Hlutabréfaverð hrynur á alþjóðamörkuðum

Einhver „leið­rétting“ er nú að eiga sér stað á alþjóða­mörkuðum. Miklar lækkanir sáust á mörkuðum í dag.

Hlutabréfa­verð hefur hrunið á alþjóða­mörkuðum í dag, en mest hefur lækkunin þó verið í Banda­ríkjunum. Á tveimur viðskipta­dögum hefur verð lækkað samanlagt um 6 prósent í Banda­ríkjunum, sem telst mikið miðað við venju­bundnar sveiflur á mörkuðum. ,

S&P 500 vísitalan lækkaði um 4,1 prósent í dag og lækkanir á flestum mörkuðum heimsins voru á bilinu 1 til 3 prósent. Lækkunin var þó skörpust í Banda­ríkjunum, en í umfjöllun Wall Street Journal segir að megin­ástæðan fyrir þessum glundroða á mörkuðum undan­farna þrjá viðskipta­daga sé sú að fjár­festar óttist hækkandi verðbólgu og vaxtastig í Banda­ríkjunum, eftir lágt tímabil þar sem fjármagn hefur flætt um markaði á litlum sem engum mörkuðum.

Þar undir­liggjandi hefur áætlun Seðla­banka Banda­ríkjanna, sem rekja má aftur til þess þegar fjármála­markaðir fóru í gegnum mikinn hreinsunareld á árunum 2007 til 2009, haft mikil áhrif, en bankinn hefur beint og óbeint sett mikið fjármagn út á markaði til að örva hagvöxt og styðja við endur­reisn efnahags Banda­ríkjanna á undan­förnum árum.

Atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum er nú með minnsta móti, en það mælist 4,7 prósent á landsvísu.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram, að grein­endur hafi verið að senda fjár­festum upplýsingar um að þeir ættu að „róa sig“ í sölum á hluta­bréfum. Engin ástæða væri til þess að vera of neikvæður á stöðu mála.

Verð á hráolíu hefur einnig lækkað töluvert í dag, en verðið á tunnunni á Bandaríkja­markaði er nú 63 Bandaríkja­dalir og lækkaði það um tæplega 3 prósent í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár