Milljarða tekjur Íslands af losunarheimildum

Íslenska ríkið hefur hagnast um tíu milljarða króna á sölu losunar­heimilda. Ólíkt öðrum Evrópu­þjóðum setur Ísland sér engin skilyrði um að nýta þessa fjármuni til loftslags­mála.

Íslenska ríkið hefur haft rúmlega 10 milljarða króna í tekjur af sölu losunar­heimilda í gegnum viðskipta­kerfi Evrópu­sambandsins á nokkrum árum. Ólíkt ríkjum ESB hefur Ísland ekki sett sér nein viðmið um það hversu mikið af þessum tekjum skuli renna beint til verkefna á sviði loftslags­mála eða barátt­unnar gegn loftslags­breytingum. Þar að auki hefur íslenska ríkið haft rúmlega 45 milljarða króna í tekjur af innheimtu kolefnis­gjalds. Samanlagt eru þetta þá rúmlega 55 milljarðar króna frá árinu 2010 til ársins 2021 af þessum tekjum. 

Ísland hefur átt aðild að viðskipta­kerfi ESB með losunar­heimildir frá árinu 2013, en Ísland er þar í sérstökum hópi, ásamt hinum EES ríkjunum, sem bjóða sameiginlega út heimildir til kolefnis­losunar í gegnum uppboðs­marka þar sem mikið magn losunar­heimilda er boðið upp í senn en kaupendur eru aðallega bankar og fjármála­fyrirtæki sem selja heimildirnar svo áfram á markaði.

Ísland tók í fyrsta sinn þátt í slíku uppboði …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Doddi Gumm skrifaði
    Frjálst framsal aflaheimilda var heimskuleg en það að gera mengun að markaðsvöru er líklega enn heimskulegri og sýnir að allt er falt fyrir peninga.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár