Tæpur helmingur erlendra eigna í Lífeyrissjóði Verslunarmanna í áhættusömum sjóðum

Helm­ingur erlendra eigna Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna er bund­inn í hluta­bréfa­sjóðum sem telj­ast frekar eða mjög áhættu­samir.

Áhættusamar erlendar fjárfestingar ná 12% af heildareignum
Áhættu­samar erlendar fjár­fest­ingar ná 12% af heild­ar­eignum Mynd: Mbl

Flestir erlendu hluta­bréfa­sjóðir sem Líf­eyr­is­sjóður Versl­un­ar­manna hefur fjár­fest í telj­ast frekar eða mjög áhættu­samar meðal fjár­festa. Almanna­tengsla­full­trúi Líf­eyr­is­sjóðs­ins segir sjóð­ina valda út frá ára­tuga reynslu

Í síð­asta árs­reikn­ingi Líf­eyr­is­sjóðs Versl­un­ar­manna kemur fram að millj­örðum hafi verið veitt í fjár­fest­ingum erlendis, þar af 71 millj­arður í hluta­bréfa­sjóði. Hluta­bréfa­sjóð­irnir skil­uðu margir hverjir yfir 4% ávöxtun, en eru flestir taldir frekar eða mjög áhættu­samir sam­kvæmt lýs­ingu sjóð­anna.

Hjá sjóð­unum er gjarnan gefið út svo­kallað áhættu-ávöxt­un­ar­stig (SRRI) á gefnu bili þar sem lágt stig þýðir litla áhættu og minni líkur á ávöxtun, en hátt stig þýðir mikla áhættu og hærri vænta ávöxtun. Mæli­kvarð­inn er fund­inn út frá flökti fjár­fest­ing­ar­innar á síð­ustu fimm árum.

Hér að neðan eru hluta­bréfa­sjóð­irnir sem Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna hefur fjár­fest í erlendis og koma fram á árs­reikn­ingi líf­eyr­is­sjóðs­ins. Áhættu-ávöxt­un­ar­stig hvers sjóðs er ýmist á bil­inu 1-5 eða 1-7. Fundnar voru upp­lýs­ingar um alla sjóði að einum und­an­skildum. Hluta­bréfa­sjóð­irnir eru allir taldir frekar eða mjög áhættu­samir með háu áhættu-ávöxt­un­ar­stigi. Áhættu­stigið er í sviga fyrir aftan nafn hvers sjóðs:

  • Vanguard Global Stock (4 af 5) 
  • Meridian – Global Concentrated (5 af 7)
  • Meridian – Global Equtity Fund (5 af 7)
  • State Street North American Fund (5 af 7)
  • GS N11 (5 af 7)
  • AB FCP I (fannst ekki)
  • Atlantis China Fund (Flokkað sem High-risk)
  • Morgan Stanley Asian Fund (6 af 7) 
  • Coupland Cardiff Japan Fund (6 af 7)
  • JP Morgan Korea Equity (6 af 7)
  • JP Morgan Taiwan Fund (7 af 7)
  • LFP China Value (6 af 7)

Eignir í hluta­bréfa­sjóð­unum sam­svarar um 45% af erlendum eignum og 12% af heild­ar­eignum Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna. Á heima­síðu sinni segir að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn forð­ist áhættu hverju sinni ef hún er ekki nauð­syn­leg til að ná mark­miðum um ávöxtun.

Þór­hallur B. Jós­eps­son, almanna­tengsla­full­trúi líf­eyr­is­sjóðs­ins, segir allar þær erlendu fjár­fest­ingar sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur farið í fela í sér minni áhættu þar sem þær hafa allar dreift eigna­safn og eru valdar með hlið­sjón af reynslu und­an­far­inna ára­tuga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár