Vilja nýtt breytingaákvæði: Þjóðaratkvæðagreiðslu í stað samþykkis tveggja þinga

Píratar vilja grundvallar­breytingu á breytingar­ákvæði stjórnar­skrárinnar en Vinstri græn lögðu fram mála­miðlunar­tillögu. Sjálfstæðis­menn leggjast gegn hvoru tveggja.

Píratar vilja að samþykkt verði breyting á breytingar­ákvæði stjórnar­skrárinnar fyrir þinglok og tryggt að framvegis þurfi ekki að rjúfa þing og boða til kosninga að nýju til að stjórnar­skrár­breytingar taki gildi. Í staðinn verði stjórnar­skrár­breytingar bornar undir landsmenn í þjóðar­atkvæða­greiðslu.

Píratar ætla að leggja fram frumvarp um málið í dag og má svo búast við því að greidd verði atkvæði um hvort málið verði sett á dagskrá fyrir þinglok. 

Samkvæmt heimildum Stundarinnar felur tillaga Pírata í sér, að meginefni til, að núgildandi breytingar­ákvæði stjórnar­skrárinnar falli brott og í staðinn komi ákvæði í anda þess sem stjórnlagaráð lagði til árið 2011. Tillaga stjórnlaga­ráðs að nýrri stjórnar­skrá hlaut yfir­gnæfandi stuðning í þjóðar­atkvæða­greiðslu þann 20. október 2012. 

Fari svo að frumvarp Pírata verði ekki aðeins tekið á dagskrá heldur samþykkt, bæði á þessu þingi og á því næsta, verður breytingum á stjórnar­skrá þannig háttað í fram­tíðinni að Alþingi samþykkir frumvarp til laga um breytingu á stjórnar­skrá og ber það undir atkvæði allra kosninga­bærra manna til samþykktar eða synjunar. Sé frum­varpið samþykkt í þjóðar­atkvæða­greiðslu er það svo staðfest af forseta innan tveggja vikna og tekur þá gildi. 

Píratar og Samfylkingin hafa talað fyrir breytingu í þessum anda á breytingar­ákvæði stjórnar­skrárinnar í viðræðum um þinglok undan­farna daga. Sjálfstæðis­menn hafa lagst eindregið gegn tillög­unni og jafnframt gegn mála­miðlunar­tillögu Katrínar Jakobs­dóttur, formanns Vinstri grænna, um að sett verði sams konar bráðabirgða­ákvæði í stjórnar­skrá og var í gildi á tíma­bilinu 2013 til 2017. Það ákvæði fól í sér að heimilt væri, á afmörkuðu tímabili, að breyta stjórnar­skránni án þingrofs ef yfir­gnæfandi stuðningur væri við breytingarnar á Alþingi og í þjóðar­atkvæða­greiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár