„Lamið á“ Áslaugu og hún „hengd“ af því hún er kona

Þingkona Framsóknar­flokksins og vara­þingkona Vinstri grænna segja fjölmiðla lemja á formanni allsherjar- og menntamála­nefndar vegna þess að hún er kona. Áslaug Arna sagði Frétta­blaðinu að hún hygðist ekki endur­skoða hegðun sína á samfélags­miðlum, enda hafa beðist afsökunar.

Eygló Harðar­dóttir, þingkona Framsóknar­flokksins, og Hildur Knúts­dóttir, vara­þingkona Vinstri grænna, telja að Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis, sæti ómaklegum árásum í kjölfar mistaka sinna vegna þess að hún er kona. „Áfram er lamið á henni. Nú skal sko taka hana niður,“ segir Eygló í færslu á Facebook. 

Stundin greindi frá því í byrjun vikunnar að Áslaug Arna hefði óskað eftir aðstoð á Twitter svo hún gæti horft á streymi af hnefaleika­bardaga Conor McGregor og Floyd Mayweather. Haft var eftir stjórnar­formanni Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmynda­iðnaði að það væri sorglegt að þingmenn nýttu sér ólöglega þjónustu. Fleiri fjöl­miðlar fjölluðu um málið í kjölfarið og baðst Áslaug Arna að lokum afsökunar á hegðun sinni. Stundin greindi frá því sama dag að Áslaug Arna hefði lagst sérstak­lega gegn því að fjallað yrði um uppreist æru kynferðis­brota­mannsins Roberts Downey á opnum fundi allsherjar- og menntamála­nefndar, en dregið í land eftir að nefnda­svið Alþingis skilaði áliti um málið.

Í dag greindi svo Frétta­blaðið frá því að Áslaug hefði lækað Twitter-færslu um að ósk um fund þing­nefndar væri lýðskrum. Lækið var sett í samhengi við fundi þing­nefnda síðustu misserin um veitingu uppreistar æru. Aðspurð sagði Áslaug í viðtali við Frétta­blaðið að hún teldi ekki ástæðu til að endur­skoða hegðun sína á samfélags­miðlum í ljósi stöðu sinnar og ábyrgðar. „Nei, það tel ég ekki. Ég er búin að biðjast afsökunar á þessu tísti sem var þarna inni í örskamma stund og taldi vera mistök. Að öðru leyti tel ég það ekki vera,“ er haft eftir henni í Frétta­blaðinu. 

Eygló Harðar­dóttir, þingkona Framsóknar­flokksins, tjáir sig um frétta­flutning af Áslaugu Örnu á Facebook í dag. „Kona gerir mistök og biðst afsökunar. Áfram er lamið á henni. Nú skal sko taka hana niður. Karl gerir mistök. Allt í þessu fína,“ skrifar hún.

„Konur í pólitík fá alltaf verri útreið en karlar“

Þá leggur Hildur Knúts­dóttir, vara­þingkona Vinstri grænna, orð í belg: „Mér sýnist á frétta­flutningi að nú eigi að hengja Áslaugu Örnu. Ég er ekki að segja að mér finnist hún endilega flekklaus stjórn­málamaður, því fer fjarri, en ég er orðin svo þreytt á því að sjá hvernig konur í pólitík fá alltaf verri útreið en karlar. Það er engu líkara en að það séu gerðar miklu strangari siðferðis­kröfur til þeirra. Getum við til dæmis munað að Bjarni Ben, forsætis­ráðherrann sjálfur, var í Panama­skjölunum? Og getum við munað þátt hans í Vafnings­málinu? Og hversu oft hefur fólk tengt honum hagnast á einka­væðingu ríkisins?“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár