Læknar án landamæra afþakka styrki frá ESB í mótmælaskyni

Gagnrýna framgöngu sambandsins gagnvart flótta­fólki: „Við getum ekki þegið styrki frá Evrópu­sambandinu eða aðildar­ríkjum þess á sama tíma og við hlúum að fórnar­lömbum þeirrar stefnu sem er rekin. Svo einfalt er það.“

Samtökin Læknar án landamæra hafa ákveðið að hætta að taka við styrkjum frá Evrópu­sambandinu í mótmæla­skyni við stefnu sambandsins gagnvart flótta­mönnum. 

„Við getum ekki þegið styrki frá ESB eða aðildar­ríkjum þess á sama tíma og við hlúum að fórnar­lömbum stefnu þeirra. Svo einfalt er það,“ segir í Twitter-færslu frá samtökunum. 

Í yfir­lýsingu sem birtist á vef Lækna án landamæra í dag er sérstak­lega vísað til afleiðinga samkomu­lagsins sem Evrópu­sambandið gerði við Tyrkland fyrr á árinu, en samningurinn felur meðal annars í sér að flótta­menn sem ferðast hafa frá Tyrklandi til Grikk­lands og ekki sótt um hæli eða ekki fengið hælis­umsókn samþykkta eru sendir aftur til Tyrklands með valdi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár