Yellen: Lausnin er að efla atvinnuþátttöku kvenna

Janet Yellen, seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, segir að hagvöxt í Banda­ríkjunum megi efla með tiltölu­lega einfaldri aðgerð.

Ef konur væru jafn virkar á bandarískum vinnu­markaði og karlar þá væri bandaríska hagkerfið í það minnsta fimm prósent stærra. Þetta er eitt af því sem rannsókn frá 2012, sem Janet Yellen seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna vann, leiddi í ljósi. 

Í ræðu sem hún hélt í dag við Brown háskóla í New York, í tilefni af því að 125 ár eru síðan háskólinn hóf að taka inn konur sem nemendur, sagði hún að bandarískt samfélag hefði mikla hagsmuni af því að virkja kraft og þekkingu kvenna. „Við, sem þjóð, höfum upplifað mikinn ávinning af því vaxandi hlutverki sem konur hafa sinnt í bandarísku efnahags­lífi [...] Rann­sóknir sýna þó að konur eru enn að upplifa mun meiri hindranir, þegar kemur að framgangi á vinnu­markaði, heldur en karlar.“

Hún lagði áherslu á að það þyrfti betri og ítarlegri stefnu­mörkun af hálfu stjórn­valda, til að virkja konur og gera þeim mögulegt að byggja upp eðlilegan feril í fullri vinnu. Yellen lagði enn fremur áherslu á það að Banda­ríkin væru að dragast aftur úr öðrum þróuðum ríkjum, t.d í Evrópu, en Banda­ríkin eru nú í 17. sæti af 22 þróuðum ríkjum. Hún sagði að líklega myndi atvinnu­þátttaka kvenna hækka út 74,3 prósent í 82 prósent ef svipuð stefnu­mörkun færi fram og þegar hefði verið leidd í lög víða í Evrópu.

Frá því árið 2000 hefur staðan versnað, sé sérstak­lega horft til kvenna á aldrinum 25 til 54 ára. Atvinnu­þátttakan hefur farið úr 77,3 prósent í 74,3. Þó þetta virðist ekki svo mikið bil, þá vegur hvert prósentu­stig þungt í þróun sem þessari og Yellen sagði í ræðu sinni að það væri mikið áhyggju­efni að staðan væri að versna.

Hagvöxtur í Banda­ríkjunum mældist 0,7 prósent á fyrstu mánuðum ársins, sem er það minnsta síðan 2014. Flestar spár gerðu ráð fyrir meiri hagvexti, en Donald Trump, Bandaríkja­forseti, hefur lofað því að koma hagvexti í 4 prósent strax á þessu ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár