Síminn vill greiða hluthöfum 31,5 milljarða vegna sölunnar á Mílu – og svo sennilega meira

Franska fyrir­tækið Ardian er búið að gera upp við Símann vegna kaupanna á Mílu. Síminn ætlar að leggja tillögu um að greiða hluthöfum 31,5 milljarða króna af sölu­andvirðinu fyrir hluthafa­fund í lok október.

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans. Mynd: Nasdaq Iceland

Hluthafar Símans munu taka afstöðu til þess undir lok október­mánaðar hvort lækka skuli hlutafé félagsins um 31,5 milljarða króna og greiða þá upphæð út til hluthafa, í kjölfar þess að fyrir­tækið fékk greiðslu frá franska fyrir­tækinu Ardian fyrir Mílu.

Þetta kemur fram í kauphallar­tilkynningu frá Símanum í dag, en þar segir að Síminn hafi fengið greitt að fullu fyrir Mílu. Ardian greiddi annars vegar 32,7 milljarða króna í reiðufé og svo 17,5 milljarða króna í formi fram­seljanlegs skulda­bréfs til þriggja ára.

Stefnt er að því að halda hluthafa­fund þar sem afstaða verður tekin til þessarar 31,5 milljarða greiðslu til hluthafa þann 26. október.

Einnig segir Síminn frá því að til skoðunar sé að selja skulda­bréfið eða eftir atvikum greiða andvirði þess út til hluthafa, en að gera megi ráð fyrir að tillaga þess efnis verði tekin fyrir á öðrum hluthafa­fundi.

Ætlaður sölu­hagnaður Símans af viðskiptunum með Mílu er nú sagður 37,8 milljarðar króna að teknu tilliti til alls kostnaðar vegna viðskiptanna og uppfærðrar áætlunar um veltu­fjármuni og skuldir Mílu.

Stoðir og lífeyrissjóðir stærstu hluthafar

Fjár­festinga­félagið Stoðir var stærsti einstaki hluthafi Símans í lok ágúst, með 15,92 prósenta hlut. Félagið má því vænta þess að fá rúma 5 milljarða greidda út ef hluthafar Símans samþykkja að lækka hlutafé félagsins með þeim hætti sem lagt er til.

Nær allir aðrir stærstu hluthafar Símans eru lífeyris­sjóðir, en Lífeyris­sjóður Verzlunarmanna fer með 11,89 prósenta hlut, Lífeyris­sjóður starfs­manna ríkisins með 10,91 prósent og Gildi Lífeyris­sjóður á 7,78 prósent í fyrir­tækinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár