Trump vill ráða hver ræður í Íran

Á meðan Ísraelar hóta því að hluti Líbanons hljóti sömu örlög og Gaza-svæðið vill Donald Trump stjórna því hver verður þjóðar­leiðtogi Írana.

Donald Trump
Donald Trump Vill fá leiði­taman leið­toga í Íran. Mynd: AFP

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, krafðist þess í dag að fá að hafa hönd í bagga með vali á næsta æðsta leiðtoga Írans, á meðan stríðið sem hófst með herferð Banda­ríkjanna og Ísraels, sem leiddi til dauða Ayatollah Ali Khamenei, geisaði um Mið-Austur­lönd og víðar.

Ísraelsher sagðist hafa hafið árásir á Hezbollah-liða, sem studdir eru af Íran, í suður­hluta Beirút, eftir að hafa gefið út fordæma­lausa rýmingar­viðvörun fyrir allt svæðið sem varð til þess að íbúar flúðu í ofboði. Einn af ráðherrum Ísraels, fjármála­ráðherrann Bezalel Smotrich, hótaði því að hluti Beirút myndi hljóta sömu örlög og Gaza-svæðið.

Stríðið hefur teygt anga sína allt til strandar Srí Lanka, þar sem bandarískur kafbátur sökkti írönsku herskipi með tundur­skeyti, og Aserbaídsjan, sem hótaði hefndar­aðgerðum eftir að dróni hæfði flugvöll.

Trump hafnaði í dag þeim möguleika að sonur Khameneis, Mojtaba Khamenei, tæki við af föður sínum sem æðsti leiðtogi og kallaði þann yngri „léttvigtar­mann“.

„Ég verð að koma að skipuninni, eins og með Delcy,“ sagði Trump í viðtali við Axios og líkti því við Venesúela, þar sem Delcy Rodriguez, starfandi forseti, hefur unnið með honum undir ofbeldis­hótunum eftir að Banda­ríkin steyptu yfirmanni hennar, Nicolas Maduro, af stóli í hernaðar­árás.

„Sonur Khameneis er óásættanlegur fyrir mig. Við viljum einhvern sem mun koma á sátt og friði í Íran,“ sagði Trump við Axios og hótaði frekari stríðs­átökum í fram­tíðinni ef ekki fyndist betri kostur.

Ummælin benda til vilja til að vinna með einhverjum innan íslamska lýðveldisins frekar en að steypa stjórninni alfarið af stóli, þrátt fyrir ítrekaðar hvatningar Trumps til Írana um að rísa upp og endur­heimta land sitt.

Traðkað á TrumpMót­mæl­endur sem stefna að banda­ríska sendi­ráð­inu í Bagdad í Írak stíga ofan á mynd af Donald Trump Banda­ríkja­for­seta í dag.

Árásir á Beirút

Líbanon var dregið inn í vaxandi átök á mánudag þegar Hezbollah réðst á Ísrael til að hefna fyrir drápið á Khamenei.

Ísrael svaraði með loft­árásum og sendi landher inn í nokkur líbönsk landamæra­þorp.

Í skila­boðum til íbúa í suður­hluta Dahiyeh-hverfisins í Beirút sagði talsmaður Ísraels­hers: „Bjargið lífi ykkar og rýmið heimili ykkar tafar­laust.“

Ísraelsher tilkynnti síðar að hann hefði „hafið árásir á innviði Hezbollah“ í Dahiyeh.

Viðvörunin varð til þess að fólk flúði svæðið og gríðarlegar umferðar­teppur mynduðust í útjaðri hverfanna, á meðan fólk skaut úr byssum upp í loftið og hvatti heimamenn til að fara eins fljótt og auðið væri.

Á strönd í Beirút voru hundruð fjöl­skyldna, margar þeirra hræddar og reiðar, saman­komnar eftir að hafa flúið í flýti og höfðu engan annan stað að fara á.

Loftárás í LíbanonHér sést suð­ur­hluti Beirút, Haret Hreik, eftir loft­árás Ísraela í kvöld.

„Við flúðum úr úthverfunum, við vorum niðurlægð,“ sagði einn maður við AFP og neitaði að gefa upp nafn sitt.

„Við munum sofa á götunni í nótt og guð einn veit hvað verður um okkur.“

Líbönsk yfirvöld segja að minnst 123 hafi látist, 683 særst og að minnsta kosti 90.000 hafi flúið heimili sín frá því á mánudag.

Átök frá Srí Lanka til Aserbaídsjan

Við landamæri Írans varaði nágranna­ríkið Aserbaídsjan við því að drónaárás á flugvöll „yrði ekki látið óátalin“, sem vakti ótta um að annað land myndi blandast í stríðið.

Íran hafnaði því að hafa staðið á bak við árásina og kenndi Ísrael um, en það kom ekki í veg fyrir að Ilham Aliyev, forseti Aserbaídsjan, sakaði stjórn­völd í Teheran um „hryðju­verk“.

Ástralía sendi á meðan tvær herflugvélar á vettvang og Mark Carney, forsætis­ráðherra Kanada, sagði að hann gæti ekki útilokað að herafli hans tæki þátt.

Eftir nýjar árásir á höfuðborg Írans sýndu myndir AFPTV kolbrunnin farartæki og skemmdar byggingar, þar sem reykur steig enn upp úr sumum þeirra.

„Við erum að ganga í gegnum mjög mikil­vægan kafla í sögu okkar og ég er ekki hræddur,“ sagði 30 ára íbúi í Teheran við AFP. „Vonin er það eina sem við höfum núna.“

Írönsk ríkis­stofnun sagði að tala látinna vegna árása Banda­ríkjanna og Ísraels á íslamska lýðveldið væri komin upp í 1.230, en frétta­stofa AFP gat ekki staðfest þá tölu sjálfstætt.

Bandaríski herinn hefur tilkynnt um dauða sex starfs­manna sinna frá því stríðið hófst á laugardag.

Abbas Araghchi, utan­ríkis­ráðherra Írans, sýndi þrjósku í dag og sagði að stjórn hans hefði ekki leitað eftir vopnahléi og sæi „enga ástæðu til að semja við Banda­ríkin“.

Varðandi mögu­leikann á innrás á landi sagði hann við bandarísku sjónvarps­stöðina NBC News: „Við erum fullviss um að við getum tekist á við þá og að það yrði mikil hörmung fyrir þá.“

Ísrael sagði á meðan að 60 prósent af flugskeyta­pöllum Írans og 80 prósent af loft­varnar­kerfum þeirra hefðu verið eyðilögð.

Zamir, herforingi, tilkynnti um „næsta áfanga“ í herferðinni og sagði að Ísrael væri með „fleiri óvæntar uppákomur í vændum“.

Frétta­menn AFP í Jerúsalem heyrðu sprengingar í kjölfar viðvarana um yfir­vofandi íranskar flugskeyta­árásir.

Persaflói í skothríð

Átökin hafa ekki hlíft moldríkum konungs­ríkjunum við Persaflóa, sem venjulega eru talin öruggt skjól á óstöðugu svæði, þar sem Íran hefur gert árásir á borgir og orku­innviði.

Þrettán manns, þar af sjö almennir borgarar, hafa látið lífið í löndum við Persaflóa frá því að stríðið hófst, þar á meðal 11 ára stúlka í Kúveit.

Katar tilkynnti í dag að verið væri að stöðva eldflauga­árás á meðan miklar sprengingar, sem frétta­menn AFP lýstu sem þeim öflugustu hingað til, ómuðu um Doha, þar sem þykkur svartur reykur steig upp við sjóndeildar­hringinn.

Sex manns særðust einnig í höfuðborg Sameinuðu arabísku fursta­dæmanna, Abu Dhabi, af völdum braks úr dróna sem var grandað, að sögn yfirvalda.

Í Barein olli írönsk eldflauga­árás eldi í helstu ríkis­reknu olíu­hreinsunar­stöðinni, en síðar náði slökkvilið tökum á eldinum, að því er samskipta­miðstöð Barein greindi frá.

Og sumir vestrænir erindrekar í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, sögðust hafa fengið fyrirmæli í dag um að halda sig í skjóli, á meðan vitni sagði að sendiráða­hverfinu í borginni hefði verið lokað.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár