Borgarstjóri lagði til að nær allar breytingatillögur minnihlutans yrðu felldar

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri lagði til að nær allar breytinga­tillögur minni­hluta borgar­stjórnar við fjárhags­áætlun borgarinnar yrðu felldar. Búast má við því að umræðan um hagræðingu í Reykja­víkurborg standi fram á kvöld.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Borgar­stjórn Reykja­víkurborgar mun á fundi sínum í dag taka afstöðu til hagræðingar­aðgerða sem grípa á til vegna halla­reksturs borgarinnar og má búast við að síðari umræða um fjárhags­áætlun borgarinnar standi fram á kvöld.

Samkvæmt því sem kom fram í ræðu Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra við upphaf borgar­stjórnar­fundarins er útlit fyrir að fátt sem minni­hluti borgar­stjórnar lagði til verði samþykkt á fundinum, en borgar­stjórinn fór í ræðu sinni lið fyrir lið yfir allar þær breytinga­tillögur sem flokkarnir í minni­hlutanum lögðu fram.

Þeim verður nær öllum hafnað, ef meirihlutinn fer að tillögum borgar­stjóra við atkvæða­greiðslur síðar í dag.

Að sama skapi mælti borgar­stjórinn með því að nær allar þær 92 breytinga­tillögur sem borgar­stjórnar­meirihlutinn lagði fram í síðustu viku yrðu samþykktar í óbreyttri mynd, en sumar þeirra hafa verið harðlega gagn­rýndar, ekki síst þær sem snerta þjónustu við börn og ungmenni, eins og til dæmis vænt lokun Sigluness í Naut­hólsvík.

Þó hefur komið fram að til standi að endur­skoða þá ákvörðun, en tillög­unni var mótmælt í sal borgar­stjórnar fyrir borgar­stjórnar­fund dagsins.

Til í að selja sumarbústað borgarstjórnar en fátt annað frá Sjálfstæðisflokki

Sjálfstæðis­flokkurinn setti fram ýmsar tillögur sem flokkurinn taldi að gæti í heildina sparað borginni um 7 milljarða króna á næsta ári. Borgar­stjóri sagðist leggja til að þær yrðu nær allar felldar.

Á meðal þess sem sjálfstæðis­menn lögðu til var að dregið yrði saman á þróunar- og nýsköpunar­sviði borgarinnar, fjár­festingum í umbreytingu Grófar­húss yrði frestað og að fjár­festingum í breytingum á svæðinu umhverfis Hlemm yrði frestað.

Einnig vildi Sjálfstæðis­flokkurinn fela utan­aðkomandi ráðgjöfum að rýna í rekstur borgarinnar, framkvæma stjórn­kerfis­úttekt og skila tillögum að 5 prósenta niður­skurði á launum og launa­tengdum gjöldum fyrir 1. mars 2023. Borgar­stjóri lagði til að þessi tillaga yrði felld, rétt eins og aðrar hagræðingar­tillögur í stjórn­sýslunni sem Sjálfstæðis­flokkurinn lagði til að ráðist yrði í.

Borgar­stjóri lagði hins vegar til að tillögum Sjálfstæðis­flokksins um tekju­aukandi aðgerðir, með fjölgun lóða­úthlutana undir fjöl­breyttar gerðir íbúðar­húsnæðis og fjöl­breytta atvinnu­starfsemi, yrði vísað frá þar sem fjölgun lóða­úthlutana væri þegar á áætlun borgarinnar.

Sjálfstæðis­flokkurinn lagði einnig til eignasölu, að Ljós­leiðarinn ehf. yrði seldur og að sumarhús sem borgar­stjórn á yrði selt. Dagur lagði til að samþykkt yrði að sumarhús borgar­stjórnar yrði selt, en lagði til að tillaga um sölu Ljós­leiðarans yrði felld. Borgar­stjóri sagði að fróðlegt yrði að heyra rökstuðning sjálfstæðis­manna fyrir því að væru frábærar aðstæður fyrir hendi á markaði til þess að selja Ljós­leiðarann.

Sjálfstæðis­flokkurinn lagði einnig til að rekstur allra bílastæða­húsa Reykja­víkurborgar yrði boðinn út og sagðist Dagur mæla með því að þeirri tillögu yrði vísað inn í hóp sem þegar er að störfum um bættan rekstur bílastæða­húsa borgarinnar.

Eins manns borgar­stjórnar­flokkur Vinstri grænna lagði fram nokkrar breytinga­tillögur, og lagði borgar­stjóri til að þær yrðu allar felldar nema ein. Það er tillaga um að borgin selji alla bíla sem ganga fyrir jarðefna­eldsneyti og skipti út flotanum fyrir umhverfis­vænni og sparneytnari bíla. Borgar­stjóri sagðist leggja til að eigna­skrifstofu borgarinnar yrði falið að skoða þessa tillögu nánar.

Borgar­fulltrúar Sósíalista­lista­flokksins lögðu til átta tillögur og lagði borgar­stjóri til að þær yrðu allar felldar, en benti þó á að ein tillaga flokksins, um að fá meira fé frá ríkinu vegna NPA-samninga, hefði verið í kröfugerð borgarinnar á hendur ríkinu og væri líklega að nást í gegn í yfir­standandi fjárlaga­vinnu yfir á Alþingi.

Sósíalista­flokkurinn lagði einnig til að vísitölu­tenging húsaleigu hjá Félags­bústöðum yrði afnumin og sagði borgar­stjóri að hann skildi ekki að þessi tillaga kæmi frá Sósíalista­flokknum, þar sem þessi aðgerð „myndi grafa mjög hratt undan félaginu“.

Borgar­stjóri lagði svo til að allar sautján tillögurnar sem bárust frá Flokki fólksins yrðu felldar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár