Þorsteinn sækist eftir oddvitasæti í Reykjavík

„Ákvörðun mín er tekin vegna hvatningar sem ég hef fengið frá Fram­sóknar­mönnum í Reykjavík á framboði mínu þar,“ segir Þorsteinn.

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknar­flokksins úr Suðvestur­kjördæmi, ætlar að sækjast eftir oddvita­sæti á framboðs­lista Framsóknar­flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi norður í næstu þing­kosningum.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu sem hann sendi frá sér rétt í þessu.

„Undir­ritaður hyggst á tvöföldu kjördæmis­þingi sem haldið verður í Reykjavík í ágúst sækjast eftir 1. sæti á framboðs­lista Framsóknar­flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi Norður í næstu alþingis­kosningum. Ákvörðun mín er tekin vegna hvatningar sem ég hef fengið frá Fram­sóknar­mönnum í Reykjavík á framboði mínu þar. Einnig hefur brott­hvarf tveggja reyndra þingmanna úr kjör­dæminu áhrif á ákvörðum mína en brýnt er að fylla það skarð sem þeir láta eftir. Ég mun senda kjör­stjórn flokksins í Reykjavík tilkynningu um framboð mitt innan nokkurra daga,“ skrifar Þorsteinn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár