Jákvæð teikn á lofti í Afríku en skuggi faraldurs og stríðs vofir yfir

Fram­leiðni í mörgum ríkjum Afríku hefur þok­ast í rétta átt á síð­asta ára­tug og útflutn­ings­tekjur nokk­urra ríkja auk­ist. Lönd álf­unnar eru enn alltof háð öðrum með aðföng en við blasir tæki­færi til að draga úr því.

Grafið eftir demöntum í Suður-Afríku.
Grafið eftir demöntum í Suður-Afríku. Mynd: EPA

Á síð­ustu ell­efu árum hefur hagur 37 af 52 löndum Afríku vænkast að teknu til­liti til lyk­il­þátta á borð við inn­viða­upp­bygg­ingu, vinnu­markað og efna­hags­legs stöð­ug­leika. Þetta er nið­ur­staða nýrrar skýrslu Þró­un­ar­banka Afríku, Afr­íku­banda­lags­ins og Iðn­þró­un­ar­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (Unido). Við grein­ingu sína var stuðst við nítján lyk­il­þætti og nið­ur­staðan getur gagn­ast stjórn­völdum til sam­an­burðar, til að læra af reynslu ann­arra og finna aðgerðir sem gætu hentað og gagn­ast við frek­ari upp­bygg­ingu.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Þró­un­ar­bank­ans.

Meðal lyk­il­þátta sem not­aðir eru við grein­ingu stofn­an­anna eru fram­leiðni, vinnu­mark­aður, við­skiptaum­hverfi og staða fjár­mála­stofn­ana, grunn­inn­viðir og efna­hags­legur stöð­ug­leiki.

Út frá þessum fyr­ir­fram skil­greindu þáttum stendur Suður-Afríka best að vígi og hefur gert allt tíma­bilið sem var til skoð­unar, þ.e. frá 2011. Marokkó hefur síð­ustu ár verið að sækja í sig veðrið og er annað iðn­væddasta land álf­unnar sam­kvæmt skil­grein­ingum stofn­an­anna. Þar á eftir fylgja Egypta­land, Túnis, Máritíus og Eswatini, litla kon­ungs­ríkið í miðju Suður-Afríku sem áður var kallað Svasíland.

Einstakt tækifæri

Abdu Mukhtar, for­stjóri Þró­un­ar­banka Afríku, segir að flest Afr­íku­lönd hafi styrkt stöðu sína efna­hags­lega að ýmsu leyti á tíma­bil­inu 2010-2021. Hins vegar hafa áhrif heims­far­ald­urs­ins verið nei­kvæð á mörg þeirra, m.a. vegna þess að ferða­þjón­usta nán­ast hrundi á einni nóttu, atvinnu­grein sem skiptir mörg land­anna miklu máli. Hann segir að enn eigi áhrif heims­far­ald­urs­ins eftir að koma að fullu fram.

Í öðru lagi þá hefur sigið á ógæfu­hlið­ina í mörgum Afr­íku­löndum á þessu ári eða allt frá inn­rás Rússa í Úkraínu. Aðfanga­keðjur hafa hökkt og jafn­vel slitnað vegna far­ald­urs­ins og stríðs­ins sem hefur hægt á fram­leiðni. „Álfan hefur nú ein­stakt tæki­færi til að verða sjálf­bær­ari og ekki eins háð öðrum með því að sam­þætta og þróa áfram eigin mark­aði.“

Á hann þar við nýtil­komið frí­versl­un­ar­svæði álf­unnar sem ætti hæg­lega að geta eflt við­skipti og sam­vinnu á ýmsum sviðum milli Afr­íku­ríkja og þá einnig hag þeirra 1,3 millj­arða manna sem þar sam­tals búa.

Þrátt fyrir þessi jákvæðu teikn sem orðið hafa á síð­asta ára­tug er hlut­deild Afr­íku­ríkja í alþjóða­hag­kerf­inu mjög lítil, innan við 2 pró­sent, og hefur minnkað und­an­farin miss­eri.

Í mörgum ríkjum Afríku eru stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki, m.a. í mat­væla­fram­leiðslu og námu­vinnslu, fyr­ir­ferð­ar­mikil. Álfan geymir sann­ar­lega gríð­ar­leg verð­mæti í jörðu og jarð­veg­ur­inn er víða gjöf­ull og einkar hent­ugur til rækt­unar á marg­vís­legum mat­vörum. Land­bún­aður er hins vegar enn víða frum­stæður, handaflið notað til hins ítrasta og vél­væð­ing ára­tugum á eftir því sem gengur og ger­ist í flestum öðrum heims­hlutum. Frum­fram­leiðsla er stór hluti efna­hags­lífs­ins, og hrá­vör­urnar flæða til Vest­ur­landa þar sem verð­mæti þeirra er marg­faldað.

Á tíu ára tíma­bili hækk­uðu tíu lönd sig um fimm eða fleiri sæti miðað við hina fyr­ir­fram skil­greindu þætti stofn­anna þriggja: Djíbútí, Benín, Mósambík, Senegal, Eþíópía, Gínea, Rúanda, Tansanía, Gana og Úganda.

Það þýðir m.a. að fram­leiðsla á hvern íbúa þeirra jókst og útflutn­ingur fram­leiðslu­vara sömu­leiðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár