Stærsti bankinn ríður á vaðið og hækkar vexti á íbúðalánum í kjölfar stýrivaxtahækkunar

Stýri­vextir voru hækkaðir um 0,5 prósent í síðustu viku. Fyrir liggur að íbúðalána­veitendur munu hækka óverð­tryggðra vexti sína í kjölfarið. Sá fyrsti, Lands­bankinn, gerði slíkt í dag. Um helmingur allra íbúðalána er nú óverð­tryggður.

Höfuðstöðvar Landsbankans.
Höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Lands­bankinn hefur fyrstur stóru bankanna þriggja brugðist við stýri­vaxtahækkun Seðla­banka Íslands í síðustu viku og hækkað íbúðalána­vexti sína. Seðla­bankinn ákvað að hækka stýri­vexti um 0,5 prósentu­stig upp í tvö prósent, en þeir vextir hafa nú hækkað um 1,25 prósentu­stig úr 0,75 prósentum í maí.

Viðbúið er að allir lánveitendur á íbúða­lánamarkaði hækki óverðtryggða vexti sína vegna þessa og í dag tilkynnti Lands­bankinn, stærsti banki landsins sem er að nær öllu leyti í eigu íslenska ríkisins, að breyti­legir vextir á óverðtryggðum íbúða­lánum Lands­bankans myndu hækka um 0,35 prósentu­stig. Þeir verða eftir breytinguna 4,20 prósent.

Fastir vextir á óverðtryggðum íbúða­lánum bankans til þriggja ára hækka um 0,30 prósentu­stig og um 0,25 prósentu­stig á óverðtryggðum íbúða­lánum til fimm ára. Lægstu fastir vextir á óverðtryggðum íbúða­lánum verða eftir breytinguna 4,65 prósent.

Vextir á verð­tryggðum íbúða­lánum, bæði breyti­legir og fastir, verða óbreyttir.

Mun bíta í buddu margra landsmanna

Ljóst er að hækkun á vöxtum Lands­bankans, og hinna stóru bankanna sem munu án efa fylgja í kjölfarið á næstu dögum, mun bíta í buddu lands­manna. Stóru bankarnir þrír hafa sópað til sín íbúða­lánum frá síðasta vori samhliða því að húsnæðis­verð hefur hækkað skarpt og upphæðir lána samhliða hækkað mikið. Hlutdeild banka í útistandandi íbúða­lánum er nú um 70 prósent en var 55 prósent í byrjun árs 2020.

Á sama tíma og þessi þróun hefur átt sér stað hefur orðið eðlis­breyting á lántökum lands­manna við það að hlutfall óverðtryggðra lána af öllum íbúða­lánum hefur hækkað gríðar­lega. Það var 27,5 prósent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 prósent.

Hagnaður stóru bankanna þriggja: Lands­bankans, Íslands­banka og Arion banka var 60 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er meiri hagnaður en þeir hafa skilað innan heils árs frá 2015. Hagnaðurinn er drifinn áfram af vaxta­tekjum, aðallega vegna íbúðalána, og hærri þóknana­tekjum. Vaxta­munur stóru bankanna, sem er umtals­vert hærri en í samanburðar­löndum, hefur haldist tiltölu­lega stöðugur þrátt fyrir að banka­skattur hafi verið lækkaður umtals­vert.

Lífeyrissjóðirnir með bestu kjörin

Sem stendur bjóða lífeyris­sjóðir upp á hagstæðustu óverðtryggðu íbúða­lánin. Það gæti þó breyst í nánustu framtíð þegar næstu ákvarðanir um vaxta­töflu lána þeirra verða teknar.

Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­­sjóður lands­ins, býður bestu óverð­­tryggðu kjörin sem stend­­ur, 3,45 pró­­sent vexti, og Brú líf­eyr­is­­sjóður býður upp á 3,8 pró­­sent vext­i.

Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­­sjóður lands­ins, ákvað í síð­asta mán­uði að stofna nýjan lána­­flokk sjóðs­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­tryggð lán til íbúð­­ar­­kaupa með breyt­i­­legum vöxt­­um. Vextir hans eru nú 3,85 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár