Vill að Landsvirkjun niðurgreiði störf í áliðnaðinum

Formaður Verkalýðs­félags Akraness óttast um starfs­öryggi félags­manna sinna vegna samninga Lands­virkjunar við Elkem Ísland á Grundar­tanga og Norðurál.

Vilhjálmur Birgisson
Vil­hjálmur Birg­is­son

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs­félags Akraness, telur orku­stefnu Lands­virkjunar byggja á græðgi og einokun sem ógni lífs­viðurværi fólks á Vestur­landi og sérstak­lega Akurnesingum og í nærsveitum. Frá þessu greindi hann í stöðu­uppfærslu á Facebook-síðu sinni í gær.

Hann segir að með hækkun raforku­verðs og vegna nýrra raforku­samninga Lands­virkjunar við Elkem Ísland á Grundar­tanga og Norðurál þá sé atvinnu­öryggi félags­manna hans verulega ógnað.

„Það er morgun­ljóst í mínum huga að atvinnu­öryggi minna félags­manna er ógnað verulega í ljósi þess að raforkan er að hækka bæði hjá Elkem og Norðuráli og það á sama tíma og verð á þeirra afurðum hefur lækkað mikið en nú er álverið t.d. í einungis rétt rúmum 1700 dollurum fyrir tonnið sem er sögulegu lágt. Nýr samningur tók gildi hjá Elkem 1. apríl og mun raforku­verð hækka upp undir 1,3 milljörðum hjá Elkem á ári sem þýðir að fyrir­tækið mun greiða um 4,5 milljarða á ári fyrir raforkuna eftir hækkun. Rétt er að benda sérstak­lega á að þessi hækkun uppá 1,3 miljarða er langtum meira en meðaltals­hagnaður fyrir­tækisins hefur verið á síðustu árum, sem er um 500 milljónir,“ skrifar Vilhjálmur.

Óttast að Elkem hætti starfsemi hér á landi

Hann telur jafnframt að raforku­samningurinn við Elkem muni í besta falli valda stór­felldum niður­skurði með tilheyrandi uppsögnum og hamförum fyrir félags­menn hans sem starfa hjá fyrir­tækinu. „Ég reyndar óttast innilega að innan ekki langs tíma muni eigendur Elkem taka ákvörðun um að loka og hætta starfsemi hér á landi. Enda ljóst að þessi gríðar­lega raforku­hækkun uppá 1,3 milljarð á ári mun kippa öllum rekstrar­forsendum undan fyrir­tækinu.“

Vilhjálmur fjallar um afkomu­tölur Lands­virkjunar í stöðu­uppfærslu sinni. „Það er óhætt að segja að afkomu­tölur hjá Lands­virkjun fyrstu 6 mánuðina séu glæsilegar, en hagnaður nam 8,4 milljörðum á fyrstu 6 mánuðum þessa árs og á sama tíma hefur Lands­virkjun einnig greitt niður skuldir fyrir rúma 15 milljarða. Það stefnir semsagt í að árshagnaður Lands­virkjunar verði 17 milljarðar og á sama tíma og þessi mikli hagnaður á sér stað greiðir Lands­virkjun einnig niður skuldir fyrir 15 milljarða.“

Fyrirtækin á Grundartanga lífæð og fjöregg þeirra Vestlendinga

Lands­virkjun og Norð­urál Grund­ar­tangi ehf. náðu sam­komu­lagi um að end­ur­nýja raf­orku­samn­ing fyr­ir­tækj­anna fyrir 161 MW í maí árið 2016. End­ur­nýj­aður samn­ingur var tengdur við mark­aðs­verð raf­orku á Nord Pool raf­orku­mark­aðnum og kemur það í stað álverðsteng­ingar í gild­andi samn­ingi.

Hinn end­ur­nýj­aði samn­ingur er til fjög­urra ára og hljóðar upp á 161 MW, eins og áður segir, sem er nærri þriðj­ungur af orku­þörf álvers Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga. End­ur­nýj­aður samn­ingur tekur gildi í nóv­em­ber 2019 og gildir til loka árs 2023. Núgild­andi samn­ingur verður áfram í gildi til loka októ­ber næst­komandi.

Fram kom í fréttum árið 2016 að deila Lands­virkj­unar og Norð­ur­áls hefði staðið í nokkurn tíma. Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, gagn­rýndi Norð­urál harð­lega fyrir að hafa reynt að beita öllum mögu­legum með­ulum til að halda orku­verði til sín sem lægst­u.

Vilhjálmur fjallar um þennan raforku­samning Norðuráls og Lands­virkjunar, í stöðu­uppfærslu sinni, sem mun taka gildi þann 1. nóvember næst­komandi. „Mun þessi eini samningur hækka samkvæmt mínum útreikningum raforku­verðið til Norðuráls um 4 milljarða á ári, til viðbótar þeim 12 til 15 milljörðum sem fyrir­tækið er að greiða í dag. Það er ljóst að 4 milljarða hækkun á raforku­verði á ári, mun kalla á gríðar­lega hagræðingu og niður­skurð og ég óttast innilega að það muni bitna á hagsmunum og lífs­viðurværi minna félags­manna sem og á samdrætti í verslun og þjónustu hér á Vestur­landi, enda eru fyrir­tækin á Grundar­tanga lífæð og fjöregg okkar Vestlendinga,“ skrifar hann.

Unnið markvisst að því að slátra fyrirtækjum í orkufrekum iðnaði

Vilhjálmur segist ekki fara í grafgötur um að hann telji að unnið sé markvisst að því að slátra fyrir­tækjum í orku­frekum iðnaði með þessum rekstrar­hækkunum í kringum raforkuna og muni það bitna á lífs­viðurværi þúsunda fjöl­skyldna.

„Maður hlýtur að spyrja sig hvort Lands­virkjun og stjórn­völd séu markvisst á þeirri vegferð að kippa öllum rekstrar­forsendum undan fyrir­tækjum í orku­frekum iðnaði og segja svo eftir einhver ár þegar fyrir­tækin gefast upp eitt af öðru og tilkynna um lokun að nú verði að leggja sæstreng til Íslands í hvelli því það sé til svo mikið af umfram­orku ónotað í kerfinu.“

Áhyggjur lúta ekki að eigendum fyrirtækjanna

Vilhjálmur tekur það fram að þessar ábendingar og áhyggjur hans lúti að hagsmunum félags­manna hans en alls ekki að eigendum þessara fyrir­tækja. Hann segir að sagan kenni fólki það að þegar svo gríðar­legur kostnaðar­auki er lagður á fyrirtæki þá muni það bitna á atvinnu­öryggi, ekki bara hjá þeim starfs­mönnum sem starfa beint hjá þessum fyrir­tækjum heldur einnig hjá þeim hundruðum starfs­manna sem starfa hjá verktökum og þjónustu­fyrirtækjum og þjónusta fyrirtæki í orku­frekum iðnaði.

„Að sjálfsögðu er ekkert eðlilegra en að orku­frekur iðnaður greiði sann­gjarnt verð fyrir orkuna öllu samfélaginu til góða, en það má hins vegar ekki vera þannig að Lands­virkjun geti í ljósi algerrar einokunar stillt fyrir­tækjum upp með þeim hætti að öll framlegð þeirra sé kippt í burtu sem leiðir til þess að atvinnu­öryggi þúsund starfs­manna í þessum geira er stefnt í voða,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár