Kauptilboð Icelandair í meirihluta ríkisflugfélags á Grænhöfðaeyjum samþykkt

Icelandair Group telur að miklir mögu­leikar séu fyrir hendi til að byggja félagið upp sem öflugt tengiflug­félag með Grænhöfða­eyjar sem tengi­miðstöð.

Tilboð Loftleiða, dóttur­félags Icelandair, í 51 prósent hluta í ríkis­flug­félaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfða­eyjum, hefur verið samþykkt.

Undir­skrift kaup­samnings er áætluð á morgun föstu­daginn 1. mars, segir í tilkynningu frá Icelandair til kaup­hallar.

„Icelandair Group telur að miklir mögu­leikar séu fyrir hendi til að byggja félagið upp sem öflugt tengiflug­félag með Grænhöfða­eyjar sem tengi­miðstöð á milli heimsálfa. Mun sú reynsla og þekking sem orðið hefur til í sams konar rekstri Icelandair þar með nýtast Cabo Verde Airlines,“ segir í tilkynningunni.

Loft­leiðir Icelandic, sem er dóttur­félag Icelandair Group, er eigandi að 70 prósent hlut í Loft­leiðum Cabo Verde en aðrir hluthafar eiga 30 prósent. „Kaupin hafa óveruleg áhrif á reiknings­skil Icelandair Group þar sem Cabo Verde Airlines mun ekki verða hluti af samstæðu­reikningi Icelandair Group. Eignar­hluturinn verður færður á meðal hlutdeildar­félaga,“ segir í tilkynningu.

Eins og greint var frá fyrr í dag hækkaði virði Icelandair umtals­vert í dag á markaði, eða um rúmlega 7,5 prósent. Virði félagsins er nú um 40 milljarðar króna, en félagið hefur gengið í gegnum erfið­leika í rekstri að undan­förnu, og tapaði félagið 6,8 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár