Emil tekinn við sem ritstjóri Vísbendingar

Ritstjóra­skipti hafa orðið hjá Vísbendingu. Jónas Atli Gunnarsson kveður og Emil Dagsson tekur við. Kjarninn hefur átt Vísbendingu í fimm ár.

Emil Dagsson.
Emil Dagsson. Mynd: Bára Huld Beck

Emil Dagsson var nýverið ráðinn rit­stjóri Vís­bend­ing­ar, viku­rits um við­skipti, efna­hags­mál og nýsköpun sem gefið er út af Kjarn­anum miðlum. Emil hefur þegar ritstýrt fyrstu útgáfu sinni en hún kom út síðastliðinn föstudag. Hann tekur við starfinu af Jónasi Atla Gunnars­syni sem hafði ritstýrt Vísbendingu síðan í mars 2020, en Jónas er fluttur til Bretlands þar sem hann sinnir ráðgjafa­störfum. Kjarninn miðlar keyptu útgáfuna sumarið 2017.

Emil er hag­fræð­ingur að mennt með B. Sc-gráðu frá Háskóla Íslands og M. Sc.-gráðu í fjármála­hagfræði frá sama skóla auk þess sem hann tók eitt ár í grunnnámi í Sjanghæ í Kína. Emil er sem stendur, samhliða störfum sínum sem ritstjóri, í doktors­námi í hagfræði undir hand­leiðslu Gylfa Zoega og kennir fjármála­tölfræði í meistara­námi við hagfræði­deild.

Hann hefur auk þess starfað hjá Hagfræði­stofnun HÍ, Hagstofu Íslands, sem stunda­kennari hjá HR og hjá Viðskipta­ráði. Þá er hann þátta­stjórnandi hlaðvarps­þáttanna Ekon sem fjalla um hagfræði og efnahagsmál og er einnig einn stofnenda Fjárráðs, sem hefur það markmið að stunda jafningja­fræðslu á sviðum fjármála til að efla fjármála­læsi nemenda á Íslandi.

Emil segir það mikinn heiður að taka við keflinu sem ritstjóri Vísbendingar. „Ritið hefur verið leiðandi í umræðu um viðskipti og efnahagsmál á Íslandi allt frá níunda áratugnum og hlakka ég til þess að beita mér fyrir því að brúa bil milli frétta og fræðirita.“

Vís­bend­ing er viku­rit um við­skipt­i, efna­hags­mál og nýsköpun sem hefur komið út óslitið síðan árið 1983. Þar birt­ast greinar eftir marga af fær­ustu hag­fræð­ingum lands­ins á aðgengi­legu máli. Á­skrif­endur að rit­inu starfa í öllum kimum sam­fé­lags­ins. Mark­mið Vís­bend­ingar er að miðla fróð­leik sem nýt­ist for­ystu­fólki í atvinnu­lífi og stjórn­mál­um. Ritið á að gefa heið­ar­lega mynd af íslensku við­skipta- og efna­hags­lífi, og stuðla að hrein­skipt­inni umræðu um frjáls við­skipti á Íslandi og við önnur lönd. Vís­bend­ing kemur út viku­lega allt árið um kring, með fáeinum und­an­tekn­ing­um. Áskrif­endum að prentút­gáfu Vís­bend­ingar berst einnig yfir­lit yfir þær greinar sem birst hafa allt árið um kring. Kjarn­inn miðlar ehf. eign­að­ist útgáfu Vís­bend­ingar sum­arið 2017 og hefur gefið ritið út í óbreyttri mynd síð­an.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár