„Frelsi!“ – Fyrstu fjöldamótmælin á Kúbu í áratugi

Frelsi! Niður með ein­ræðið! Niður með komm­ún­ismann! Þúsundir Kúbverja hafa látið heyra í sér á götum úti. For­set­inn hvetur stuðn­ings­menn sína til að berj­ast og skellir skuld­inni alfarið á erkió­vin­inn: Banda­ríkin.

Varðliði fylgist með mótmælum í borginni San Antonio á Kúbu.
Varðliði fylgist með mót­mælum í borg­inni San Antonio á Kúbu. Mynd: EPA

Lang­þreyttir á efna­hags­á­stand­inu, matar- og lyfja­skorti og stöð­ugum verð­hækk­unum storm­uðu þús­undir Kúbverja út á götur um helg­ina til mót­mæla. Slíkt er ekki óal­gengt í ýmsum ríkjum heims þegar illa hefur árað um hríð en Kúbverjar eru nokkuð sér á báti, enda eiga þeir sem gagn­rýna stjórn­völd ekki von á góðu, og þetta er í fyrsta sinn í fleiri ára­tugi sem slík fjölda­mót­mæli fara fram á eyj­unni í Kar­ab­íska haf­inu. „Við erum ekki hrædd. Við viljum breyt­ingar og við erum búin að fá nóg af ein­ræð­inu,“ sagði einn mót­mæl­andi í sam­tali við frétta­mann BBC.

Tugir hafa verið hand­teknir síð­ustu sól­ar­hringa og for­seti Kúbu hefur hvatt stuðn­ings­menn sína til að „berj­ast gegn“ mót­mæl­endum. Örygg­is­sveitir for­set­ans blönd­uðu sér að sögn Reuters-frétta­stof­unnar inn í hóp mót­mæl­enda. Meðlimir þeirra klæddir venju­legum fötum, ekki her­manna­klæðum. Svo létu þeir til skarar skríða. Létu höggin dynja á fólki og beittu piparúða til að sundra hópum.

„Það er eng­inn matur, það eru engin lyf. Það er ekk­ert frelsi. Þeir leyfa okkur ekki að lifa líf­inu,“ hefur BBC eftir manni sem tók þátt í mót­mæl­unum á sunnu­dag.

„Frelsi!“

„Niður með ein­ræðið!“

„Niður með komm­ún­ismann!“

Þetta var meðal þess sem hrópað var í mót­mæl­unum sem eru ekki bundin við höf­uð­borg­ina Havana heldur fara einnig fram á öðrum stöðum á eyj­unni. Þau hófust í borg­inni San Antonio, suð­vestur af höf­uð­borg­inni, en hafa síðan breiðst út um allt landið.

Það er ekki ein­falt mál að flytja fréttir frá Kúbu. Sam­bandið við umheim­inn er ekki eins og það sem Vest­ur­landa­búar eiga að venj­ast. Net­sam­band er á mörgum stöðum fágætt fyr­ir­bæri og oft stop­ult. Og AP-frétta­stofan segir að í mót­mælum síð­ustu daga hafi það að stórum hluta ein­fald­lega legið niðri. Í upp­hafi þeirra var mót­mælum streymt á sam­fé­lags­miðlum. Stjórn­völd hafa því ekki getað stýrt upp­lýs­inga­flæð­inu eftir sínu höfði.

For­set­inn Miguel Díaz-Canel ávarp­aði landa sína í sjón­varpi og skellti skuld­inni á Banda­ríkin. Hann sagði að við­skipta­bönn, sem hafa verið við lýði allt frá því snemma á sjö­unda ára­tugnum, væru að „kæfa efna­hags­lífið“.

Hann fylgdi þessu eftir með því að full­yrða að mót­mæl­end­urnir væru mála­liðar sem Banda­ríkin hefðu ráðið til að sundra kúbönsku þjóð­inni. Hann hvatti svo stuðn­ings­menn sína til að fara út á götur og „verja bylt­ing­una“. Í kjöl­far bylt­ing­ar­innar, sem gerð var árið 1959, tók komm­ún­ista­stjórn við völdum og hefur verið við lýði allar götur síðan. „Skipunin um að berj­ast hefur verið gefin! Út á götur bylt­ing­ar­menn!“

Óttast er að þetta her­hóp for­set­ans leiði af sér átök. Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna, seg­ist standa með Kúbverjum og hvetur stjórn­völd á eyj­unni til að hlusta á íbú­ana. „Kúbverjar eru af hug­rekki að krefj­ast grunn­rétt­inda.“

Efna­hagur Kúbu var brot­hættur fyrir COVID-19. Hann byggir að stórum hluta orðið á ferða­þjón­ustu sem, líkt og ann­ars staðar í heim­inum, hefur orðið fyrir gríð­ar­legu höggi. Sykur er helsta útflutn­ings­vara Kúbu og upp­skeran í ár var langt undir vænt­ingum. Rík­is­fyr­ir­tækið Azcuba, sem er með ein­ok­un­ar­verslun á sykri, segir skýr­ing­arnar fel­ast í elds­neyt­is­skorti og bil­uðum vinnu­vélum. Þá hefur verið rakt í veðri sem einnig hefur átt sinn þátt í upp­skeru­brest­inum.

Þetta hefur orðið til þess, segir í frétta­skýr­ingu BBC um ástandið, að gjald­eyr­is­vara­forði lands­ins er á þrotum sem aftur hefur leitt af sér skort á inn­fluttum mat­vælum, lyfjum og fleiru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár