Sigurjón Þ. Árnason dæmdur fyrir markaðsmisnotkun í Hæstarétti

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum banka­stjóri Lands­bankans, Ívar Guðjónsson, fyrrum forstöðu­maður eigin fjár­festinga Lands­bankans, og Júlíus S. Heiðarsson, sem var sérfræðingur í sömu deild, og Sindri Sveinsson, sem starfaði við eigin fjár­festingar hjá Lands­bankanum, voru allir dæmdir sekir um markaðs­misnotkun í Hæstarétti í dag. Sigurjón hlaut eins árs og sex mánaða fangelsisdóm. Ívar var dæmdur í tveggja ára fangelsi en Júlíus og Sindri hlutu eins árs fangelsis­dóma. RÚV greinir frá.

Mennirnir fjórir voru ákærðir fyr­ir markaðsmis­notk­un á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Samkvæmt ákæru áttu þeir að hafa hand­stýrt verðmynd­un hluta­bréfa í Lands­bank­an­um og með því blekkt „fjár­festa, kröfu­hafa, stjórn­völd og sam­fé­lagið í heild.“

Héraðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri niður­stöðu 19. nóvember 2014 að þrír mannanna hefðu gerst sekir um markaðs­misnotkun. Sigurjón var þar dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar voru níu mánuðir skilorðs­bundnir. Ívar og Júlíus voru dæmdir í níu mánaða fangelsi, þar af eru sex mánuðir skilorðs­bundnir. Sindri var hins vegar sýknaður í héraði.

Ákærðu neituðu allir alfarið sök í málinu. Sigurjón Þ . Árnason hefur sagt opinber­lega að það séu mikil „vonbrigði“ hvernig málið sé sett fram. Fyrst og fremst vegna þess í að því hafi öllu verið snúið á haus.

Hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs dóm

Í október 2015 var Sigurjón dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti vegna Ímon-málsins svokallaða. Sá dómur sem hann hlaut í dag bætist við þann dóm. Elín Sigfús­dóttir, fyrrum framkvæmda­stjóri fyrirtækja­sviðs bankans, var dæmd í 18 mánaða fangelsi í því máli og Steinþór Gunnarsson, fyrrum forstöðu­maður verðbréfa­miðlunar bankans, var dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi.

Í málinu snéri Hæstiréttur við dómi héraðs­dóms yfir Sigurjóni og Elínu, sem voru bæði sýknuð þar. Steinþór hlaut níu mánaða dóm í héraði en hluti hans var þá skilorðs­bundinn. Sá dómur var kveðinn upp 5. júní 2014. Í dómi Hæstaréttar segir m.a.: "Brotin [...] beindust í senn að öllum almenningi og fjármála­markaðinum hér á landi og verður tjónið, sem af þeim hlaust, ekki metið til fjár".

Imon-málið snérist um sölu Lands­bank­ans á eig­in bréf­um til tveggja eign­ar­halds­fé­laga í lok sept­em­ber og byrj­un októ­ber árið 2008. Fé­lög­in tvö voru Imon ehf. og Aza­lea Resources Ltd. Lands­bankinn fjár­magnaði kaupin að fullu og taldi saksóknari viðskiptin vera markaðs­misnotkun og umboðs­svik. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að Sigurjón sé fundinn sekur um að hafa framið umboðs­svik og markaðs­misnotkun. Elín var fundin sek um umboðs­svik og hlutdeild í markaðsnisnotkun og Steinþór var sakfelldur fyrir markaðs­misnotkun.

Mála­rekstri gegn Sigurjóni er ekki að öllu leyti lokið. Hann var, ásamt Elínu Sigfús­dóttur, sýknaður í héraðs­dómi vegna ákæru fyrir umboðs­svik upp á 13,6 milljarða króna í október 2014. Þeim sýknudómi hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár