Trump hættir við fundinn með Kim Jong-un

Bandaríkja­forseti hefur látið leiðtoga Norður-Kóreu vita að ekkert verði af fyrir­huguðum fundi ríkjanna tveggja.

Donald Trump
Donald Trump Mynd: EPA

Donald Trump forseti Banda­ríkjanna hefur látið leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-un, vita að ekki muni verða af fyrir­huguðum fundi þeirra sem átti að fara fram þann 12. júní næst­komandi.

Þetta kemur fram í frétt The New York Times í dag.

Hvíta húsið tilkynnti í byrjun mars að Kim Jong-un hefði átt frum­kvæði að því að bjóða Trump til við­ræðn­a. Umræðu­efnið á fund­inum átti að vera kjarn­orku­á­ætlun Norð­ur­-Kóreu og til­raunir með lang­drægar flaug­ar, sem hafa verið harð­lega gagn­rýndar af alþjóða­sam­fé­lag­inu og er landið nú beitt hörðum efna­hags­þving­unum vegna þeirra.

Meðal þess sem efna­hags­þving­an­irnar ná til eru víð­tækar aðgerðir til að sporna við inn­flutn­ingi á olíu. Þessar aðgerðir hafa haft lam­andi áhrif á efna­hags­lífið í Norð­ur­-Kóreu. Þó það telj­ist ekki þró­að, á vest­rænan mæli­kvarða, þá er landið háð olíu eins og önnur lönd, þegar kemur að fram­leiðslu og almennu gang­verki í efna­hags­líf­i.

Í bréfi Trumps, sem dagsett er síðastliðinn fimmtudag, greinir hann Kim Jong-un frá þeirri ákvörðun að hætta við fundinn en ástæðan sem Trump gefur í bréfinu eru yfir­lýsingar hins síðarnefnda og stjórn­valda þar í landi varðandi vara­forseta Banda­ríkjanna þar sem hann var sagður fávís og heimskur.

Þó greinir Trump frá því, í þessu sama bréfi, að hann hlakki til að hitta Kim Jong-un einhvern tímann í fram­tíðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár