Verndarkerfið í baklás og nauðsynlegt að fá fleiri sveitarfélög að borðinu

Yfir 2.600 manns höfðu fyrr í mánuðinum sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi á árinu. Í búsetu­úrræðum Vinnumála­stofnunar voru á dögunum fleiri sem höfðu fengið stöðu flótta­manns en sem nam fjölda þeirra umsækjenda um vernd sem sveitar­félög þjónusta.

Í upphafi þessa mánaðar voru fleiri flótta­menn komnir með vernd, og enn staddir í búsetu­úrræðum á vegum Vinnumála­stofnunar, en sem nam heildar­fjölda allra umsækjenda um alþjóð­lega vernd sem voru í þjónustu hjá Reykja­víkurborg, Hafnar­fjarðarbæ og Reykja­nesbæ samanlagt.

Þetta kemur fram í tölulegum upplýsingum sem voru til umfjöllunar á ríkis­stjórnar­fundi snemma mánaðar og Kjarninn fékk frá forsætis­ráðuneytinu.

Samkvæmt þeim upplýsingum voru alls um 870 manns stödd í búsetu­úrræðum á vegum Vinnumála­stofnunar fyrir umsækjendur um alþjóð­lega vernd. Þar af voru 400 manns þegar komin með stöðu flótta­manns hér á landi, og því ekki lengur umsækjendur um alþjóð­lega vernd.

Eftir að flótta­fólki er veitt vernd er þeim heimilt að dvelja í allt að átta vikur í húsnæði á vegum Vinnumála­stofnunar, en við veitingu verndar færist ábyrgð á fram­færslu og annarri þjónustu yfir til sveitar­félaga.

Til þessa dags hafa einungis fimm sveitar­félög undir­ritað samning um þátttöku í samræmdri móttöku flótta­fólks, þau þrjú sem áður voru nefnd auk Árborgar og Akureyrar­bæjar.

Unnið er að því að fá fleiri sveitar­félög að borðinu og segir í skriflegu svari frá forsætis­ráðuneytinu að „nauðsynlegt“ sé að fleiri sveitar­félög geri samninga um móttöku flótta­fólks.

Umsækjendur um vernd og flóttamenn

Kerfið sem smíðað hefur verið utan um móttöku fólks á flótta á Íslandi skiptist í tvennt. Í fyrsta lagi er það móttöku­kerfið fyrir þau sem hingað koma og sækjast eftir alþjóðlegri vernd, en þessi hópur fólks hefur ákveðinn rétt til þjónustu á meðan stjórn­völd vinna úr umsóknum þeirra.

Reykjavík, Hafnar­fjörður og Reykja­nesbær eru einu sveitar­félögin sem hafa samið sérstak­lega við ríkið um að sinna þjónustu við umsækjendur um alþjóð­lega vernd og voru þau samtals að þjónusta um 370 manns úr þeim hópi í byrjun september.

Í þessum þremur sveitar­félögum er Vinnumála­stofnun, sem tók nýlega við þjónustu við umsækjendur um alþjóð­lega vernd sem áður var á hendi Útlendinga­stofnunar, svo einnig með sín búsetu­úrræði.

Ef umsóknir um vernd eru samþykktar fer flótta­fólkið svo inn í samræmda mótttökukerfið, sem þjónustar hvort um sig þá sem fá stöðu flótta­manna hér á landi eftir að hafa komið hingað á eigin vegum og sótt um vernd og þá einstaklinga sem íslenska ríkið hefur ákveðið að bjóða velkomið, svokallaða kvóta­flóttamenn eða boðs­flóttamenn.

Sveitarfélög sögðust komin að þolmörkum

Tvö sveitar­félaganna þriggja sem veita umsækjendum um alþjóð­lega vernd þjónustu, Hafnar­fjörður og Reykja­nesbær, hafa á undan­förnum vikum gagnrýnt stjórn­völd á opinberum vettvangi fyrir að koma upp búsetu­úrræðum fyrir umsækjendur um vernd innan sveitar­félaganna og sagði bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar í ályktun að það væri „útilokað“ að innviðir sveitar­félagsins gætu tekið við fleira flótta­fólki í bili, sérstak­lega hvað skóla­þjónustu og stuðning til barna varðaði.

Bæjar­stjórnin í Reykja­nesbæ sagði að það væri „ekki ásættanlegt“ að ríkið væri að leigja húsnæði undir hundruð umsækjenda um vernd í einu og sama hverfinu í bænum, Ásbrúar­hverfi, og kallaði eftir því að aukið fjármagn til reksturs grunn­innviða samfélagsins, eins og skólanna og heilbrigðis­stofnunarinnar fylgdi.

Þessi mál voru til umræðu á tveimur ríkis­stjórnar­fundum snemma í mánuðinum. Þar var meðal annars lagt fram minnis­blað með þeim tölulegu upplýsingum sem finna má hér að ofan. Í svari sem Kjarninn fékk frá forsætis­ráðuneytinu sagði sem áður segir að nauðsynlegt væri að fleiri sveitar­félög gerðu samninga um við Vinnumála­stofnun um móttöku flótta­fólks.

Vinna til að stuðla að því er í gangi. Í svari frá forsætis­ráðuneytinu var félags­mála- og vinnu­markaðs­ráðuneytið sagt vinna að ljúka samningum um samræmda móttöku þannig að fjölga mætti sveitar­félögum sem taka á móti flótta­fólki sem komið er með vernd.

Í svari sem Kjarninn fékk frá því ráðuneyti á dögunum segir að ekki sé enn búið að ljúka neinum samningum, en að mörg sveitar­félög hafi setið kynningar­fund um ramma að þjónustu­samningi um samræmda móttöku flótta­fólks sem haldinn var af Sambandi íslenskra sveitar­félaga undir lok ágúst.

„Viðræður við fleiri sveitar­félög standa nú yfir en ekki liggur ljóst fyrir á þessari stundu hvaða sveitar­félög munu taka að sér móttökuna. Ráðherra vonast til að sem flest af þeim sveitar­félögum sem sýndu áhuga á því að taka þátt í verk­efninu í vor gangi til samninga um samræmda móttöku flótta­fólks og hefur lagt áherslu á að þetta sé sameiginlegt verkefni okkar allra,“ sagði í svari ráðuneytisins.

Samkvæmt forsætis­ráðuneytinu er félags- og vinnu­markaða­ráðuneytið sömuleiðis að undirbúa sviðsmynda­greiningu um húsnæðis­þörf til næstu mánaða og hvernig best sé að takast á við áskoranir sem eru framundan í þver­faglegu samstarfi.

Ríflega 2.600 sótt um alþjóðlega vernd á árinu

Árið 2022 hefur slegið öll fyrri met um komur flótta­fólks hingað til lands. Samkvæmt minnis­blaði sem lagt var í ríkis­stjórn fyrr í mánuðinum höfðu 2.621 manns sótt um alþjóð­lega vernd frá áramótum og fram til 8. september. Þar af voru 1.595 með tengsl við Úkraínu og 509 manns með tengsl við Venesúela.

Allt síðasta ár sóttu 871 manns um alþjóð­lega vernd á Íslandi og var það í takti við fjölda umsókna á árunum 2018 og 2019, en árið 2020 voru umsóknir ögn færri, eða 654, sem ætla má að hafi verið vegna ferða­takmarkana í tengslum við kórónu­veiru­faraldurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár