Segir samstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins „óhugsandi“

Svandís Svavars­dóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykja­víkur­kjördæmi suður, segir alvanalegt að miðju­flokkar setji af stað orðróm um að vinstri­flokkurinn á hverjum tíma ætli í samstarf við Sjálfstæðis­flokkinn.

Svandís Svavars­dóttir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna og oddviti flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi suður, segir að stjórnar­samstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðis­flokksins sé „óhugsandi við núverandi kringum­stæður“. Alvanalegt sé að miðju­flokkar setji af stað orðróm um að vinstri­flokkurinn á hverjum tíma ætli í samstarf við Sjálfstæðis­flokkinn.

„Slík herferð er nú farin af stað í þessum anda. Vera kann að samstarf af þessu tagi hafi einhvern tíma verið á dagskrá hér fyrr á árum. Hins vegar er það óhugsandi við núverandi kringum­stæður eftir aðdrag­anda kosninganna, uppljóstranirnar úr Panama-skjölunum og viðbrögð forystu­manna stjórnar­flokkanna. Þetta hljóta allir að sjá,“ skrifar Svandís á Facebook-síðu sinni. Þetta er í takt við ummæli Steingríms J. Sigfús­sonar, fyrrum formanns Vinstri grænna, frá því í gær um að sú saga að Sjálfstæðis­flokkurinn og Vinstri græn ætli í stjórnar­samstarf sé „uppspuni og lygi frá rótum“. 

Forsagan er sú að Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, fullyrti á Facebook að Stein­grímur J. Sigfússon, fyrr­verandi formaður Vinstri grænna, hefði „ljóstrað upp um það í Grímsey að fyrir­hugað sé að mynda stjórn VG og Sjálfstæðis­flokks“. Deildi hann grein þar sem þetta er staðhæft á Veggnum.is, síðu sem haldið er úti af sjálfstæðis­manninum Viðari Garðars­syni, sem stofnað hefur stuðnings­síður fyrir Sigmund Davíð og beitt sér fyrir hagsmunum stór­iðjunnar í gegnum Facebook-síðuna Auðlindirnar okkar. 

Benedikt Jóhannesson segir í samtali við Stundina að hann hafi gert ráð fyrir að rétt væri eftir haft Steingrími á vefnum en ekki kannað sérstak­lega hver stæði á bak við síðuna. Hann rengi ekki þau orð Steingríms að frásögnin eigi sér ekki stoð í raun­veru­leikanum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár