Auglýsingasalar RÚV á mun hærri launum að meðaltali en aðrir starfsmenn

RÚV Sala seldi auglýsingar fyrir rúma tvo milljarða í fyrra, sem var um fjórðungi hærri upphæð en árið áður. Starfs­mönnum í sölu fjölgaði 2021 á meðan að þeim fækkaði heilt yfir hjá RÚV. Laun í sölu eru að meðaltali 20 prósent hærri en annarra innan RÚV.

RÚV Sala, dóttur­félag RÚV sem ber ábyrgð á allri sölu sem ríkis­fjöl­miðilinn skilgreinir sem tekju­aflandi samkeppnis­rekstur, þar með talið auglýsinga­sölu, aflaði tæplega 2,4 milljarða króna í tekjur í fyrra. Þar af voru 2.206 milljónir tekjur af auglýsinga­sölu, sem var 402 milljónum krónum meira en RÚV Sala aflaði með sölu slíkra á árinu 2020. Tekjur RÚV af sölu auglýsinga jukust því um næstum 25 prósent milli ára. Til sam­an­burðar má nefna að rekstr­ar­styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla, sem úthlutað er árlega, voru tæp­lega 389 millj­ónir króna í fyrra. Þeir dreifð­ust á 19 mis­mun­andi miðla.

Hagnaður af rekstri RÚV Sölu, það sem sat eftir inni í dóttur­félaginu eftir að það var búið að gjaldfæra viðskipti við móður­félag sitt upp á tvo milljarða króna og greiða laun starfs­manna, var 124 milljónir króna á árinu 2021.

Þetta má lesa úr ársreikningi RÚV Sölu fyrir árið 2021, en félagið tók til starfa í byrjun árs 2020.

Laun sölumanna rúmlega 20 prósent hærri

Hjá RÚV Sölu voru 16 stöðu­gildi að meðaltali í fyrra sem höfðu það hlutverk að afla þessara tekna. Kostnaður vegna heildar­launa og lífeyris­sjóðs­greiðslna hjá dóttur­félaginu var alls 227 milljónir króna. Það þýðir að meðaltal kostnaðar vegna launa og gjalda starfs­manna RÚV Sölu var 1.182 þúsund krónur á mánuði. Einar Logi Vignisson, framkvæmda­stjóri RÚV Sölu var með um 1,7 milljónir króna í heildar­launa­kostnað að meðaltali. Í árslok 2021 hafði starfs­mönnum RÚV Sölu fjölgað um einn í 17.

Hjá RÚV samstæðunni allri störfuðu 252 í fyrra og heildar­kostnaður vegna launa og lífeyris­sjóðs­greiðslna var tæplega þrír milljarðar króna á árinu 2021. Þegar kostnaður við heildar­laun og lífeyris­sjóðs­greiðslur starfs­manna RÚV Sölu er dreginn frá launa­kostnaði RÚV-samstæðunnar er meðaltals­kostnaður á hvern eftir­standandi starfs­mann 975 þúsund krónur. Því eru meðal­launa­kostnaður starfs­manna RÚV Sölu 21 prósent hærri en meðaltal launa­kostnaðar allra annarra starfs­manna RÚV-samstæðunnar.

Þeim launum er þó nokkuð misskipt innan RÚV en Stefán Eiríksson útvarps­stjóri er til að mynda með 2,5 milljónir króna í heildar­laun og lífeyris­sjóðs­greiðslur í fyrra. Samkvæmt samantekt Frjálsrar verslunnar um tekjur lands­manna á árinu 2020 voru tólf fjölmiðla­menn sem starfa innan RÚV með meira en milljón krónur á mánuði í laun.

Kostnanir og dagskrárliðir rofnir

Tekjur RÚV voru 7,1 milljarðar króna í fyrra. Þær eru að uppi­stöðu tvenns­kon­ar: tekjur af almanna­þjón­ustu sem koma í formi fram­lags úr rík­is­sjóði og tekjur af sam­keppn­is­rekstri. Alls fékk RÚV næstum 4,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra sem var ívið minna en þeir 4,9 millj­arðar sem rík­is­fjöl­mið­ill­inn fékk þaðan 2020. Síðan eru áður­nefndar samkeppnis­tekjur upp á 2,4 milljarða króna þar sem auglýsinga­salan skiptir mestu.

Til að ná inn þeim rúmu tveimur milljörðum króna sem RÚV Sala aflaði í fyrra seldi félagið hefð­bundnar auglýsingar í auglýsinga­tíma á sjónvarps- og útvarps­stöðvum ríkis­miðilsins, en RÚV má ekki auglýsa á netinu.

Auk þess voru ákveðnir dagskrár­liðir rofnir með auglýsinga­hléum á síðasta ári, og eru tilgreint í ársskýrslu RÚV hverjir þeir eru. Um er að ræða Alla leið, Bræðsluna, Eddu­verðlaunin, Eurovision, Vikuna með Gísla Marteini, Gettu betur, Klassíkina okkar, kosninga­sjónvarpið, Ólympíu­leika, Ólympíumót fatlaðra, Reykja­víkurleika, Silfrið, Skrekk, Skóla­hreysti, Söngva­keppnina, Söng­keppni framhalds­skólanna og Tónaflóð.

Þá voru fjölmargir dagskrár­liðir kostaðir á árinu 2021. Þeir eru líka tilgreindir í ársskýrslu RÚV. um er að ræða bikar­keppni í handbolta, Bikar­keppni í körfu­bolta, Bikar­keppni í blaki, Verbúð, Eurovision og Söngva­keppnin, Hesta­íþróttir, HM í handbolta, HM félags­liða, HM og heims­bikarmót í skíða­íþróttum, HM í íshokkí, Íslands­mótið í fimleikum, Íslands­mótið í golfi, Lands­leikir í fótbolta, Lands­leikir í handbolta, Lands­leikir í körfu­bolta, Ófærð, Ólympíu­leikar, Ólympíumót fatlaðra, Reykja­víkur­leikarnir, Skóla­hreysti, Tónaflóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár