ESB kynnir leiðir til að minnka losun um 55% á næstu níu árum

Evrópu­sambandið var í dag fyrst allra hagkerfa til að kynna útfærslur á því hvernig standa ætti við skuld­bindingar um boðaðan samdrátt í losun gróðurhúsa­lofttegunda á næstu árum.

Ursula von der Leyen, forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
Ursula von der Leyen, for­seti Fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins Mynd: EPA

Stöðva ætti fram­leiðslu bíla sem ganga fyrir jarðefna­eldsneyti, auk þess sem kolefnis­skattur ætti að vera settur á innfluttar vörur og fleiri fyrirtæki ættu að þurfa að greiða fyrir losunar­heimildir. Þetta eru á meðal tillagna sem Evrópu­sambandið kynnti í dag sem leiðir til að draga hratt úr losun gróðurhúsa­lofttegunda á næstu árum.

Gæti tekið mánuði að koma í gegnum þingið

Tillögurnar eru alls 13 talsins og koma í kjölfar ákvörðunar 27 aðildar­ríkja sambandsins um að láta losunina á svæðinu verða 55 prósent minni en hún var árið 1990 innan níu ára. Þær eru þó ekki bindandi, en samkvæmt umfjöllun New York Times um málið má búast við að það taki allt að tvö ár fyrir aðildar­ríki sambandsins til að koma þeim í gegnum Evrópu­þingið.

Hins vegar segir evrópska efnahags­hugveitan Bruegel að Evrópu­sambandið sé fyrsta hagkerfið í heimi sem hafi komið með raunvörulegar tillögur að því hvernig sé hægt að standa við fyrri skuld­bindingar um minni losun í fram­tíðinni.

Engir nýir bensínbílar eftir 14 ár

Á meðal helstu tillagnanna eru áætlanir um að stöðva fram­leiðslu bíla sem gagna fyrir jarðefna­eldsneyti fyrir árið 2035, auk þess sem flugélögum verði gert að nota minna jarðefna­eldsneyti. Einnig er lagt til að byggingar og farartæki muni þurfa að greiða fyrir losunar­heimildir, auk þess sem verðið á slíkum heimildum verði hærra fyrir ýmsa fram­leiðslu. Framkvæmda­stjórnin vill einnig meina skipum sem notast ekki við hreina orkugjafa að koma í höfn hjá aðildar­ríkjum sambandsins.

Tillögurnar innihalda einnig jákvæða hvata til losunar, líkt og uppbyggingu hleðslu­stöðva fyrir bíla um alla álfuna, en hingað til hafa flestar þeirra verið stað­settar í Þýska­landi, Frakk­landi og Hollandi. Einnig mun sambandið stofna sjóð sem aðildar­ríkin geta notað til þess að bæta heimilum og litlum fyrir­tækjum það fjártjón sem hlýst af vaxandi kolefnis­sköttum og þeim takmörkunum sem settar verða á til að ná niður losun.

Kolefnisskattur á innfluttum vörum

Eitt af umdeildustu tillögunum er hins vegar álagning kolefnis­skatta á innfluttar vörur, sem Evrópu­sambandið segir vera nauðsynlegt til að gæta jafnræðis milli innlendra og erlendra fram­leiðenda. Samkvæmt minnis­blaði sem lak út frá framkvæmda­stjórninni í síðasta mánuði er líklegt að skatt­lagningin nái til fram­leiðslu á stáli, sementi, járni og áburði.

Slík skatt­lagning hefur mætt mikilli andstöðu frá Kína og Indlandi og samkvæmt umfjöllun New York Times um málið er ekki mikill stuðningur fyrir henni í Japan heldur. Hins vegar er óvíst hvernig viðbrögðin verða hjá yfir­völdum í Banda­ríkjunum við þessar tillögur, þar sem þau vilja vernda stál­framleiðslu þar í landi en hafa samt gefið út að þau vilja vinna náið með Evrópu­sambandinu í umhverfis­málum

Ekkert jógastúdíó

Stefnu­mótunar­pakkinn sem innihélt þessar tillögur hefur fengið á sig nokkra gagnrýni fyrir nafnið sitt, „Fit for 55“. Steven Erlanger, blaða­maður New York Times, sagði nafnið passa betur fyrir jóga­stúdíó í úthverfum og Dave Clark, frétta­stjóri AFP í Brussel líkti það við stefnumóta­forrit fyrir miðaldra fólk.

Í umfjöllun Politico um málið var haft eftir hátt settum embættis­manni framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins að engin sérstök ástæði hafi verið að baki nafngiftinni og að engin dýpri merking lægi í henni. Hins vegar sagði hann að markaðs­setning framkvæmda­stjórnarinnar liði oft fyrir það að of margir kæmu að henni.

Segir pakkann ekki ganga nógu langt

Pakkinn hefur einnig mætt gagnrýni fyrir að ganga ekki nógu langt í áætlunum sínum. Loftslags­aðgerðar­sinnin Greta Thunberg sagði í Twitter-færslu, sem sjá má hér að ofan, að meðal­hitastig á jörðinni myndi óhjá­kvæmilega hækka um meira en eina og hálfa gráðu ef tillögurnar yrðu samþykktar í núverandi mynd. Samkvæmt Gretu er þetta ekki skoðun hennar, heldur vísindaleg staðreynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár