Kostaði 314,5 milljónir króna að láta tvo yfirmenn hjá Högum hætta störfum

Stærsta smásölu­fyrirtæki landsins, sem rekur meðal annars Bónus, hagnaðist um 3,1 milljarð króna á síðasta rekstrarári. Enginn arður verður greiddur út vegna aðstæðna í efnahags­lífinu.

Bónus er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni og stærsta dagvöruverslunarkeðja landsins.
Bónus er krúnu­djá­snið í Haga­sam­stæð­unni og stærsta dag­vöru­versl­un­ar­keðja lands­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Hagar, stærsta smásölu­fyrirtæki á Íslandi, hagnaðist um tæpa 3,1 milljarða króna á síðasta rekstrarári sínu, sem lauk 1. mars síðastliðinn. Félagið hefur ákveðið að víkja frá arðgreiðslu­stefnu sinni og greiða ekki út arð þrátt fyrir hagnað og er það rökstutt með vísan við yfir­standandi ástand vegna COVID-19 faraldursins.

Breyting á framkvæmda­stjórn Haga, sem greint var frá í lok síðasta mánaðar, kostar félagið 314,5 milljónir króna. Í þeirri breytingu felst að Finnur Árnason, sem hefur verið forstjóri félagsins um árabil, og Guðmundur Marteinsson, framkvæmda­stjóri Bónus, láta af störfum að eigin ósk. Þegar hefur verið greint frá því að Finnur Oddsson, sem hefur verið forstjóri Origo, taki við starfi Finns í sumar en eftir­maður Guðmundar hefur enn ekki verið ráðinn.

Söluaukning milli ára

Hagar reka 46 versl­­anir innan fimm smá­­sölu­­fyr­ir­tækja og tveggja vöru­húsa. Þá rekur félagið 28 Olís­­stöðvar um land allt auk 41 ÓB-­­stöð. Meg­in­­starf­­semi Haga er á sviði mat­vöru en innan þess eru tvær af stærstu versl­un­­ar­keðjum lands­ins, Bónus og Hag­­kaup, svo og stoðstarf­­semi á sviði inn­­­kaupa og dreif­ing­­ar. alls nam vörusala Haga á síðasta rekstrarári 116,4 milljörðum króna og framlegð tíma­bilsins var 22,2 prósent.

Veltan jókst úr 84,2 milljörðum króna, eða alls um 32,2 milljarða króna milli ára, og var sú sölu­aukningu að mestu til komin vegna áhrifa af Olís sem bættist við samstæðunni. Án áhrifa Olís var sölu­aukningin 4,5 prósent.

EBITDA-hagnaður – hagnaður fyrir afskriftir, fjármagns­gjöld og skatta — var 8,9 milljarðar króna, og handbært fé nam 2,2 milljörðum króna. Eigið fé félagsins var 24,6 milljarðar króna í lok tíma­bilsins og eiginfjár­hlutfallið 39,2 prósent.

Ætla ekki að greiða arð

Arðgreiðslu­stefna Haga er þannig að stefnt er á að félagið greiði hluthöfum sínum árlegan arð, sem nemi að lágmarki 5 prósent hagnaðar næst­liðins rekstrarárs. Að kaupir félagið eigin bréf og fasteignir á hagstæðu verði sem nýtast félaginu í starfsemi sinni.

Þrátt fyrir þessa yfirlýstu stefnu hefur stjórn Haga ákveðið að leggja til við aðalfund, sem fer fram þann 9. júní næst­komandi., að ekki verði greiddur arður til hluthafa vegna reiknings­ársins 2019/20. Ástæða þess að vikið er frá arðgreiðslu­stefnu félagsins er vegna þeirrar „óvissu sem nú ríkir um efnahags­horfur í kjölfar COVID-19 faraldursins.“

Endurgreiddu 36 milljónir

Stjórn Haga ákvað í 8. maí síðastliðinn að end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun þann kostnað sem féll til vegna starfs­fólks dótt­ur­fyr­ir­tækja Haga sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina í apr­íl­mán­uði, en félagið hafði verið gagn­rýnt fyrir að kaupa eigin hluta­bréf og færa þannig fé til hlut­hafa sinna á sama tíma og félagið nýtir hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda.

Starfs­menn Zöru, Úti­lífs og veit­inga­sölu Olís höfðu verið í skertu starfs­hlut­falli, en því starfs­fólki var boðið að fara aftur í það starfs­hlut­fall sem áður var, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

„Á þessum tíma­punkti er betur hægt að sjá þau áhrif sem far­ald­ur­inn mun hafa á félagið í heild og eru þau minni en ótt­ast var í upp­hafi. Nú telst því rétt að end­ur­greiða þá fjár­hæð sem Vinnu­mála­stofnun greiddi til starfs­fólks Haga í apr­íl­mán­uð­i,“ sagði í til­kynn­ingu félags­ins, en þar kemur fram að end­ur­greiðslan nemi um 36 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár