Neyðarúrræði en ekki neyðarástand

Fjölda­hjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóð­lega vernd hefur verið opnuð í skrifstofu­húsnæði í Borgar­túni þar sem Vega­gerðin var áður til húsa. Hægt verður að taka á móti 150 manns að hámarki og miðað er við að fólk dvelji ekki lengur en þrjár nætur.

Stjórn­völd leituðu til Rauða krossins í gær og óskuðu eftir að opnuð yrði fjölda­hjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóð­lega vernd. Ástæðan er mikil fjölgun á komu flótta­fólks til landsins, meðal annars vegna átakanna í Úkraínu, samhliða skorti á íbúðar­húsnæði fyrir flótta­fólk.

Atli Viðar Thorstensen, sviðs­stjóri alþjóða­sviðs hjá Rauða krossinum segir að um sé að ræða neyðar­úrræði í ástandi sem er ekki neyðar­ástand. Beiðnin barst frá stjórn­völdum seint í gær og við það voru ákveðnar viðbragðs­áætlanir sem eru til staðar hjá Rauða krossinum virkjaðar. Skrifstofu­húsnæði í Borgar­túni, þar sem Vega­gerðin var áður til húsa, verður notað undir fjölda­hjálpar­stöðina.

Mögulega verður tekið á móti fólki í kvöld, annars á morgun. Pláss verður fyrir 150 manns á hverjum tíma en fjöldinn fer eftir samsetningu hópsins sem þangað mun leita.

Gylfi Þór Þorsteinsson, aðgerðar­stjóri við móttöku flótta­fólks, sagði í samtali við RÚV á föstudag að opnun fjölda­hjálpar­stöðvar væri algjört neyðar­úrræði „sem við reynum í fremstu lög að grípa ekki til því það þýðir í rauninni að allt húsnæði sé uppurið“.

Fleiri sveitarfélög verða að koma að verkefninu

Gert er ráð fyrir að fólk gisti í fjölda­hjálpar­stöðinni í takmarkaðan tíma, helst ekki lengur en þrjár nætur, og fari þaðan í önnur húsnæðis­úrræði. „Fleiri sveitar­félög verða að koma að verk­efninu ef við eigum að ná utan um það,“ segir Atli Viðar í samtali við Kjarnann.

Í síðasta mánuði höfðu yfir 2.600 manns sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi á árinu. Í búsetu­úrræðum Vinnumála­stofnunar voru á dögunum fleiri sem höfðu fengið stöðu flótta­manns en sem nam fjölda þeirra umsækjenda um vernd sem sveitar­félög þjónusta. Til þessa dags hafa ein­ungis fimm sveit­ar­fé­lög und­ir­ritað samn­ing um þátt­töku í sam­ræmdri mót­töku flótta­fólks. Það eru Reykja­vík­ur­borg, Hafn­ar­fjarð­arbær, Reykja­nesbær, Árborg og Akur­eyr­ar­bær.

Fjölda­hjálpar­stöðin verður staðsett í herbergjum í skrifstofu­húsnæði í Borgar­túni. Húsnæðið er á nokkrum hæðum og hentar verk­efninu ágætlega að sögn Atla Viðars en bæta þarf við salernis- og sturtu­aðstöðu. Gert er ráð fyrir sérstakri aðstöðu fyrir fjölskyldu­fólk. Konur og fjöl­skyldur verða á einni hæð og karlmenn á annarri hæð.

Rauði krossinn á Íslandi gegnir stoð­hlutverki við stjórn­völd í almanna­vörnum og hlutverk félagsins felst meðal annars í opnun og starf­rækslu fjölda­hjálpar­stöðva. Það er því Rauði krossinn sem sér um og rekur fjölda­hjálpar­stöðina í Borgar­túni en í nánu samstarfi við Vinnumála­stofnun, sem þjónustar umsækjendur um alþjóð­lega vernd, sem og félags- og vinnu­markaðs­ráðuneytið sem fer með mála­flokkinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár