Steve Bannon handtekinn fyrir aðild að fjársvikamáli

Fyrr­verandi aðal­ráðgjafi Bandaríkja­forseta var í dag hand­tekinn, en hann er ákærður fyrir að hafa fóðrað eigin vasa með framlögum grun­lausra borgara sem vildu styðja við að landa­mæramúr yrði byggður á milli Banda­ríkjanna og Mexíkó.

Steve Bannon hefur verið handtekinn fyrir fjársvik.
Steve Bannon hefur verið hand­tek­inn fyrir fjár­svik. Mynd: Gerald Herbert / AP

Steve Bannon, fyrr­verandi ráðgjafi og kosninga­stjóri Donalds Trump Bandaríkja­forseta, hefur verið hand­tekinn og ákærður fyrir fjársvik. Bandaríska dómsmála­ráðuneytið segir hann og þrjá aðra hafa stungið hluta framlaga í söfnun sem þeir stóðu fyrir í eigin vasa. Allur ágóði söfnunarinnar átti að renna beint í að byggja vegg á landa­mærum Banda­ríkjanna og Mexíkó. Alls söfnuðust um 25 milljónir dala frá hundruðum þúsunda stuðnings­manna.

Samkvæmt ákæru í málinu fékk Bannon sjálfur meira en eina milljón dala í sinn hlut og notaði allavega hluta þess fjár, hundruð þúsunda dollara, til þess að greiða fyrir sín persónu­legu útgjöld. Einn samverka­manna hans, Brian Kolfage, er sagður hafa fengið meira en 350 þúsund dali í sinn hlut.

Söfnunin hófst undir slag­orðinu „Við byggjum vegginn“ í desember árið 2018. Samkvæmt yfir­lýsingu frá saksóknara í New York var fénu safnað á þeim fölsku forsendum að það myndi renna milli­liðalaust í það að byggja landamæra­vegginn. En svo var ekki.

Samkvæmt frétt New York Times um málið reyndu mennirnir fjórir að fela ólöglegt peninga­flæði söfnunarinnar með því að notast við góðgerða­félag undir stjórn Bannons og skúffu­fyrirtæki eins annars sakbornings í málinu.

Bannon á að koma fyrir dómara í New York vegna þessa máls síðar í dag. Hvíta húsið hefur ekki viljað tjá sig um þetta, en Bannon var aðal­ráðgjafi Trumps í upphafi forseta­tíðar hans og tók einnig sæti í þjóðar­öryggisráði Banda­ríkjanna, en yfirgaf Hvíta húsið í ágúst árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár