Stjórnvöld í Bretlandi birta Brexit-áætlun

Stjórn­völd vilja fara eins hratt og kostur er út úr Evr­ópu­sam­band­inu og semja upp á nýtt um við­skipta­leg tengsl við Evr­ópu­þjóðir.

Rík­is­stjórn Theresu May í Bret­landi hefur birt í dag áætl­un sína um það með hvaða hætti landið muni segja skilið við Evr­ópu­sam­bandið. Neðri deild breska þings­ins sam­þykkti í gær að við­ræður við sam­bandið um út­göng­una yrðu hafn­ar og hafa stjórn­völd þegar brugð­ist við með því að birta upp­lýs­ingar um áætl­un­ina á vefnum.

Samtals er rætt um tólf mark­mið í áætl­un­inni, sem í stórum dráttum snýst um að end­ur­semja um breska hags­muni, vítt og breitt, og ná betri stjórn á landa­mærum Bret­lands.

Þar kem­ur meðal ann­ars fram að Bret­land muni sam­hliða út­göngu úr Evr­ópu­sam­band­inu segja skilið við innri markað sam­bands­ins, eins og May var búin að til­kynna um að yrði gert. Því fylgir meðal ann­ars að yfir­gefa tolla­banda­lagið og við­skipta­samn­ing­inn eins og hann leggur sig sem innri mark­að­ur­inn hvílir á.

Mark­miðið er síðan að gera sjálf­stæða við­skipta­samn­inga við önn­ur ríki þar sem breskir hags­munir eru vernd­aðir. Bresk stjórn­völd stefna að því að semja sér­stak­lega við Evr­ópu­sam­bandið um frí­versl­un og tolla­mál, en ekki er útfært í áætl­un­inni hvernig sú vinna verður skipu­lögð. Þá mun Bretland alfarið fara undan æðsta dóms­valdi Evr­ópu­sam­bands­ins við útgöngu.

Breska stjórn­in hyggst koma á nýju kerfi til þess að stýra kom­um inn­flytj­enda frá ríkj­um Evr­ópu­sam­bands­ins sem yrði hugs­an­lega byggt á aðlög­un­ar­tíma til þess að at­vinnu­lífið geti aðlag­aðst breytt­um aðstæðum.

Lögð verður áhersla á fólk sem hef­ur mennt­un eða reynslu sem þörf er á í Bret­landi á hverjum tíma, og fólk sem hyggst stunda nám í land­inu.

Samkvæmt áætl­un­inni verður lögð áhersla á að tryggja eins greiðan aðgang um landa­mær­in á milli Írlands og Norður-Írlands og mögu­legt er. Ætl­un­in að færa meira vald til Skot­lands, Wales og Norður-Írlands sam­hliða því sem völd verða end­ur­heimt frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár