Lífeyrissjóðir tapa hundruð milljóna á fjárfestingu í breskri fatabúð

Duchamp var herrafataverslun sem stofnuð var árið 1989. Síðan að greiðslustöðvunin var veitt hefur dómskipaður matsmaður unnið að því að selja eignir félagsins.
Duchamp var herra­fata­verslun sem stofnuð var árið 1989. Síðan að greiðslu­stöðv­unin var veitt hefur dóm­skip­aður mats­maður unnið að því að selja eignir félags­ins.

Ellefu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og fjórir aðrir íslenskir fjár­festar munu tapa meira en 500 millj­ónum króna á fjár­festu í fata­verslun í mið­borg London, Duchamp. Fjár­fest­arnir keyptu versl­un­ina í gegnum sjóð­inn Arev N II í mars 2015 á af félag­inu Földungi, sem var í eigu slita­bús Glitnis. Kaup­verðið var um 400 millj­ónir króna auk þess sem lán voru veitt. Duchamp var veitt greiðslu­stöðvun í byrjun júlí. Í Morg­un­blað­inu í dag segir að lík­legt sé að end­ur­heimtir fjár­fest­ing­ar­innar, sem sam­an­lagt er yfir hálfum millj­arði króna, verði engar.

Duchamp var herra­fata­verslun sem stofnuð var árið 1989. Auk versl­unar í London rak fyr­ir­tækið fata­verslun á net­inu. Síðan að greiðslu­stöðv­unin var veitt hefur dóm­skip­aður mats­maður unnið að því að selja eignir félags­ins.

Misfellur tilkynntar til FME í sumar

Arev N II sjóðnum var stýrt af Arev verð­bréfa­fyr­ir­tæki. Hann komst í fréttir í sumarþegar greint var frá því að tvö félög sem tengj­ast Arev verð­bréfa­fyr­ir­tæki greiddu ekki hlutafé inn í sjóð­inn í sam­ræmi við það sem þau lof­uðu að ger­a. Þetta sagði Gunnar Sturlu­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og einn eig­anda lög­manns­stof­unnar LOGOS, við Kjarnann í júní þegar hann tók við sem er nýr stjórn­ar­for­maður Arev N II, ­sem hafði þá verið tek­inn úr stýr­ingu hjá Arev. LOGOS var sömu­leiðis falið að til­kynna um það sem stofan álitur „al­var­legar mis­fellur í rekstri Arev N II“ til­ Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME).

Hlut­hafar í Arev N II eru fimmtán tals­ins. Þar af eru ell­efu líf­eyr­is­sjóð­ir. Hlut­hafar skuld­bundu sig til að leggja sjóðnum til hlutafé sem ­kallað var eftir jafn­óðum og fjár­fest var sam­kvæmt ráð­gjöf Arev verð­bréfa­fyr­ir­tæk­is. Alls átti nafn­verð hluta­fjár að vera tæp­lega 660 millj­ón­ir króna í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins.

Gunnar sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í byrjun júní. Þar kom fram að á hlut­hafa­fundi fag­fjár­festa­sjóðs­ins Arev N II þann 26. maí síð­ast­lið­inn hafi verið sam­þykkt að skipta um ábyrgð­ar­að­ila og þar með stjórn sjóðs­ins. G­unnar tók þá við sem nýr stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins. Í kjöl­farið rifti stjórnin samn­ing­i við Arev verð­bréfa­fyr­ir­tæki um eigna­stýr­ingu sjóðs­ins. Í frétta­til­kynn­ing­unn­i ­sagði: „Komið hafa í ljós alvar­legar mis­fellur í rekstri Arev N II og var LOGOS lög­manns­þjón­ustu falið að til­kynna um þær til­ Fjár­mála­eft­ir­lits­ins“.

Gunnar sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið í júní að hinar alvar­leg­u mis­fellur felist í því að hlut­hafar sjóðs­ins, sem eru meðal ann­ars ell­efu líf­eyr­is­sjóð­ir, voru ekki upp­lýstir um að tvö félög í hlut­hafa­hópnum höfðu ekki ­staðið við hluta­fjár­lof­orð sín. „Við teljum það mjög aðfinnslu­vert, ­sér­stak­lega í ljósi tengsla umræddra hlut­hafa við Arev verð­bréfa­fyr­ir­tæki sem sá um eigna­stýr­ingu.“

Arev var stofnað árið 1996 og eru hlut­hafar þess Eign­ar­halds­fé­lagið Arev hf. (99,94 pró­sent) og Jón Schev­ing Thor­steins­son (0,06 pró­sent) sem jafn­fram­t er eig­andi Eign­ar­halds­fé­lags­ins Arev hf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár