Auglýsingatekjur RÚV jukust um fjórðung í fyrra og voru rúmlega tveir milljarðar

RÚV fékk 4,7 milljarða króna úr ríkis­sjóði á árinu 2021. Auglýsinga­tekjur fyrir­tækisins jukust um rúmlega 400 milljónir króna milli ára. Það er hærri upphæð en allir einka­reknu miðlarnir fengu samanlagt í rekstrar­styrk úr ríkis­sjóði.

Stefán Eiríksson er útvarpsstjóri RÚV.
Stefán Eiríks­son er útvarps­stjóri RÚV. Mynd: Samsett mynd

RÚV hagnaðist um 45,2 milljónir króna í fyrra eftir að hafa tapað 209 milljónum króna á árinu 2020, sem var í fyrsta sinn síðan 2014 sem RÚV skilaði tapi.

Tekjur RÚV jukust úr tæplega 6,9 milljónum króna í tæplega 7,1 milljarð króna á árinu 2021 og rekstrar­hagnaður var 299 milljónir króna. Hrein fjármagns­gjöld átu hann hins vegar upp að mestu en þau voru 254 milljónir króna á síðasta ári þrátt fyrir að gengis­munur hafi verið jákvæður um 71 milljón króna. Hann var neikvæður um sömu krónutölu árið áður.

Þetta kemur fram í ársreikningi RÚV sem birtur var í liðinni viku.

Tekjur RÚV eru að uppistöðu tvennskonar: tekjur af almanna­þjónustu sem koma í formi framlags úr ríkis­sjóði og tekjur af samkeppnis­rekstri. Alls fékk RÚV næstum 4,7 milljarða króna úr ríkis­sjóði í fyrra sem var ívið minna en þeir 4,9 milljarðar sem ríkis­fjöl­miðillinn fékk þaðan 2020.

Tekjur af samkeppnis­rekstri jukust hins vegar um 424 milljónir króna milli ára og voru tæplega 2,4 milljarðar króna. Þar af námu tekjur af auglýsinga­sölu 2.026 milljónum króna í fyrra, sem var 402 milljónum krónum meira en þær skiluðu árið 2020. Tekjur RÚV af sölu auglýsinga jukust því um næstum 25 prósent milli ára. Til saman­burðar má nefna að rekstrar­styrkir til einka­rekinna fjölmiðla, sem úthlutað er árlega, voru tæplega 389 milljónir króna í fyrra. Þeir dreifðust á 19 mismun­andi miðla.

Fasteignabrask og lengri greiðsluferill lagaði stöðuna

Afkoma RÚV á árunum 2013 til 2019, sem var sam­tals jákvæð um 1,5 millj­­­arða króna. Það skýrð­ist fyrst og fremst af hagn­aði vegna sölu bygg­inga­réttar á lóð félags­­­ins við Efsta­­­leiti. Ef litið er á afkomu félags­­­ins fyrir tekju­skatt og sölu­hagnað hefði heild­­­ar­af­koma félags­­­ins á þessu tíma­bili var hún nei­­­kvæð um rúm­lega 50 millj­ónir króna. Án lóða­­­söl­unnar hefði RÚV ohf. því verið ógjald­­­fært.

Auk þess samdi RÚV í maí 2019 við Líf­eyr­is­­­­­sjóð starfs­­­­­manna rík­­­­­is­ins (LSR) um að breyta skil­­­­­málum á skulda­bréfi í eigu sjóðs­ins sem er til­­­­­komið vegna ógreiddra líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Í sam­komu­lag­inu fólst að veru­­­­lega var lengt í greiðslu­­­­­ferli bréfs­ins, en loka­gjald­dagi þess er nú 1. októ­ber 2057 í stað 1. apríl 2025. Sam­hliða var höf­uð­­­­­stóll hækk­­­­­aður og vextir lækk­­­­­aðir úr fimm pró­­­­­sentum í 3,5 pró­­­­­sent.

Þetta gerði það að verkum að greiðsla skuld­­­­ar­innar mun teygja sig til nýrra kyn­slóða en fjár­­­­­­­magns­­­­gjöld sem RÚV greiðir árlega munu lækka umtals­vert. Þau voru, líkt og áður sagði, 254 millj­­­­ónir króna í fyrra og lækkuðu um næstum 100 milljónir króna milli ára.

Útvarpsstjóri með 2,5 milljónir á mánuði

Stöðu­gildum fækkaði um 14 milli ára og voru 252 á árinu 2021. Launa­kostnaður dróst samhliða saman um 49 milljónir króna og var rétt undir þremur milljörðum króna.

Heildar­laun og lífeyris­sjóðs­greiðslur Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra námu 30 milljónum króna í fyrra. Það þýðir að Stefán var með 2,5 milljónir króna á mánuði í laun og mótframlag í lífeyris­sjóð fyrir að stýra stærsta fjölmiðla­fyrirtæki landsins, og því eina sem er í eigu ríkisins.

Stefán var ráðinn snemma árs 2020 og þá skipaður til fimm ára. Hann er tíundi útvarps­stjóri RÚV frá upphafi og tók við starfinu af Magnúsi Geir Þórðar­syni.

RÚV er rekið í samræmi við þjónustu­samning sem gerður er við það ráðuneyti sem fer með málefni fjölmiðla hverju sinni. Nú er það ráðuneyti ferðamála-, viðskipta- og menningar­mála sem stýrt er af Lilju Alfreðs­dóttur. Nýr þjónustu­samningur var undir­ritaður í lok árs 2020 og látinn gilda aftur­virkt frá 1. janúar á því ári. Hann rennur út í lok næsta árs.

Á málþingi sem Blaða­manna­fé­lag Íslands og Rann­sókna­setur um fjöl­miðlun og boð­skipti við Háskóla Íslands stóðu fyrir í febrúar síðastliðnum sagði Lilja að hún ætlaði að beita sér fyrir því að RÚV fari af auglýsinga­markaði. Hún vill horfa til Danmerkur sem fyrir­myndar fyrir íslenska fjölmiðla­markaðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár