Stóðu af sér harða gagnrýni og ótal tilraunir til þöggunar

Jóhann Páll og Jón Bjarki verð­launaðir sem blaðamenn ársins um helgina. Mynd ársins átti Sigtryggur Ari Jóhannsson en hún tengdist einnig umfjöllun Jóns Bjarka um hælis­leitendur.

Blaðamanna­verðlaun Blaðamanna­félagsins voru afhent um helgina. Þar hlutu þeir Jóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon blaðamanna­verðlaun ársins fyrir umfjöllun um lekamálið. Aðrir verðlauna­hafar voru Helgi Seljan fyrir rannsóknar­blaða­mennsku ársins, ritstjórn mbl.is fyrir umfjöllun ársins og Ólöf Skafta­dóttir sem átti viðtal ársins.

Verðlaunahafarnir
Verðlauna­hafarnir

Minnir á mikilvægi gagnrýnnar blaðamennsku

Umfjöllun um lekamálið færði þeim Jóhanni Páli og Jóni Bjarka verðlaun sem blaðamenn ársins. Í rökstuðningi dómnefndar var talað um að þeir hefðu sýnt einstakt þolgæði við að upplýsa allar hliðar leka­málsins og fylgt því vel eftir, þrátt fyrir mótlæti og andstöðu ráðherra, sem endaði með afsögn hans.

Lekamálið hófst árið 2013 þegar trúnaðar­upplýsingum um hælis­leitanda var lekið til fjölmiðla. Það stóð allt árið 2014 og náði hámæli þegar í ljós kom að lögreglu­stjórinn á höfuð­borgar­svæðinu hrökklaðist úr embætti vegna afskipta ráðherrans af lögreglu­rann­sókninni, umboðs­maður Alþingis hóf skoðun á málinu, ráðuneytis­skipan var breytt, aðstoðar­maður ráðherra var dæmdur fyrir lekann og ráðherrann sagði af sér.

Enn teygir lekamálið anga sína út í samfélagið með ýmsum hætti, en síðastliðinn föstudag birtist úrskurður Persónu­verndar um að núverandi lögreglu­stjóri á höfðuborgarsvæðinu, þáverandi lögreglu­stjórinn á Suðurnesjum hefði brotið í bága við lög um persónu­vernd. Þá fjallaði forsíðu­frétt fyrsta tölublaðs Stundarinnar um valdatafl innan lögreglunnar. Þar kom fram að þeir sem komu að rannsókn leka­málsins hefðu orðið undir. 

„Þrátt fyrir harða gagnrýni og ótal tilraunir til þöggunar stóðu blaða­mennirnir í ístaðinu. Þolgæði þeirra varð til þess að ljósi var varpað á það sem raun­verulega gerðist á bakvið tjöldin. Það minnir á mikilvægi gagn­rýninnar blaða­mennsku og að trúnaður blaða­manna sé fyrst og síðast við almenning í landinu og engan annan,“ segir í rökstuðningi dómnefndar.

Aðrir tilnefndir í sama flokki voru Magnús Halldórsson, Ægir Þór Eysteinsson og Þórður Snær Júlíusson  Kjarnanum, fyrir umfjöllun um sölu Lands­bankans á hlut í Borgun, og Viktoría Hermanns­dóttir, Frétta­blaðinu, fyrir umfjöllun um innflytjendur og áhrifarík viðtöl.

Mynd ársins og fréttamynd ársins
Mynd ársins og frétta­mynd ársins

Yfirleitt sendir aftur í gin ljónsins

Sama dag voru veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins 2014. Verðlaun voru veitt í sjö flokkum, en mynd ársins tengdist einnig umfjöllun Jóns Bjarka um hælis­leitendur. Myndina átti Sigtryggur Ari Jóhannsson, en hún var af Ghasem Mohamadi, tvítugum hælis­leitanda frá Afganistan og sýndi hann veikan í rúmi sínu eftir mótmæla­svelti vegna seinagangs Útlendinga­stofnunnar á afgreiðslu hælis­umsóknar.

Myndin vann til tveggja verðlauna, var bæði mynd ársins og frétta­mynd ársins. „Þessi mynd er tilkomin vegna þrot­lausrar vinnu Jóns Bjarka blaða­manns og brennandi áhuga hans á málefnum hælis­leitenda,“ segir Sigtryggur Ari. „Ég hafði átt langt og gott samstarf við Jón Bjarka og oftsinnis farið með honum að skoða aðstæður hælis­leitenda og hitt þá við misjafnar aðstæður, tekið við þá viðtöl og myndir af þeim. Þessi mynd var tekin í miðju því ferli og það var ekkert sem benti til þess þegar ég tók þessa mynd að hún væri annað en enn eitt skrefið. Þegar ég fór að horfa á hana seinna, kominn aftur í hús, sá ég að þetta var óvenjuleg mynd. Bæði vegna þess hve veikur Ghasem var orðinn vegna mótmæla­sveltis og eins hversu mikla einbeitingu hann hafði samt á aðstæðum sínum.

Að því sögðu voru aðstæður á vettvangi algjör­lega sambærilegar við aðstæður annara sem sækja um pólitískt hæli á Íslandi. Þeir búa yfirleitt úti á Suðurnesjum á Fithostel eða í leigu­íbúðum hér og þar um bæinn þar sem þeir búa með öðrum hælis­leitendum. Oft eiga þeir ekkert annað sameiginlegt en að vera fastir hér í biðinni eftir svari frá Útlendinga­stofnun og yfirleitt eru þeir sendir aftur í gin ljónsins, til baka þaðan sem þeir komu.“

Sigtryggur Ari og Jón Bjarki hittu Ghasem nokkrum sinnum. Einu sinni fylgdu þeir honum í ráðuneytið þar sem hann vildi fá að ræða stöðu sína, en þegar hann fór á fætur blasti við hversu slæmt ástand hans var orðið. „Hann klæddi sig í föt og fötin hans voru orðin allt of stór á hans og héngu utan á honum.“

Ghasem fékk að lokum stöðu flóttamans á Íslandi, tveimur árum eftir að Útlendinga­stofnun hafði áður hafnað þeirri beiðni á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar.

Daglegt líf ársins
Daglegt líf ársins

Portrett ársins
Portrett ársins

Sérhagsmunir bænda varðir

Helgi seljan vann í flokknum rannsóknar­blaða­mennska fyrir umfjöllun um MS og uppruna vöru. Í umfjöllun sinni ljóstraði Helgi því upp hvernig MS, sem og önnur fyrirtæki, leyna almenningi því fyrir almenningi þegar þau blanda erlendri vöru saman við íslenska. Einnig benti hann á að embættis­maður í ráðuneyti land­búnaðar hefur setið beggja vegna borðsins í mörgum málum sem snerta samkeppni og landbúnað. „Í umfjöllun Helga Seljan um uppruna vöru og stöðu búvöru­mála í landinu sýndi hann fram á hvernig sérhagsmunir bænda, MS og innlendra kjöt­vinnslna eru varðir á kostnað neytenda,“ segir í rökstuðningi dómnefndar. „Helgi rann­sakaði málið frá mörgum hliðum og dró fram í dags­ljósið að embættis­maður land­búnaðarmála hefði setið beggja vegna borðs og tæki ákvarðanir sem túlka megi í hag fyrrum vinnu­veitenda og þessara sérhagsmuna.“

Aðrir tilnefndir í sama flokki voru Garðar Örn Úlfarsson Frétta­blaðinu og Þorbjörn Þórðarsson Stöð 2, fyrir umfjöllun um flug­slysið við Akureyri. Þá var Hrund Þórs­dóttir, Stöð 2 tilnefnd fyrir umfjöllun um lyfja­mistök, en hún kafaði ofan í andlát eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gefinn rangur lyfja­skammtur á heilbrigðis­stofnun.  

Tímaritamynd ársins
Tímarita­mynd ársins

Notuðu dróna úr lofti

Í flokknum umfjöllun ársins vann ristjórn mbl.is til verðlauna fyrir umfjöllun um stór­brunann í Skeifunni. „Þegar stórbruni varð í Skeifunni síðasta sumar sýndi ritstjórn mbl.is vel hvernig nýta má alla helstu kosti netsins og tækninnar til að færa lesendum skýra mynd af því sem var að gerast með hnit­miðuðum texta, myndum og mynd­skeiðum frá dróna úr lofti,“ sagði í rökstuðningi dómnefndar. „Niður­staðan var heildstæð og ítarleg umfjöllun sem minnti rækilega á hvað netið er öflugur frétta­miðill.“

Aðrir tilnefndir voru Sigurður Mikael Jónsson fyrir umfjöllun um neytendamál í DV og Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir, Stundinni, fyrir umfjöllun um Alzheimer og heila­bilun sem birtist í DV.

Íþróttamynd ársins
Íþrótta­mynd ársins

Barátta tvíburabræðra við geðræna sjúkdóma

Viðtal ársins átti Ólöf Skapta­dóttir við tvíbura­bræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Í viðtalinu lýsa bræðurnir reynslu sinni af geðsjúk­dómum af mikilli hreinskilni, annars vegar tólf ára baráttu Kára við að lifa við geðklofa og hins vegar geðrofi Halldórs í kjölfar kannabis­neyslu. „Með þessu viðtali nær Ólöf að draga fram mikil­vægar raddir þeirra bræðra til að draga úr fordómum gegn geðsjúk­dómum sem best næst fram með því að tala við þá sem sjálfir hafa lifað með sjúk­dómnum. Fordóma­leysi Ólafar og virðing gagnvart viðfangs­efninu skín í gegn um textann og  lýsir það sér ekki síst í léttleikanum sem einkennir viðtalið, en nær jafnframt að lýsa erfið­leikum við að hætta á geðlyfjum, að takast á við breyttar aðstæður sem fylgja sjúk­dómnum og breyttri lífssýn þeirra bræðra. Ekki er hvað síst óvenjulegt að lesa jafn hrein­skilið viðtal við stjórn­málamann um persónuleg málefni og þetta viðtal er,“ segir í rökstuðningi dómnefndar.

Aðrir tilnefndir voru Indíana Hreins­dóttir, DV, fyrir viðtal við Stefán Hilmarsson og Júlía Margrét Alexanders­dóttir, Morgun­blaðinu, fyrir viðtal við Þorstein J. Vilhjálmsson.

Umhverfismynd ársins
Umhverfis­mynd ársins

Vestfjarðardulúð

Aðrar verðlauna­myndir áttu Ómar Óskarsson fyrir mynd í flokki daglegs lífs, Vilhelm Gunnarsson fyrir íþrótta­mynd ársins, Rut Sigurðar­dóttir átti portrait mynd ársins, Gígja D. Einars­dóttir átti tímarita­mynd ársins og Heiða Helga­dóttir átti verðlauna­mynd í flokki umhverfis­mynda ásamt því að hafa einnig myndað myndröð ársins 2014.

Mynda­röðin var tekin baksviðs á Reykjavík Fashion Festival. Þar fylgdist Heiða með hama­ganginum frá klukkan níu að morgni og fram á kvöld og reyndi að teygja sig undir yfir­borðið, horfa fram hjá tískunni og ná kjarnanum, fólkinu. „Ég vildi hafa þetta einlægt og mistískt. Kannski langaði mig bara að sjá rómantíkina í þessu,“ segir Heiða.

Heiða átti jafnframt umhverfis­mynd ársins sem var af fjalli á sunnan­verðum Vestfjörðum. „Myndin varð til í júní í fyrra þegar ég var á leið að Látra­bjargi. Á leiðinni þangað varð mér starsýnt á fjallið þegar ég sá hvernig falleg þokan læddist að og lak niður fjallið. Mér fannst þetta mjög rómantískt og mistískt. Vestfjarða­dulúðin eins og hún gerist best.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár