Hæstiréttur Danmörku fellir dóm í markaðsmisnotkunarmáli

Fyrr­verandi stjórnar­formaður og framkvæmda­stjóri Parken Sport & Enterta­in­ment voru í morgun dæmdir í eins og hálfs árs fangelsi hvor fyrir markaðs­misnotkun á árinu 2008. Ávinningur þeirra af misnotk­un­inni var auk þess gerður upptækur.

Flemming Østergaard, sem oftast er kallaður Don Ø, var stjórnarformaður Parken, sem á samnefndar leikvang og stærsta knattspyrnulið Kaupmannahafnar.
Flemming Østergaard, sem oft­ast er kall­aður Don Ø, var stjórn­ar­for­maður Parken, sem á sam­nefndar leik­vang og stærsta knatt­spyrnu­lið Kaup­manna­hafnar. Mynd: Claus Bech / Scanpix

Hæstiréttur Danmerkur dæmdi í morgun fyrr­verandi stjórnar­formann og framkvæmda­stjóra félagsins Parken Sport & Entertainment, sem rekur meðal annars leik­völlinn Parken í Kaupmanna­höfn og knattspyrnu­liðið FC København, í eins og hálfs árs fangelsi hvor fyrir markaðs­misnotkun. Auk þess var ávinningur þeirra að markaðs­misnotkuninni gerður upptækur. Frá þessu er greint á vef Børsen.

Parken Sport & Entertainment var gefið að hafa átt viðskipti með eigin bréf á árunum 2007 og 2008 og þar með orðið uppvíst að markaðs­misnotkun. Félagið keypti mikið af eigin bréfum á fyrstu níu mánuðum ársins 2008 og kom þannig í veg fyrir að virði þeirra félli.

Þeir sem dæmdir voru í málinu voru Flemming Østergaard, sem var árum saman stjórnar­formaður Parken Sport & Entertainment, og Jörgen Glistrup, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri félagsins. Danska fjármála­eftirlitið lauk rannsókn sinni í ágúst 2010 og kærði málið í kjölfarið til efnahags­brota­deildar.

Ávinningur gerður upptækur

Hæstiréttur felldi sinn dóm í málinu í morgun. Þeir Østergaard, sem oftast er kallaður Don Ø, og Glistrup, voru dæmdir í eins og hálfs árs fangelsi hvor. Auk þess voru gerðar upptækar níu milljónir danskra króna, um 145 milljónir íslenskra króna, hjá Østergaard. Yfirvöld gerðu upptækar 800 þúsund danskar krónur hjá Glistrup, um 13 milljónir íslenskra króna. Fjár­munirnir eru áætlaður ávinningur þeirra tveggja af hlutabréfa­eign sinni í Parken Sport & Entertainment sem rekja mátti til markaðs­misnotkunarinnar. Auk þeirra var miðlari dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa tekið þátt í verknaðinum.

Hæstiréttur þyngdi umtals­vert dóm undir­réttar í málinu sem féll í september 2015. Þar höfðu Østergaard og Glistrup verið sýknaður af veiga­mesta hluta ákærunnar og dæmdir í fjögurra og sex mánaða fangelsi.

Markaðsmisnotkun á Íslandi

Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú hefur runnið inn í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, hefur rann­sakað mark­aðs­mis­notkun gömlu íslensku bank­anna þriggja: Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans, um margra ára skeið. Þegar hefur verið ákært fyrir brot innan þeirra allra, og dæmt í alls­herj­ar­mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­um Kaup­þings og Lands­bank­ans.

Hjá Lands­bank­anum var Sig­ur­jón Þ. Árna­son, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans, Ívar Guð­jóns­son, fyrrum for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, og Júl­íus S. Heið­ars­son, sem var sér­fræð­ingur í sömu deild, og Sindri Sveins­son, sem starf­aði við eigin fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­an­um, allir dæmdir sekir um mark­aðs­mis­notkun í Hæsta­rétti í febr­úar 2016. Sig­ur­jón hlaut eins árs og sex mán­aða fang­els­is­dóm. Ívar var dæmdur í tveggja ára fang­elsi en Júl­íus og Sindri hlutu eins árs fang­els­is­dóma.

Menn­irnir fjórir voru ákærðir fyr­ir mark­aðs­mis­­­not­k­un á tíma­bil­inu 1. nóv­­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Sam­kvæmt ákæru áttu þeir að hafa hand­­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­­bank­an­um og með því blekkt „fjár­­­festa, kröf­u­hafa, stjórn­­völd og sam­­fé­lagið í heild.“

Hæsti­réttur Íslands dæmdi í október 2016 alla níu sak­born­ing­anna í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings seka. Refs­ing sex sak­born­inga var ákveðin sú sama og í hér­aði, refs­ing eins var þyngd en tveimur var ekki gerð sér­stök refs­ing.

Ingólfur Helga­­son hlaut þyngstan dóm í mál­inu, fjög­­urra og hálfs árs fang­elsi. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi Sig­munds­son tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær Björns­son og Pétur Krist­inn Guð­mars­son fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm. Sig­­urður Ein­­ar­s­­son fékk eins árs hegn­ing­­ar­auka við þann fjög­­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Than­i-­­mál­in­u. Magn­úsi Guð­munds­syni og Björk Þór­ar­ins­dóttur var ekki gerð sér­stök refs­ing fyrir þau brot sem þau voru dæmd fyr­ir.

Refs­ing Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, var þyngd og honum gerður sex mán­aða hegn­ing­ar­auki.

Fyrir um ári síðan voru fimm fyrr­ver­andi starfs­menn Glitnis ákærðir fyr­ir­ stór­fellda mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik. Með útgáfu ákærunnar var það stað­fest að rök­studdur grunur er um að allir stóru bank­arnir þrír hafi stund­að um­fangs­mikla mark­aðs­mis­notkun fyrir hrun.

Þeir fimm sem voru ákærðir eru Lárus Welding, fyrr­ver­and­i ­for­stjóri Glitn­is, Jóhannes Bald­urs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri ­fyr­ir­tækja­sviðs Glitn­is, og þrír fyrr­ver­andi miðl­ar­ar, þeir Jónas Guð­munds­son, Val­garð Már Val­garðs­son og Pétur Jón­as­son. Aðal­meðferð málsins hefur enn ekki farið fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár