Vélar Icelandair hjá Cabo Verde ekki enn komnar í útleigu

Tvær flugvélar sem Loft­leiðir, dóttur­félag Icelandair, leigði út til flug­félagsins Cabo Verde Airlines eru ekki enn komnar í útleigu annars staðar. Starfsemi Cabo Verde Airlines hefur legið niðri síðan í mars í fyrra.

Icelandair Group hefur ekki enn náð að finna leigjendur fyrir tvær flugvélar í þeirra eigu sem hafa legið kyrrar eftir að flug­félagið Cabo Verde Airlines frá Grænhöfða­eyjum lagði niður starfsemi sína í mars í fyrra. Þetta stað­festir Ásdís Ýr Péturs­dóttir, samskipta­stjóri Icelandair, í samtali við Kjarnann.

Milljarðatap og afskrifað á fyrsta ári

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður keypti dóttur­félag Icelandair, Loft­leiðir, ásamt Björgólfi Jóhanns­syni, fyrr­verandi forstjóra Icelandair, og fjár­festingar­félaginu Kjálkanesi ehf. ráðandi hlut í Cabo Verde Airlines í febrúar árið 2019. Þessi fjár­festing skilaði þeim tapi upp að tæpum milljarði króna það ár og var virði félagsins komið niður í 0 kr. í lok árs 2019, samkvæmt ársreikningi eignarhalds­félagsins Loft­leiðir Cabo Verde.

Þrátt fyrir að félagið hafi verið að fullu afskrifað úr bókum eignarhalds­félagsins stóð í sama ársreikningi að gert væri ráð fyrir viðsnúningi í rekstri Cabo Verde Airlines á árinu 2021. Slíkur viðsnúningur kom þó aldrei, þar sem flug­félagið lagði niður starfsemi sína í mars í fyrra vegna heims­faraldursins.

Ófærir um að tryggja rekstur félagsins

Erlendur Svavarsson, sem var ráðinn forstjóri Cabo Verde Airlines mánuði áður en faraldurinn hófst, tilkynnti svo í byrjun júní­mánaðar að félagið hygðist byrja aftur að fljúga á milli Grænhöfða­eyja og Portúgals innan fárra vikna. Ekkert varð þó úr þessum áætlunum og lágu flug­vélarnar sem félagið notaði því enn óhreyfðar.

Nokkrum dögum eftir að ljóst var að Cabo Verde Airlines væri ekki að fara að hefja starfsemi sína aftur tilkynntu stjórn­völd á Grænhöfða­eyjum að flug­félagið yrði þjóðnýtt. Samkvæmt stjórn­völdunum höfðu nýju íslensku eigendurnir ekki sýnt að þeir gætu tryggt áfram­haldandi rekstur flug­félagsins, sem hefur 300 starfs­menn, með sjálf­bærum hætti. Starfsemi Cabo Verde Airlines liggur enn niðri, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu félagsins.

Tvær leiguvélar í eigu Icelandair

Í síðasta árshluta­reikningi Icelandair stendur að félagið sé ekki útsett fyrir rekstri Cabo Verde Airlines, þar sem virði þess hafi verið fært niður að fullu. Hins vegar bætir Icelandair við að leitað sé að nýjum leigjendum fyrir tvær vélar sem Loft­leiðir leigði út til Cabo Verde Airlines.

Í svari frá Ásdísi Ýri Péturs­dóttur, samskipta­stjóra Icelandair, eru þessar vélar ekki enn komnar í útleigu, en hún bætir þó við að nægt framboð hafi verið af vélum innan Icelandair til að sinna þeim verkefnum sem Loft­leiðir hafi verið í á árinu. Ásdís segir einnig að félagið hafi fengið tals­verðan fjölda fyrir­spurna um ný verkefni, en sökum óvissu vegna kórónu­veiru­faraldursins hafi þróun þeirra dregist á langinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár