Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í bandarísku forsetakosningunum sem fram fara 3. nóvember næstkomandi, hefur valið Kamala Harris sem varaforsetaefni sitt.
Biden hafði gefið það út að hann myndi velja konu í hlutverkið en margar voru taldar koma til greina. Harris, sem er öldungadeildarþingmaður Kaliforníuríkis og fyrrum umdæmissaksóknari, sóttist eftir útnefningu Demókrata sem forsetaefni flokksins og þótti nokkuð líkleg í baráttunni um hana á tímabili, sérstaklega eftir harkalega gagnrýni á Biden í kappræðum um málefni minnihlutahópa fyrir rúmu ári síðan. Hún dró sig þó síðar í hlé í desember í fyrra.
Vinni Biden og Harris komandi kosningar mun hún verða fyrsta konan til að gegna embætti varaforseta, fyrsti svarti einstaklingurinn til að gera það og sá fyrsti sem er af asísku bergi brotinn. Harris er í dag eina svarta konan í öldungadeild Bandaríkjaþings, en þangað var hún kosin árið 2016.
Harris er 55 ára og því 22 árum yngri en Biden, sem verður elsti Bandaríkjaforseti sögunnar þegar hann tekur við embætti hljóti hann kjör.
Biden hefur haft gott forskot á Donald Trump, forseta Bandaríkjanna og forsetaefni Repúblikanaflokksins í komandi kosningum, samkvæmt könnunum. FiveThity Eight, sem vigtar gerðar kannanir, segir til að mynda að Biden sé með 8,3 prósentustiga forystu á Trump á landsvísu. Auk þess hefur Biden verið að mælast með meira fylgi í mikilvægum sveifluríkjum sem Trump sigraði í 2016, og þarf að sigra aftur til að eiga möguleika á að sitja annað kjörtímabil.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir