Bloomberg hleypur í skarðið sem Trump skildi eftir

Millj­arða­mær­ing­urinn Michael Bloomberg hefur ákveðið að greiða það sem Banda­ríkin áttu að greiða, til að uppfylla Parísar­samkomu­lagið.

Milljarðamæringurinn Michael Bloomberg hefur ákveðið að greiða það sem upp á vantar, svo að Banda­ríkin uppfylli skuld­bindingar sínar vegna Parísarsamkomulagisins, þegar kemur að fjárhags­legum stuðningi við tiltekin verkefni.

Eins og kunnugt er dró Donald Trump Bandaríkja­forseti þjóð sína út úr Parísar­samkomu­laginu, þar sem hann taldi það ekki þjóna hagsmunum Banda­ríkjanna nægilega vel.

Meðal þess sem gerðist með þeirri ákvörðun, var að 450 milljóna króna fjár­veiting til stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC), sem vinnur að marg­víslegum aðgerðum til að draga úr neikvæðum áhrifum loftslags­breytinga og hlýnunar jarðarinnar, féll niður.

Bloomberg hyggst greiða þessa upphæð til stofnunarinnar. Hann segir að Banda­ríkin hafi skuld­bundið sig, líkt og 187 þjóðir heimsins, til að grípa til aðgerða á grund­velli Parísar­samkomu­lagsins. Vinnan sé komin af stað, og það sé ekki í boði að hætta stuðningi. „Ég er fær um að gera þetta, og finn til ábyrgðar,“ sagði Bloomberg.

Þrátt fyrir að stjórn­völd í Banda­ríkjunum hafi dregið Banda­ríkin formlega út úr Parísar­samkomu­laginu, þá hafa allar stærstu borgir Banda­ríkjanna ákveðið að taka af fullum krafti þátt í aðgerðunum á grund­velli Parísar­samkomu­lagsins.

Það sama hafa fyrirtæki gert, þar á meðal stór­fyrirtæki í olíu­iðnaði eins og Exxon Mobile.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár