Í kjölfar fréttar sem birtist á Kjarnanum þann 26. Júní hefur Lífeyrissjóður verslunarmanna beðið að koma eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri:
„Lífeyrissjóður verzlunarmanna gerir verulegar athugasemdir við greinina og efnistök hennar. Fyrirsögn greinarinnar felur í sér rangfærslur. Lífeyrissjóðurinn mótmælir því eindregið að á nokkurn hátt sé tekin óeðlileg áhætta í erlendum fjárfestingum sjóðsins, þvert á móti: Allt frá upphafi erlendra fjárfestinga hefur Lífeyrissjóður verzlunarmanna lagt alla áherslu á öryggi og áhættudreifingu fjárfestinganna. Þar er um að ræða sjóði þar sem fjöldi undirliggjandi félaga er talinn í þúsundum, auk þess sem stærstu og þekktustu eignastýringarfyrirtæki heims annast rekstur viðkomandi hlutabréfasjóða. Það hefur skilað sér í góðum árangri og afkomu af þessu eignasafni.“
Í fréttinni, sem fjallaði um erlenda hlutabréfasjóði í eigu Lífeyrissjóðs verslunarmanna, var greint frá því að flestir sjóðanna sem birtast í ársreikningi lífeyrissjóðsins teldust frekar eða mjög áhættusamir samkvæmt fjárfestum. Vísað var í áhættu-ávöxtunarstig (Risk and Reward Profile) sjóðanna, en þau eru birt af fjárfestingafyrirtækjum, í mörgum tilfellum af sjóðunum sjálfum. Kjarninn stendur við efni fréttarinnar og telur fyrirsögn hennar ekki fela í sér rangfærslur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir