Frétt um Boris og Carrie Johnson hvarf af síðum Times

Frétt um hugmyndir Borisar Johnsons, um að gera framtíðar eiginkonu sína að starfsmanna­stjóra utan­ríkis­ráðuneytisins árið 2018, var fjarlægð úr blaðinu Times á laugardag án nokkurra útskýringa blaðsins. Blaða­maður Times stendur þó við fréttina.

Hjónin Carrie og Boris Johnson fyrir utan Downingstræti 10 í Lundúnum.
Hjónin Carrie og Boris Johnson fyrir utan Downingstræti 10 í Lundúnum. Mynd: EPA

Á laugar­daginn sagði breska blaðið Times frá því að Boris Johnson hefði í upphafi árs 2018, er hann var utan­ríkis­ráðherra, ætlað sér að ráða Carrie Symonds, þáverandi hjákonu sína og núverandi eiginkonu, í vellaunað starf starfsmanna­stjóra ráðuneytisins.

Ráðgjafar hans og bandamenn í ráðuneytinu eru hins vegar sagðir hafa komið í veg þessar fyrir­ætlanir, þar sem þeir vissu af sambandi Johnson við Symonds og töldu það fela í sér gríðar­lega áhættu fyrir hann að ráða ástkonu sína í starfið. Enda fer slíkt gegn öllum siða­reglum.

Jafnframt töldu þeir að Symonds væri of óreynd í starfið, en á þessum tíma var hún fjölmiðla­fulltrúi Íhalds­flokksins og hafði ekki reynslu af starfi af því tagi sem Johnson vildi ráða hana í.

Fréttir hurfu án útskýringa

Frétt um þetta mál birtist á blaðsíðu fimm í prent­útgáfu Times á laugardag, að minnsta kosti í þeim eintökum sem fyrst komu úr prentsmiðjunni. Í seinni útgáfum af blaðinu var fréttina þó hvergi að finna – og hún var aldrei sett á netið. Annar fjöl­miðill, Daily Mail, vísaði til fréttar Times á vefsíðu sinni, en þaðan hvarf hún sömuleiðis.

Engar útskýringar hafa enn verið settar fram um það af hverju miðlarnir tóku fréttirnar úr birtingu. Fulltrúar útgáfu­félags Times, News UK, sem er hluti af fjölmiðla­veldi ástralska auðkýfingsins Roberts Murdoch, hafa hingað til neitað að tjá sig um ástæður þess að fréttin var tekin úr birtingu.

Blaðamaðurinn stendur 100 prósent við fréttina

Blaða­maðurinn Simon Walters, sem skrifaði frétt Times, fékk samkvæmt fréttinni stað­festingar úr nokkrum ólíkum áttum á að þessi saga væri sönn, en umrædd saga kom fyrst fram í nýlegri bók sem Michael Ashcroft, fyrr­verandi vara­formaður Íhalds­flokksins, skrifaði um eiginkonu forsætis­ráðherrans.

Athygli vakti yfir helgina að Walters, sem er reyndur blaða­maður, lýsti því yfir að hann stæði að fullu við fréttina þrátt fyrir að hún hefði verið látin hverfa. Það vakti svo ekki minni athygli þegar aðrir fjöl­miðlar fóru á stjá og fengu söguna staðfesta frá heimildar­mönnum sem þekkja til málsins, en það hafa Guardian, Independent og fleiri miðlar gert.

Guardian hefur það eftir heimildum sínum innan af ritstjórn Times að blaðamenn þar hafi verið undrandi á ákvörðuninni um að draga fréttina úr birtingu. Í frétt blaðsins segir að að fleiri en einn heimildar­maður þar telji að yfir­stjórn blaðsins hafi haft einhver áhrif þar á þá ákvörðun, sem tekin var af aðstoðar­ritstjóra blaðsins.

Sumir breskir miðlar eru þegar byrjaðir að kalla þetta mál „Carriegate“ og er ekki ósennilegt að málið sé að vekja meiri athygli en raunin yrði annars sökum þess að fréttin var fjarlægð.

Forsætisráðuneytið beitti sér

Síðdegis í dag staðfesti skrif­stofa forsætis­ráðherra við fjölmiðla að fulltrúar þar hafi komið athuga­semdum á framfæri við Times vegna fréttarinnar. Samkvæmt frétt Independent kvartaði Johnson þó ekki sjálfur.

Talsmaður Carrie Johnson hefur sagt að fréttin sé „algjör­lega ósönn“ og hefur forsætis­ráðuneytið vísað til þeirra svara, en þó hafa fjölmiðla­fulltrúar þess ekki neitað efni fréttarinnar afdráttar­laust með formlegum hætti og segja það ekki á sinni könnu, þar sem Johnson hafi ekki verið orðinn forsætis­ráðherra á þessum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár