Vilja Geysi, Brennisteinsfjöll og Arnardalsvirkjun í verndarflokk

Jökulsá á Fjöllum, Geysis­svæði og Hólmsá eru meðal tillagna verk­efna­stjórnar ramma­áætlunar að verndar­svæðum. Alls færu fjórtán virkjana­hugmyndir í verndar­flokk ef tillagan er samþykkt.

Geysir
Geysir Er ein virkj­ana­hug­mynd sem verk­efna­stjórn ramma­á­ætl­unar vill setja í vernd­ar­flokk. Mynd: Shutterstock

Verk­efnastjórn 6. áfanga ramma­áætlunar hefur lagt til átta verndar­svæði sem setja 14 virkjana­kosti í verndunar­flokk. Um er að ræða fjögur vatnasvið og fjögur háhita­svæði. Vatna­sviðin eru Jökulsá á Fjöllum, Hólmsá, Tungnaá og Jökulfall og Hvítá. Háhita­svæðin eru Brennisteins­fjallasvæði, Geysis­svæði, Kerlinga­fjallasvæði og Gjástykkis­svæði.

Tillögur verk­efna­stjórnar birtust í samráðs­gátt í vikunni og stendur umsagnar­tímabil til 23. nóvember. Meðal virkjana­hugmynda sem færu í verndar­flokk eru Geysir, einn vinsælasti ferðamanna­staður landsins, Hólmsár­virkjun, Brennisteins­fjöll og Arnar­dalsvirkjun sem hefði orðið til þess að Detti­fossi, öðrum vinsælum ferðamanna­stað, yrði breytt.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár