Forsætisráðherra telur stóreignafólk sæta óþægilegri umræðu

Forsætis­ráðherra svarar því ekki hvort sett verði af stað vinna í stjórn­sýslunni til að skoða aðkomu og meinta innherja­stöðu Sigmundar Davíðs í samningum við kröfuhafa.

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætis­ráðherra segir að á Íslandi þyki það gagnrýni­vert að eiga fjármuni. Eignafólk sé iðulega á milli tannanna á fólki og að það geti verið erfitt. Þetta kom fram í svari hans við fyrir­spurn Ólínu Kjerúlf Þorvarðar­dóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, sem bað forsætis­ráðherra um að útskýra hvað hann hefði átt við þegar hann sagði nýverið í viðtali að það væri greini­lega erfitt að eiga peninga á Íslandi. 

Að sögn Sigurðar verður að skoða ummæli hans í því ljósi að þau voru látin falla þegar hann „gekk niður stjórnar­ráðs­tröppurnar samhliða blaða­manni sem spurði spurninga án þess að við værum í formlegu viðtali“. Hann útskýrði ummæli sín með eftir­farandi hætti: „Þar var ég að tala um samfélagið. Vegna þess að það hefur alltaf, í mjög langan tíma, verið mjög á milli tannanna á fólki þeir sem eiga fjármuni. Það getur stundum verið erfitt, það er oft gagnrýni­vert á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttar­stöðu rannsóknar­þola

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, setti fram alvarlegar ásakanir á hendur Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra í Silfrinu síðustu helgi. Skatt­rannsóknar­stjóri telur sér ekki heimilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið réttar­stöðu rannsóknar­þola eftir kaup á gögnum um aflandsfélög Íslendinga og uppljóstr­anir Panama­skjalanna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár