Frakkar lýsa helvíti á jörðu: „Sólin sýnir enga miskunn“

Í stingandi hitanum halda íbúar í Rennes sig helst heima fyrir, með gluggana lokaða og leyfa sér einstaka sinnum að kveikja á viftunni - því rafmagnið kostar sitt. Til að takmarka hitann í íbúðum sínum borða þeir kaldan mat og drekka svalandi drykki. Þegar þeir fara út leita þeir skjóls í skugga blokkanna eða niður við á.

Glugga­hlerarnir eru lokaðir á jarð­hæðinni þar sem 49 ára gömul ræstingar­kona býr í frönsku borginni Rennes. Þegar hitinn náði 40°C sagðist hún ekki ætla út fyrir hússins dyr. „Þetta er erfitt en ég held mig heima,“ sagði Ancuta Lacatus við AFP. „Læknirinn minn ráðlagði mér að fara ekki út. Það er hættulegt fyrir mig,“ sagði hún, sem glímir við veikt hjarta.

En í hita­bylgjunni sem herjar á Evrópu er ekki nóg að halda sig heima yfir daginn. „Jafnvel á nóttunni er mjög heitt,“ hélt hún áfram.

Í vikunni hefur hvert hitametið á fætur öðru fallið í Frakk­landi. Hita­bylgjan hefur ekki aðeins reynst banvæn heldur hefur hún einnig valdið truflunum á daglegu lífi íbúa. Skólum hefur verið lokað, samgöngu­truflanir hafa verið miklar og ríkis­stjórnin telur að eitt af hverjum þremur heimilum þar í landi sé ekki í stakk búið til þess að þola mikinn hita.

Endur­bætur til að …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    And instead of fighting CO2 emissions politics seeks to adapt to heat! It wont work but humanity will find out by learning it the hard way!
    3
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Minnti mig á dystópíska skáldsögu Blá eftir Maja Lunde
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár