Saksóknari fer fram á þriggja ára dóm yfir Björgólfi

Fyrr­verandi formaður bankaráðs Lands­bankans, Björgólfur Guðmundsson, er á meðal níu manns sem er ákærður í fjársvika­máli sem er fyrir frönskum dómstólum. Farið er fram á þriggja ára skilorðs­bundið fangelsi yfir honum.

Saksóknari í Frakk­landi hefur farið fram á þriggja ára skilorðs­bundinn dóm yfir Björgólfi Guðmunds­syni, fyrr­verandi formanni Bankaráðs Lands­banka Íslands, í umfangs­miklu fjársvika­máli. Hann krefst auk þess að Björgólfur greiði 300 þúsund evrur í sekt. Farið er fram á þriggja ára skilorðs­bundið fangelsi yfir tveimur fyrr­verandi framkvæmda­stjórum hjá Lands­banka Íslands í Lúxemborg í málinu og þess krafist að þeir greiði 100 þúsund evrur í sekt. Frá þessu er greint á vef franska blaðsins Les Echos í dag.

Málið er rekið gegn Björgólfi Guð­munds­syni, Gunn­ari Thorodd­sen, fyrr­ver­andi yfir­manni Lands­bank­ans í Lúx­em­borg, og sjö öðrum ein­stak­lingum sem störf­uðu beint eða óbeint fyrir bank­ann. Þeir sem eru ákærðir í mál­inu er gefið að hafa brotið gegn grein í frönskum hegn­ing­ar­lögum sem fjallar um lof­orð um áhættu­laus við­skipti.

Aðal­meðferð í málinu lauk á miðvikudag og hafði þá staðið yfir í 22 daga. Kjarninn greindi frá því í byrjun maí að málið hafi verið í undir­búningi og rannsókn árum saman. Einn þekkt­asti rann­sókn­ar­dóm­ari Frakk­lands, Renaud Van Ruym­beke, rann­sak­aði það og skil­aði nið­ur­stöðu síðla árs 2014. Skömmu síðar voru níu ein­stak­lingar og lög­að­il­inn Lands­bank­inn í Lúx­em­borg ákærðir í mál­inu. Brotin sem um ræðir getaleitt að sér allt að fimm ára fang­els­is­dóma og sekt upp á 375 þús­und evr­ur, um 43,4 millj­ónir króna á gengi dags­ins í dag. Nú er ljóst að saksóknari mun ekki fara fram á hámarks­refsingu.

Keyptu skulda­bréf íslensku bank­anna

Í mál­inu er Lands­bank­anum í Lúx­em­borg, Björgólfi Guð­munds­syni, Gunn­ari Thorodd­sen og sjö öðrum gefið að hafa blekkt um eitt hund­rað aðila á árunum 2006 til 2008. Á meðal ann­arra sem eru ákærðir eru þrír fyrr­ver­andi yfir­menn hjá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg; Dan­inn Torben Bjer­regaard Jen­sen, Sví­inn Olle Lind­fors og Belg­inn Failly Vincent. Flestir þeir aðilar sem telja sig hafa verið blekktir af Lands­bank­anum eru elli­líf­eyr­is­þegar og 22 meint fórn­ar­lömb bank­ans hafa lát­ist frá því að málið kom upp.

Einn þeirra sem telur sig blekktan vegna þess sem kallað er í frönskum fjöl­miðlum svika­mylla Lands­bank­ans er Enrico Maci­as, 78 ára gam­all söngv­ari sem er þjóð­þekktur í Frakk­landi. Í máls­gögnum sem Kjarn­inn hefur undir höndum segir að Macias hafi verið boðið að fá 35 millj­ónir evra að lán til 20 ára og að vext­irnir á lán­inu yrðu 9,69 pró­sent. Hann átti að fá níu millj­ónir evra útgreiddar en afgangur láns­ins yrði settur í fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg sem átti að skila nægj­an­legri ávöxtun til að borga vaxt­ar­kostn­að­inn af lán­inu hið minnsta. Macias var því í raun boðið að losa um níu millj­ónir evra, um einn millj­arð króna, í gengum þann strúktúr sem honum var boð­inn. Á móti þurfti hann hins vegar að setja raun­veru­leg veð í fast­eign­um. Í máls­gögn­unum segir Macias að hann hafi verið blekktur og að Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafi mis­notað umboð sitt til fjár­fest­inga fyrir láns­féð með því t.d. að kaupa skulda­bréf á Lands­bank­ann á Íslandi og Kaup­þing skömmu áður en bank­arnir tveir féllu haustið 2008. Þau skulda­bréf féllu gríð­ar­lega í verði við banka­hrun­ið, enda kröfu­hafaröð breytt og inn­lán gerð að for­gangs­kröf­um. Auk þess er því haldið fram að rangar upp­lýs­ingar hafi verið gefnar um sterka stöðu Lands­banka Íslands.

Virði fast­eigna blásið upp til að hækka lánin

Svika­myllan sem fólkið heldur fram að það hafi verið blekkt til að taka þátt í snýst því um að Lands­bank­inn hafi fjár­fest lánin sem það veitti fólk­inu með öðrum hætti en því hafði verið sagt og að staða bank­ans hafi verið mun verri en þeir sem seldu fólk­inu aðkomu að við­skipt­unum höfðu haldið fram.

Slitabú Lands­bank­ans í Lúx­em­borg hélt hins vegar áfram að reyna að inn­heimta lánin sem veitt voru með þessum hætti og það hefur sett þá sem þau tóku í mik­inn fjár­hags­vanda.

Lang­flestir sem tóku þátt í þessum við­skiptum Lands­bank­ans í Lúx­em­borg eru ekki jafn efnað fólk og Macias og ekki er um jafn háar upp­hæðir að ræða. Og hluti hóps­ins fékk ekki greitt út 25 pró­sent láns­ins sem var veitt heldur setti það allt í fjár­fest­ingu hjá Lands­bank­an­um.

Á heima­síðu sem hóp­ur­inn heldur út, og kall­ast www.lands­banki­vict­ims .co.uk, segir að hóp­ur­inn hafi „tekið þátt í þess­ari hræði­legu svika­myllu eftir að gengið var á eftir okk­ur. Til­gang­ur­inn var að hagn­ast á fjár­fest­ing­unni og veita okkur áhyggju­laust ævi­kvöld og vernda börnin okk­ar.“ Þar segir enn fremur að virði húsa fólks­ins hafi verið blásin upp svo þau gætu fengið hærri lán gegn hærri veð­um. Þannig gat Lands­bank­inn bók­fært hærri upp­hæð sem útlán og fékk hærri upp­hæð til að fjár­festa fyrir í nafni elli­líf­eyr­is­þeg­anna. „Við vorum blekkt,“ segir á heima­síð­unni.

Lög­maður Björg­ólfs Guð­munds­sonar sagði við RÚV í sept­em­ber 2014 að búið hefði verið að koma því á fram­færi við rann­sókn­ar­dóm­ar­ann í Frakk­landi að Björgólfur hefði ekki haft nein yfir­ráð yfir Lands­bank­anum í Lúx­em­borg. Hann var samt sem áður ákærður í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekkert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekkert um þessi mál,“ en hún blæs á gagnrýni á heimildar­myndinni. Mikil óánægja gætir á samfélags­miðlum vegna heimildar­myndarinnar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dögunum, í tilefni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagnrýnin beinist helst að efnis­tökum myndarinnar, að of mikil áhersla hafi...
SkýringHrunið

Dramatísk saga Lárusar komin í hring í Stoðum

Lárus Welding, fyrr­verandi banka­stjóri Glitnis, er orðinn að rekstrar­stjóra eins öflugasta fjár­festingar­félags landsins, Stoða hf. Þar hittir hann fyrir forstjórann Jón Sigurðsson sem Lárus segir að hafi verið lykil­maður í því að ráða hann til Glitnis þar sem FL Group, sem í dag heitir Stoðir, var stærsti hluthafi Glitnis. Báðir urðu þeir lands­þekktir í góðærinu á Íslandi en saga þeirra eftir hrun er afar ólík þar sem Lárus háði baráttu í dóms­kerfinu vegna efnahags­brota á meðan Jón sigldi lygnari sjó.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár