Helmingur fólks sem sagt var upp með hjálp uppsagnarstyrkja stjórnvalda var endurráðið

Uppsagnar­styrkir sem stjórn­völd greiddu til að hjálpa fyrir­tækjum að segja upp fólki kostuðu 12,2 milljarða króna. Ýmis skilyrði voru sett fyrir styrkjunum. Stjórn­völd hafa enn sem komið er lítið gert til að kanna hvort farið hafi verið eftir þeim.

Ríkisstjórnin kynnti ýmsar aðgerðir til að mæta afleiðingum kórónuveirufaraldursins í apríl 2020.
Rík­is­stjórnin kynnti ýmsar aðgerðir til að mæta afleið­ingum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í apríl 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk fyrirtæki fengu uppsagnar­styrki úr ríkis­sjóði til að segja upp alls 8.194 manns á tíma­bilinu maí 2020 til febrúar 2021. Alls greiddi ríkis­sjóður út 12,2 milljarða króna í uppsagnar­styrki á því tímabili sem þeir stóðu til boða.

Samkvæmt svari Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, við fyrir­spurn Oddnýjar Harðar­dóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, fengu 4.038 einstaklingar greidd laun frá sama launa­greiðanda á meðan að styrkirnir voru greiddir, og næstu sex mánuði eftir að greiðslu þeirra var hætt. Það þýðir að um helmingur þeirra hafi verið endur­ráðinn.

Í svari ráðherrans segir að sú skylda hafi ekki verið lögð á stjórn­völd í þeim lögum sem gerðu uppsagnar­styrkina að veruleika að hafa eftirlit með því hvort starfs­fólk hefði verið endur­ráðið á sömu kjörum og það var á fyrir uppsögn. Það verði að ætla að launa­mennirnir sjálfir, eftir atvikum með stuðningi sinna verkalýðs­félaga, gæti að þeim réttindum. Fjármála- og efnahags­ráðuneytinu er ekki kunnugt um að stjórn­völd hafi fengið til meðferðar mál þar sem endur­ráðningar launa­manna voru ekki í samræmi við lögin, en samkvæmt þeim átti einstaklingur eða lögaðili sem bryti af sér „af ásetningi eða stór­felldu gáleysi gegn lögunum sæta sektum eða fangelsi allt að sex árum nema brotin teljist minni­háttar.“

Endurákvarðanir upp á tæpa 210 milljónir

Stjórn­völd settu ýmis skilyrði fyrir stuðningnum. Meðal annars þurfti viðkomandi fyrirtæki að hafa orðið fyrir að minnsta kosti 75 prósent tekju­falli, það mátti ekki vera í vanskilum með opinber gjöld, máttu ekki hafa tekið ákvörðun um úthlutun arðs eftir 15. mars 2020, lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa, kaup eigin hluta, innt af hendi aðra greiðslu til eiganda á grund­velli eignar­aðildar hans, greitt óumsaminn kaupauka, greitt af víkjandi láni fyrir gjalddaga eða veitt eiganda eða aðila nákomnum eiganda lán eða annað fjár­framlag sem ekki varðaði öflun, tryggingu eða viðhald rekstrar­tekna. Jafnframt var kveðið á um að umsækjandi skuld­byndi sig til að gera enga framan­greinda ráðstöfun fyrr en fjár­stuðningurinn hefði að fullu verið tekju­færður eða endur­greiddur.

Þessi skilyrði eru hins vegar þess eðlis að þau var ekki unnt að staðreyna fyrr en eftir á og því hefur ekki verið hægt að skoða hvort farið hefur verið eftir þeim. Þá byggðu upplýsingar um tekjufall að mestu á tölum frá umsækjendunum sjálfum.

Í svari ráðherrans við fyrir­spurn Oddnýjar segir að á árinu 2021 hafi farið fram endur­ákvarðanir á stuðningi hjá 70 rekstrar­aðilum upp á tæplega 210 milljónir króna. Öll þau tilvik hafi verið þannig að „tilgreindir höfðu verið eigendur eða aðrir þeir sem áttu að reikna sér endur­gjald vegna starfa í þágu rekstrarins og féllu því ekki undir lögin um stuðning vegna uppsagna.“

Gert er ráð fyrir að síðla á þessu ári og á því næsta verði gerðar ýmsar samanburðar­keyrslur hjá Skattinum í því skyni að athuga hvort ákvarðaður stuðningur sýnist réttur. „Þetta verður ekki gert fyrr en viðeigandi gögn liggja fyrir sem hægt er að byggja á og meta, m.a. vegna arðgreiðslna. Jafnframt þarf að athuga hvort tekju­færsla stuðningsins er með réttum hætti en hún getur spannað fimm rekstrarár. Þessi aðferða­fræði kallaði á það að setja þurfti upp nýja reiti í skatt­framtölum rekstrar­aðila til að skapa möguleika á því að halda utan um þetta frá ári til árs.“

Eign hluthafa varin

Þegar úrræðið var kynnt af ríkis­stjórninni, 28. apríl 2020, var tilgangur þess sagður vera sá að veita ákveðnum fyr­ir­tækj­um, sem hefðu orðið fyrir miklu tekju­tapi, styrki til að eyða ráðn­ing­ar­sam­böndum við starfs­fólk sitt. Þegar áformin voru kynnt lá ekk­ert frum­varp fyrir til að gera þau að lög­um, ekk­ert kostn­að­ar­mat hafði verið gert opin­bert og engin kynn­ing á áformunum hafði átt sér stað meðal þing­flokka. Fyr­ir­tæki hófu að segja fólki upp strax í kjöl­far­ið, og áður en nýr mán­uðum hæf­ist nokkrum dögum síð­ar.

Frum­varp var svo lagt fram um miðjan maí mánuð 2020 og kostn­að­ar­mat kynnt sam­hliða. Það gerði ráð fyrir því að rík­is­sjóður myndi greiða fyr­ir­tækjum sem upp­fylltu sett skil­yrði alls 27 millj­arða króna í styrki til að hjálpa þeim að segja upp fólki. Yfir­lýst mark­mið var að draga úr fjölda­gjald­þrotum og tryggja rétt­indi launa­fólks, en styrkirnir stóðu þeim fyr­ir­tækjum sem höfðu orðið fyrir að minnsta kosti 75 pró­sent tekju­tapi til boða. Hlið­ar­á­hrif voru að eign hlut­hafa er var­in.

Lögin skyld­uðu opin­bera aðila til að birta yfir­lit yfir þau fyr­ir­tæki sem fengu upp­sagn­ar­styrki. Sá listi var birtur á heima­síðu Skatts­ins. Hann var síð­ast upp­færður í febr­úar og nær því ekki yfir allar greiðslur sem greiddar voru út. Þorri þeirra var þó greiddur úr í fyrra – heild­ar­um­fang útgreiddra styrkja fór yfir tíu millj­arða króna í októ­ber 2020 og þeir skriðu yfir 12 millj­arða í febr­úar 2021 – þannig að listi Skatts­ins veitir ágætt yfir­lit yfir stærstu þiggj­endur styrkj­anna.

Icelandair Group og tengd félög fengu langmest

Alls fengu fyr­ir­tæki tengd Icelandair Group 4,7 millj­arða króna í styrki, eða um 39 pró­sent allra veittra styrkja. Þar mun­aði mestu um Icelandair Group sjálft sem fékk 3,7 millj­arða króna til að segja upp alls 1.918 manns. Sá aðili sem fékk næst hæstu upp­hæð­ina í upp­sagn­ar­styrki er Flug­leiða­hót­el, sem voru í 25 pró­sent eigu Icelandair Group fram á árið 2021. Þangað hafa farið um 627 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði. Iceland Travel, ferða­skrif­stofa í eigu Icelandair Group fékk 151 milljón króna í upp­sagn­ar­styrki, Bíla­leiga Flug­leiða fékk 139 millj­ónir króna og Flug­fé­lag Íslands, sem er var rennt saman við Icelandair Group í fyrra, fékk 83 millj­ónir króna.

Bláa Lónið fékk þriðju hæstu ein­­stöku upp­­sagn­­ar­­styrk­ina, alls um 603 milljón króna vegna upp­­­sagna 550 manns. Fjórða fyr­ir­tækið sem fékk upp­­sagn­­ar­­styrki yfir hálfri milljón króna var Íslands­­hótel hf., sem fékk alls 593 millj­­ónir króna fyrir að segja upp alls 468 starfs­­mönn­­um.

Hótel eru raunar fyr­ir­­ferða­­mikil á list­an­­um. Centerhotels fékk 266 millj­­ónir króna, Kea­hótel 203 millj­­ónir króna, Foss­hótel 155 millj­­ónir króna og Hótel Saga 114 millj­­ónir króna.

Rút­u­­fyr­ir­tækið Allra­handa, sem rekur vöru­­merkin Grey Line og Airport Express, fékk 191 millj­­ónir króna og tvö félög tengd Kynn­is­­ferð­um, sem reka vöru­­merkið Reykjavik Excursions, fengu sam­tals um 193 millj­­ónir króna.

Önnur fyr­ir­tæki á list­­anum sem fengu yfir 100 millj­­ónir króna eru öll tengd ferða­­þjón­­ustu með einum eða öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár