Bankarnir högnuðust meira á níu mánuðum en þeir hafa gert innan árs frá 2015

Sam­eig­in­legur hagn­aður stóru bank­anna þriggja á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var rúm­lega 60 millj­arðar króna. ð

Kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír á Íslandi: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki voru stofn­settir á grunni fall­inna fyr­ir­renn­ara sinna haustið 2008. Þeir tóku við miklu magni eigna sem ekk­ert lá fyrir um hversu mik­ils virði væru, enda glund­roði á fjár­mála­mörk­uðum í heim­inum á þeim tíma og íslenska fjár­mála­kerfið hafði hrunið nán­ast í heild sinni.

Bank­arnir sátu auk þess uppi með fjölda fyr­ir­tækja, eða hluti í fyr­ir­tækjum, sem þeim var falið að end­ur­skipu­leggja og selja svo. Sum fyr­ir­tækin voru seld í beinni sölu en önnur í gegnum útboð í aðdrag­anda skrán­ingar á hluta­bréfa­markað.

End­ur­heimtur á lánum fyr­ir­tækja reynd­ust vera tölu­vert betri en reiknað var með sem mynd­aði við­bótar, en ein­skiptis, hagnað hjá öllum bönk­unum þremur. Sömu­leiðis seldu þeir ýmsar eignir sem þeir sátu uppi með eftir banka­hrunið á mun hærra verði en þær voru upp­haf­lega bók­færðar á. Fyrir vikið mynd­að­ist mik­ill hagn­aður af rekstri bank­anna á þessum árum.

Eigið fé bank­anna þriggja hefur líka vaxið mikið á þessu tíma­bili. Það var sam­an­lagt tæp­lega 300 millj­arðar króna árið 2008 en var komið upp í rúm­lega 667 millj­arða króna sam­an­lagt í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Á manna­máli þýðir það að bank­arnir eru rúm­lega tvisvar sinnum stærri nú en þeir voru við stofnun.

Vegna ofan­greinds er erfitt að horfa ein­ungis á krónur þegar rýnt er í hagn­að­ar­tölur kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna hér­lendis. Taka verður til­lit til þess að þeir hagn­ast aðal­lega á und­ir­liggj­andi starf­semi, vaxta- og þókn­ana­tekjum, í dag en högn­uð­ust að stóru leyti áður á eigna­sölu og betri end­ur­heimtum á lánum.

Einn mæli­kvarði til að meta hagnað er arð­semi eigin fjár. Þangað til í ár var hún hæst á árunum 2010 og 2016 (tæp­lega 16 pró­sent að með­al­tali hjá öllum þremur bönkum). Í ár stefnir hún í að vera sú hæsta í mörg ár. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var arð­semi eigin fjár hjá Lands­bank­anum 10,9 pró­sent, hjá Íslands­banka 11,7 pró­sent og hjá Arion banka heil 15,2 pró­sent. Allt er þetta yfir mark­miðum bank­anna. Þegar horft er á síð­ast árs­fjórð­ung, sem hófst í byrjun júlí og lauk í lok sept­em­ber, er arð­semin enn hærri. Hjá Arion banka var arð­semin 17 pró­sent, hjá Íslands­banka 15,7 pró­sent og hjá Lands­bank­anum ell­efu pró­sent. Það er ekki langt frá bestu árum bank­anna eftir hrun.

Mesti hagnaður síðan 2015

Arion banki (22,1 millj­arður króna), Lands­bank­inn (21,6 millj­arðar króna) og Íslands­banki (16,6 millj­arðar króna) högn­uð­ust um sam­tals 60,3 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021. Mestur hagn­aður féll til á þriðja árs­fjórð­ungi, eða alls 23 millj­arðar króna.

Sam­eig­in­legur hagn­aður bank­anna á þessu níu mán­aða tíma­bili er meiri en hann hefur verið innan heils árs frá árinu 2015.

Það ár var sam­eig­in­legur hagn­aður bank­anna þriggja 106,8 millj­arðar króna. Það er mesti hagn­aður þeirra á einu ári frá stofnun þeirra og fram til dags­ins í dag. Næstum helm­ingur hagn­að­ar­ins var hjá Arion banka, eða 49,7 millj­arðar króna.

Af­koma Arion banka á árinu 2015 bar þess merki að til lykta voru leidd nokkur umfangs­mikil úrlausn­ar­mál sem vörð­uðu mikla hags­muni fyrir bank­ann. Fyrst og fremst er um að ræða sölu bank­ans á hlutum í fimm félög­um: Reitum fast­eigna­fé­lagi hf., Eik fast­eigna­fé­lagi hf., Sím­anum hf., alþjóð­lega drykkj­ar­fram­leið­and­anum Refresco Gerber og Bakkavor Group Ltd. Öll voru félögin skráð í kaup­höll hér á landi eða erlend­is, nema eign­ar­hlut­ur­inn í Bakkavor Group sem var seldur í kjöl­far sölu­ferlis í umsjón Barclays bank­ans. Þetta skil­aði næstum 30 millj­örðum króna í kass­ann.

Afkoma Lands­bank­ans, sem var jákvæð um 36,5 millj­arða króna, orsak­að­ist meðal ann­ars af því að hreinar virð­is­breyt­ingar útlána skil­uðu tekju­færslu upp á 18 millj­arða króna.

Hækkandi eignarverð eykur hagnað banka

Tekjur bank­anna á þessu ári eru allt ann­ars eðlis. Þær falla ann­ars vegar til vegna auk­inna vaxta- og þókn­ana­tekna og hins vegar til vegna þess að var­úð­ar­nið­ur­færslur á lánum fyr­ir­tækja sem lentu í vanda eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hafa verið dregnar að hluta til baka. Þar hafa aðgerðir stjórn­valda og seðla­banka til að örva efna­hags­kerfið í kjöl­far kór­ónu­veiru­krepp­unnar skipt miklu máli. Þær hafa leitt til mik­illa verð­hækk­ana á hús­næð­is­mark­aði vegna stór­auk­innar eft­ir­spurnar, aðal­lega vegna þess að vextir voru lækk­aðir skarpt. Þá hefur hluta­bréfa­verð rúm­lega tvö­fald­ast frá því í mars í fyrra.

Í til­felli Lands­bank­ans juk­ust hreinar þjón­ustu­tekjur bank­ans til að mynda um 22 pró­sent milli ára sam­kvæmt upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung, einkum vegna vax­andi umsvifa í eigna­stýr­ingu og mark­aðsvið­skiptum. Auknar vaxta­tekjur skýr­ast ekki síst af auknum útlánum til íbúða­lána, en mark­aðs­hlut­deild rík­is­bank­ans á ein­stak­lings­mark­aði er nú um 39 pró­sent og hefur aldrei verið meiri. Mark­aðs­hlut­deild í íbúða­lánum hefur auk­ist um 2,7 pró­sentu­stig frá ára­mótum. Hún mælist nú 28,7 pró­sent og hefur sömu­leiðis aldrei verið meiri.

Lækkun stýrivaxta niður í 0,75 prósent setti af stað mikla eftirspurnaraukningu eftir því að taka lán til íbúðakaupa. Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Lækkun stýri­vaxta niður í 0,75 pró­sent setti af stað mikla eft­ir­spurn­ar­aukn­ingu eftir því að taka lán til íbúða­kaupa. Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri.

Hjá Arion banka juk­ust útlán til við­skipta­vina um níu pró­sent milli ára. Þar er aðal­lega um að ræða íbúð­ar­lán þar sem heild­ar­um­fang lána bank­ans til fyr­ir­tækja hefur dreg­ist saman. Tekjur Arion banka af kjarna­starf­semi, vaxta- og þókn­ana­tekjur, hafa auk­ist um 19,3 pró­sent ef miðað er við fyrstu níu mán­uði síð­asta árs. Bankinn á enn eftir að bók­færa um 3,5 millj­arða króna sölu­hagnað á Valitor til ísra­elska fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd, en sú sala er ekki að fullu frá­gengin vegna þess að ekki liggur enn fyrir sam­þykki eft­ir­lits­að­ila. Arion banki ætlar að greiða hlut­höfum sínum um 30 millj­arða króna út í arð eða með end­ur­kaupum á hluta­bréfum á næstu árum til við­bótar við þá 21,3 millj­arða króna sem þegar hefur verið ákveðið að skila til þeirra með slíkum aðferðum.

Hreinar þókn­ana­tekjur Íslands­banka juk­ust um 20 pró­sent milli ára þegar miðað er við þriðja árs­fjórð­ung í ár ann­ars vegar og sama tíma­bil í fyrra. Bankinn leggur aðal­á­herslu á kjarna­starf­semi þar sem vaxta­tekjur og þókn­ana­tekjur voru sam­an­lagt 92 pró­sent af rekstr­ar­tekjum á síð­asta árs­fjórð­ungi, en þessir tveir tekju­liðir juk­ust sam­an­lagt um á milli ára.

Virð­is­rýrnun útlána var jákvæð á um 1,8 millj­arða króna á síð­asta árs­fjórð­ungi og skýrist helst af batn­andi útliti í ferða­þjón­ustu og lækk­aðri virð­is­rýrnun á lánum til ein­stak­linga. Útlán til við­skipta­vina hafa auk­ist um 7,4 pró­sent frá árs­lokum 2020, aðal­lega vegna umsvifa í hús­næð­is­lánum auk þess sem vöxtur var í lánum til fyr­ir­tækja.

Kostn­að­ar­hlut­fall allra bank­anna er vel undir 50 pró­sent. Hjá Íslands­banka var það nú 46,6 pró­sent, hjá Lands­bank­anum var það 41,7 pró­sent og hjá Arion banka var það 37,5 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi, en 41,9 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár