Gáttaður á að umhverfissinnar séu ekki að „lemja á borginni“ út af flugvellinum

Gunnar H. Gunnarsson oddviti Reykja­víkur, bestu borgarinnar, segir að flokkar sem bjóði fram á landsvísu glími við pólitískan ómöguleika er kemur að flug­vellinum í Vatnsmýri, en brott­hvarf flug­vallarins er aðal­baráttumál fram­boðsins.

Gunnar H. Gunnarsson er oddviti Reykjavíkur, bestu borgarinnar.
Gunnar H. Gunn­ars­son er odd­viti Reykja­víkur, bestu borg­ar­innar. Mynd: Arnar Þór

Gunnar H. Gunnarsson oddviti fram­boðsins Reykjavík, besta borgin segist vera gáttaður á því að umhverfis­sinnar og önnur sem vilja beita sér fyrir aðgerðum í loftslags­málum séu ekki sífellt að berja á Reykja­víkurborg um að beita sér fyrir alvöru í því að flug­völlurinn í Vatnsmýri víki fyrir þéttri miðborgar­byggð við fyrsta tækifæri.

„Ég er algjör­lega gáttaður á því að umhverfis­sinnar séu ekki komnir á fulla ferð í að lemja á borginni og heimta að hún geri grein fyrir því hún ætlar að minnka [útblástur] CO2 og gefi flokkum og framboðum einkunn eins og þau gerðu í haust, því það er ekkert smáræðis í húfi,“ segir Gunnar og vísaði til einkunna­gjafar Ungra umhverfis­sinna fyrir alþingis­kosningarnar, þar sem loftslags­stefnur flokkanna voru metnar.

Þetta er á meðal þess sem kom fram í máli Gunnars í samtali við Eyrúnu Magnúsdóttur í hlaðvarps­þætti Kjarnans, Með orðum oddvitanna, sem kom út í dag í Hlaðvarpi Kjarnans. Þar fór Gunnar yfir helstu stefnumál fram­boðsins og kom því á framfæri að hann teldi engan hafa boðið Reyk­víkingum betri díl en Reykjavík, besta borgin gerir í þessum kosningum.

Vilja 7 milljarða á ári í leigu undir flugvöllinn

Aðal­stefnumál fram­boðsins er að flug­völlurinn í Vatnsmýri víki fyrir þéttri borgar­byggð, en Reykjavík, besta borgin segir mögulegt að byrja að rukka ríkis­valdið um leigu á því borgar­landi sem liggur undir flug­vellinum.

„Borgin á ⅔ af lóðinni undir flug­vellinum, hún er 200 milljarða króna virði, og bingó, það er engin leiga og hefur ekki verið í 80 ár. Hvers konar hagsmuna­gæsla er þetta eiginlega hjá þeim sem stjórna borginni? Það er verið að fórna hagsmunum Reyk­víkinga,“ segir Gunnar, en í stefnu­skrá fram­boðsins er talað um að ríkið greiði 3,5 prósent af andvirði borgar­landsins í leigu á ári, sem væru 7 milljarðar króna.

Pólitískur ómöguleiki landsmálaflokka

Hann segist í viðtalinu hafa rætt við borgar­pólitíkusa, bæði til hægri og vinstri, sem hafi í gegnum árin flestir verið sammála um að flug­völlurinn í Vatnsmýri skuli víkja og að auðvitað ætti að byggja þarna. Þeir hafi þó flestir á sama tíma lýst þeirri skoðun að það væri „ekki pólitískt mögulegt“ þar sem það sé misvægi atkvæða á milli höfuð­borgar og lands­byggðar, flokkarnir missi atkvæði úti á landi og dreifbýlingar séu duglegir að mæta á lands­fundi – og gætu þar ógnað formanni flokks sem vilji að flug­völlurinn víki.

„Þetta er bara „lousy“ pólitík, þetta er ekkert annað og rosaleg ömurð að horfa upp á þetta,“ segir Gunnar, sem segir Reyk­víkinga hafa möguleika á að „gera eitthvað í málinu“ með því að kjósa afl eins og hans, sem er óháð landsmála­pólitíkinni.

Gunnar segir að hann og Örn Sigurðsson meðframbjóðandi hans, sem hafa verið virkir í starfi Samtaka um betri byggð um lengri tíma, hafi í fórum sínum „nokkur tonn af gögnum“ um hagkvæmni þess að flug­völlurinn víki og segir að þær tölur sem þeir hafi í fórum sínum séu aldrei véfengdar – þó að bæði stjórn­málamenn og fjöl­miðlar virðist hafa ákveðið að hundsa þær.

Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár