Segir Vilhjálm Birgisson betur að sér í lýðskrumi en hann sjálfur

Þorsteinn Víglundsson segist stoltur bera lýðskrums­titil ef í honum felist að tala fyrir jafn augljósum hagsmunum Íslendinga og þeim að fá sem hæst verð fyrir raforku til stóriðju.

Vilhjálmur Birgisson og Þorsteinn Víglundsson
Vil­hjálmur Birg­is­son og Þor­steinn Víglunds­son Mynd: Samsett

Þorsteinn Víglundsson, vara­formaður Viðreisnar, segir það augljósa hagsmuni Íslendinga að fá sem hæst verð fyrir þá raforku sem framleidd er hérlendis. Það sé sennilega jafn ljós staðreynd og að Ísland hafi ríka hagsmuni af því að fá sem hæst verð fyrir sjávar­afurðir. Hann segir einnig að Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs­félags Akraness, sé betur að sér í lýðskrumi en hann sjálfur.

Tilefnið er það að Vilhjálmur ásakaði Þorstein og Viðreisn um lýðskrum í grein sem birtist á Miðjunni í gær vegna þess að Þorsteinn, sem er fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Samáls og Samtaka atvinnu­lífsins, hafi skrifað grein árið 2011 þar sem fram hafi komið að stóriðja hafi staðið undir arðsemi Lands­virkjunar.

Vilhjálmur taldi það lýðskrum að Þorsteinn hefði sagt slíkt þá en væri nú þeirrar skoðunar að Lands­virkjun ætti að fá sem mest fyrir þá raforku sem fyrir­tækið fram­leiðir. Vilhjálmur hefur ítrekað lýst því yfir undan­farið að hann vilji að Lands­virkjun niður­greiði störf í stóriðju með því að selja slíkri raforku undir markaðs­virði. Annars sé atvinnu­öryggi félags­manna hans, sem starfa við stóriðju­verksmiðjur Elkem og Norðuráls á Grundar­tanga, ógnað.

Stoltur af lýðskrumi ef í því felst að tala fyrir hagsmunum

Þorsteinn segir í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag að hann skilji ekki hvernig sú einfalda yfir­lýsing hans sem Vilhjálmur vísi til feli í sér lýðskrum „en játa um leið að Vilhjálmur er auðvitað talsvert betur að sér í þeim fræðum en ég.“

Þorsteinn segir ekkert í fyrri skrifum sínum ganga gegn nýlegum yfir­lýsingum sínum um að Íslendingar hafi hagsmuni af því að fá sem hæst verð fyrir raforku til stóriðju. „Stóriðjan hefur staðið undir arðsemi Lands­virkjunar undan­farna áratugi. Það er augljóst. Meira en 80% af raforku­sölu Lands­virkjunar er til stóriðju og fyrir­tækið með þeim arðbærustu hér á landi. Eftir sem áður eru það augljósir hagsmunir okkar Íslendinga að fyrir­tækið sæki eins hátt verð fyrir vöru sína og kaupendur eru reiðu­búnir að greiða. Ég hef ekki miklar mætur á lýðskrumi en ef það er lýðskrum að mati Vilhjálms Birgis­sonar að ég tali fyrir jafn augljósum hagsmunum okkar Íslendinga þá ber ég þann titil stoltur þetta skiptið.“

Vilhjálmur deildi skrifum sínum af Miðjunni í gær á Facebook og í stöðu­uppfærslu sem fylgdi með kallaði hann eftir því að Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, formaður Viðreisnar, útskýrði fyrir „starfs­mönnum álversins í Straumsvík sem er nú í hennar heima­byggð og kjördæmi að frá því að nýr raforku­samningur við Lands­virkjunar var gerður í lok árs 2010 hefur fyrir­tækið verið rekið með tapi öll árin að undan­skildu einu ári eða sem nemur 15 milljarða tapi á 7 ára tímabili.

Það er þyngra en tárum taki hvernig stjórn­málamenn geta hagað sér, en eitt er víst að stefnt er markvisst að því að ógna atvinnu­öryggi og lífs­afkomu þeirra sem tengjast orku­frekum iðnaði með græðgisvæðingu Lands­virkjunar.“

Auðlindarentan myndi lenda hjá erlendum stórfyrirtækjum

Í kjölfar þess að Vilhjálmur hóf opinbera baráttu sína fyrir niður­greiðslu á raforku­verði orku­fyrirtækis í ríkiseigu til stóriðju skrifaði Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar, grein á Kjarnann til að svara Vilhjálmi. Þar sagði hann að verðið sem t.d. Elkem greiði sé enn undir meðal­kostnaðar­verði og verulea undir kostnaðar­verði síðustu virkjana Lands­virkjunar.

Það sjón­ar­mið að erlendum stór­fyr­ir­tækjum væri veitt raf­orka á óeðli­lega lágu verði, líkt og Vilhjálmur væri að kalla eftir, fæli í raun í sér kröfu um afsal þjóð­ar­innar á fullum afrakstri orku­auð­linda Íslands. „Afleið­ingin af því yrði sú að auð­lind­arentan myndi lenda utan land­stein­anna. Sem betur fer er rekstur þeirra öfl­ugu erlendu stór­fyr­ir­tækja sem hafa hér starf­semi með þeim hætti að hann þolir að greiða Íslend­ingum alþjóð­legt mark­aðs­verð á raf­orku[...]

Það er því engin ástæða fyrir aðila, sem standa utan samn­ings­sam­bands fyr­ir­tækj­anna, að ger­ast hags­muna­gæslu­menn alþjóð­legra stór­iðju­fyr­ir­tækja á opin­berum vett­vangi í samn­inga­við­ræðum við Lands­virkjun um raf­orku­verð. Þau eru full­fær um að gæta sinna hags­muna sjálf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár