Einkaskilaboð frá 81 þúsund Facebook-notendum til sölu

Einka­samtöl tugþúsunda notenda samfélags­miðilsins víða um heim eru komin í hendur hakkara sem hyggjast selja þau á tólf krónur stykkið.

Tölvu­þrjótar í Rússlandi hyggjast selja einka­skilaboð frá meira en 80 þúsund Facebook-notendum þar sem skilaboð frá hverjum notanda muni kosta tólf krónur. Þetta kemur fram í frétt á vef BBC.

Samkvæmt fréttinni kom umræddur leki fyrst í ljós í september síðastliðnum þegar notandi að nafni "FBSaler" sagðist búa yfir upplýsingum um 120 milljónir Facebook-notenda á ensku spjallsvæði. BBC lét rannsaka sannleiks­gildi stað­hæfingarinnar og hefur staðfest að einka­skilaboð meira en 81 þúsund aðganga séu í höndum tölvu­þrjótanna.

Umræddir aðgangar eru frá fjölmörgum löndum, en flestir þeirra eru frá Rússlandi og Úkraínu. Meðal annarra landa sem stolnu aðgangarnir koma frá eru Banda­ríkin, Bretland og Brasilía einnig nefnd. Skila­boðin hafa að geyma ýmsar persónu­upplýsingar, en meðal þeirra sem lekið hafa eru ferða­ljósmyndir, spjall um nýlega Depeche Mode tónleika og kvartanir vegna tengda­sonar.

Hakk­ararnir virðast hafa tengingu við Rússland, en samkvæmt fréttinni var ein vefsíða sem birti upplýsingar um aðgangana sett upp í Sankti Péturs­borg. Einnig birtu þeir auglýsingu sem dreift var um netið, en í henni buðust þrjótarnir til að selja aðgang að skila­boðum hvers notanda fyrir tíu sent, sem jafn­gildir tólf krónum.

Samkvæmt Facebook hefur upplýsingunum verið aflað í gegnum vafra­viðbót (e. extension) sem notendurnir höfðu hlaðið niður. Ekki hefur enn verið greint frá því hvaða vafra­viðbót er um að ræða en Guy Rosen talsmaður Facebook segir samfélags­miðilinn hafa séð fyrir því að hún væri ekki lengur aðgengileg á vefnum. Rosen bætir einnig við að miðillinn vinni nú með lögreglu auk rússneskra yfirvalda í því að síðan sem birti upplýsingarnar yrði tekin niður.

Facebook þvertekur þó fyrir það að lekinn sé vegna eigin mistaka og bætir við að öryggi miðilsins sé ekki í hættu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár