stöðugt í liggjandi mann. Íran yrði hins vegar alvöru stríð. Nú má heyra trumbu­slag fyrir næsta stríð, við Íran, óma. Alþjóða­pressan, viðbúin að taka þátt og slá taktinn, enda virðist sem nafla­strengur hennar sé samfastur valda­elítu heimsins, svo sem hergagna- og stríðs­iðnaðinn og auðlinda­samsteypur. Tromm, tromm, tromm ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár