Trump gagnrýndur harðlega fyrir kynþáttahyggju og fordóma

Fulltrúi mann­réttinda­skrifstofu Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt ummæli Bandaríkja­forseta.

Þingmaður Demókrata, Richard Durbin, segir að Donald Trump hafi ítrekað notað orð sem fólu í sér kynþátta­hyggju (rasisma) þegar hann ræddi um málefni innflytjenda á fundi á skrif­stofu forsetans í gær.

Durbin sagði að Trump hefði ítrekað látið „rasísk“ ummæli falla og kallað tilteknar þjóðir, eins og Haíti, ríki í Suður-Ameríku og Afríku, „skíta­holur“. Durbin sat fundinn sjálfur og stað­festir með því fréttir Washington Post, þar sem greint var frá ummælum forsetans.

Rupert Colville, talsmaður mann­réttinda­skrifstofu Sameinuðu þjóðanna, segir ummæli Trumps vera „sjokkerandi“ og óhjákvæmilegt sé annað en að líta á þau sem kynþátta­hyggju af verstu sort.

„Það er ekki hægt að dæma heilu þjóðirnar sem „skíta­holur“,“ sagði Colville. Hann sagði Trump hafa gerst sekan um það áður, að draga fólk í dilka eftir trú og kynþætti, og nefndi sérstak­lega fólk frá Mexíkó og múslima. Hann sagði talsmáta eins og þennan ólíðandi og hann færi gróflega gegn gildum Sameinuðu þjóðanna, þegar kæmi að mann­réttindum.

Hvíta húsið hefur ekki dregið ummæli Trump til baka, en ítrekað hefur verið í yfir­lýsingu að Trump vilji einblína á hagsmuni Banda­ríkjanna og að innflytjenda­stefnan taki mið að því að fólkið sem komi til landsins leggi mikið til bandarísks samfélags, að því er segir í umfjöllun New York Times. Hefur hann gefið sér þrjá mánuði til ná fram miklum breytingum á lögum um landamæra­eftirlit í Banda­ríkjunum, með það að markmiði að verna bandaríska hagsmuni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár