„Það er enginn að fara að stýra borginni einn“

Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir, oddviti Viðreisnar í borginni, vill nýjar lausnir í leik­skólamálum og viðurkennir að of hægt hafi gengið að nálgast það markmið að útvega öllum 12 mánaða börnum pláss.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík. Mynd: Arnar Þór

Viðreisn er ekki stóryrtur flokkur, „við skellum ekki fram einhverju eins og „tólf þúsund íbúðir – ég lofa!“ Við erum kannski að mörgu leyti íhaldssöm hvað það varðar. Við erum flokkur sem erum svolítið raunhæf,“ segir Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, í nýjum kosninga­þætti Kjarnans, Með orðum oddvitanna, þar sem Eyrún Magnúsdóttir ræðir við alla oddvita þeirra ellefu framboða sem bjóða sig fram í borgar­stjórnar­kosningunum sem fram fara þann 14. maí.

Þórdís ræðir einmitt þennan fjölda flokka sem bjóða nú fram og að borgar­fulltrúarnir verði, líkt og á yfir­standandi kjör­tímabili, 23. „Þannig að það er alveg sama hvað manni langar að allt verði bara eins og við í Viðreisn viljum, við erum að fara – alltaf – að vinna með öðrum. Það er enginn að fara að stýra borginni einn.“

Því verði allir flokkarnir að finna leiðir til að vinna saman. „Og þá byrjar mála­miðlunin,“ segir hún. „Það er það sem við þurfum að byrja að læra í íslenskri pólitík. Við sem fólk þurfum líka að læra að pólitík er mála­miðlun og árangurinn er mála­miðlun. En hún má ekki vera eitthvað moð. Hún verður að vera alvöru. Þess vegna segjum við að við í Viðreisn höfum skýra sýn, við viljum sjá hérna nútíma­lega, alþjóð­lega og skemmtilega borg fyrir alla en við vitum alveg að þegar kemur að því að tala saman eftir kosningar þá þurfum við öll að finna einhvern sameiginlegan kjarna og halda okkur við það.“

Þórdís Lóa hefur átt sæti í borgar­stjórn síðustu fjögur ár þar sem Viðreisn hefur verið í meirihluta­samstarfi við Samfylkingu, Pírata og Vinstri græn. Hún segir að meirihlutinn hafi sett sér það langtíma­markmið að öll tólf mánaða börn komist inn á leikskóla í Reykjavík og að á kjör­tímabilinu hafi tekist að fara í þá átt, „en það er ekki búið að vera að lofa því að það sé komið á“. Leikskóla­plássum hafi verið fjölgað um 430 á kjör­tímabilinu, á sama tíma og íbúum hafi fjölgað um yfir 10 þúsund.

En er þetta að gerast of hægt?

„Mér finnst það já. Það hefur ekki vantað fjár­magnið. Við þurfum að vera með fjöl­breyttara umhverfi í byggingum, það er trú okkar Viðreisnar að með því að koma með öðruvísi leikskóla inn í byggingar sem eru íbúða­byggingar eða atvinnu­húsnæði getum við slegið aðeins í klárinn.“

Viðreisn hefur líka viðrað þá hugmynd að stórir vinnu­staðir, háskólar og Land­spítalinn svo dæmi séu tekin, geti opnað sína leikskóla og þá í húsnæði sem þeir eru með. Þetta hafi vissulega verið reynt „en ég held að við eigum að prófa þetta aftur“.

Sjálfstæðir skólar fái meiri stuðning

Viðreisn vill að fólk hafi raun­verulegt val um grunn­skóla og spurð hvað felist í því svarar Þórdís Lóa að vissulega eigi allir hverfis­skólar að vera gæða­skólar en segir alltaf ákveðinn hóp, kannski tíu prósent, sem vill eitthvað annað „og þá þarf að vera val“. Í dag fái sjálf­stæðir skólar um 75 prósent af rekstrar­kostnaði frá sveitar­félögum og þurfi því að innheimta skóla­gjöld til að brúa bilið. „Við segjum af hverju fara sveitar­félög ekki alla leið, borga þeim jafnmikið og þeir eru að borga sínum eigin skólum þannig að þessir skólar þurfi ekki að rukka skóla­gjöld?“

Hvað samkeppnis­rekstur varðar, sem Viðreisn vill að borgin sé einfald­lega ekki í, nefnir Þórdís Strætó sem dæmi. „Mér finnst alveg auðséð að við getum boðið meira og minna allan þennan rekstur út.“

Hún segir að það gæti „einhvers ótrúlegs misskilnings“ í umræðunni hvað varðar verkefni tengd stafrænni umbreytingu hjá borginni sem lagt var af stað með á kjör­tímabilinu. Það sé „alls ekki rétt“ að borgin hafi ekki farið í útboð heldur hafi um 80 prósent verk­efnanna verið boðin út. Það sem borgin geri innanhúss sé verkefna­stýring. „En borgin er stór og ég skil að margir hafi orðið sjokkeraðir þegar það þurfti að ráða marga verkefnis­stjóra til þess að innleiða þetta. Ég get vel skilið að það sitji í fólki.“

Um 60 manns hafi verið ráðin til borgarinnar í tíma­bundin verkefni tengd stafrænu umbreytingunni. „Borgin hefur engan áhuga á því að vera eitthvað hugbúnaðarhús. Alls ekki.“

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér fyrir neð­an:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár