Lofar „fleiri gjöfum“ til Bandaríkjanna frá Norður-Kóreu

Kim Jong-un segir að Norður-Kórea muni ekki láta af tilraunum með kjarnorku­vopn.

Han Tae Song, fulltrúi Norður-Kóreu hjá Sameinuðu þjóðunum, segir að Norður-Kórea muni halda áfram að senda Banda­ríkjunum „gjafir“, en í viðtali við Reuters fagnar hann árangri kjarnorku­vopna­tilrauna Norður-Kóreu.

Hann segir að stjórn­völd séu ánægð með þróun mála, og að tilraunirnar séu í sjálfs­varnar­skyni og beinist einungis að Banda­ríkjunum.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur þegar fordæmt tilraunir Norður-Kóreu, og krafist þess að þjóðir heimsins taki höndum saman í þvingunar­aðgerðum. Vladímir Pútín, forseti Rússlands, segir efnahagslegar þvinganir engu breyta fyrir Norður-Kóreu. Ræða þurfi um friðsamar lausnir á pólitískum forsendum.

Stjórn­völd í nágranna­ríkjum Norður-Kóreu, Suður-Kóreu og Japan, segja að þolinmæðin sé búin, og að alþjóða­samfélagið þurfi að taka hættuna af mögulegri árás Norður-Kóreu alvarlega. Nú þegar hafa flug­skeyti flogið fyrir japanskt land, og fóru meðal annars viðvarana­flautur í gangi á því svæði.

Donald Trump Bandaríkja­forseti segir að Banda­ríkin ætli sér að hætta viðskiptum við allar þjóðir sem stundi viðskipti við Norður-Kóreu. Þau ummæli duga skammt, enda viðskipta­samband Banda­ríkjanna við helsta viðskipta­bandamann Norður-Kóreu, Kína, bæði umfangs­mikið og ómögulegt að rekja það upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár